19. júní - 19.06.1964, Blaðsíða 37
Kristín Jóhannesdóttir
1 2. gr. félagslaga K.F.U.K. stendur: „K.F.U.K.
leitast við að safna saman ungum konum og stúlk-
um, sem vilja trúa á Jesúm Rrist sem Guð sinn og
frelsara, samkvæmt heilagri ritningu, og vilja þjóna
honum af öllu hjarta og starfa í sameiningu að út-
breiðslu ríkis hans meðal ungra kvenna.“
í 3. gr. stendur: „K.F.U.K. leitast við að efla trú-
arlegt og siðferðilegt líf meðal ungra kvenna og
hlynna að andlegum og líkamlegum þroska þeirra.“
Þessu takmarki sínu reynir K.F.U.K. að ná með
vikulegum fundahöldum, þar sem Guðs orð er haft
um hönd og fræðandi fyrirlestrar fluttir, og með
því, eftir ástæðum, að veita tilsögn í ýmsum grein-
um þeim konum, er þess æskja, leggja þeim ráð
og leiðbeina þeim.“
í þessum tveim lagagreinum er í stuttu máli
sagt það, sem K.F.U.K. leggur aðaláherzlu á með
starfi sínu og telur bezta veganesti fyrir hverja
unga stúlku. „Með hverju getur ungur maður hald-
ið vegi sínum hreinum? Með þvi að gefa gaum að
orði þinu (Drottinn)“ segir í 119. sálmi Davíðs.
1 hverri viku býður K.F.U.K. ungum stúlkum
að verja tómstundum sínum innan veggja félagsins.
Þessir unglingafundir eru á fjórum stöðum hér í
bænum og eru einkum ætlaðir stúlkum 13—17 ára.
Er reynt að sniða þá við hæfi ungra stúlkna.
Þátturinn Lœrið aS matbúa hefur verið bæði til
gagns og gamans. Fer þá fram sýnikennsla, hvern-
ig búa skuli til einhvern ábætisrétt eða baka vöffl-
ur, svo að eitthvað sé nefnt. Stúlkurnar fá svo upp-
skriftina og smakka á réttinum í lok fundarins.
MeSferS ungbarna hefur sömuleiðis verið vin-
sæll þáttur. Þá kemur einhver ung móðir í heim-
sókn og kennir þeim að baða ungbörn og gefur
ýmsar góðar reglur um meðferð ungbarna og dreg-
ur gjarna fram þá ábyrgð, sem fylgir því að vera
móðir og eiga að annast lítið barn.
Á sumum fundunum fer fram nokkurs konar
starfsfræðsla. T. d. kemur hjúkrunarkona í heim-
sókn og kennir að binda um sár eða beinbrot, ýmis-
legt, sem heyrir undir „hjálp í viðlögum“. Eða hún
kennir þeim að búa um sjúklinga og meðferð á
þeim eftir uppskurð.
Kennari kemur í heimsókn og segir frá, hvernig
kennslustund fer fram hjá yngstu börnunum. Þátt-
ur, sem hefur yfirskriftina: ÞaS er leikur aS lcera.
Eitt kvöldið kemur fóstra í heimsókn og segir
frá, hvernig dagurinn líður á barnaheimilinu. Ef
til vill gefur hún smáupplýsingar um Fóstruskól-
ann.
Músikþœttirnir setja sinn svip á fundakvöldin.
Stúlkumar fá þá að heyra um undrabarnið Mo-
zart eða um ævi Schuberts. Eru þá leikin lög eftir
tónskáldin. Ave Maria hljómar fallega, sungið með
góðri sópranrödd.
Svo eru það ferSaþœttirnir. Eru þá sýndar lit-
myndir og ferðasagan sögð um leið. Er þá farið
yfir þvert og endilangt Island. Ættjarðarsöngvar
eru þá sungnir með lífi og fjöri. Eða þá að farið
er út fyrir landsteinana, til Italíu og jafnvel til
annarra heimsálfa. Fáum við þá að kynnast alveg
nýjum heimi.
Hér hefur verið talið upp nokkuð af því, sem
fram fer á fundunum til fræðslu. En eins og sagt
var í upphafi, er aðaláherzlan lögð á uppfræðslu
í Guðs orði. Mikið er sungið á þessum samveru-
stundum og þá einkum æskulýðssöngvar séra Frið-
riks Friðrikssonar.
Það er ósk stúlknanna, sem starfa við unglinga-
deildirnar, að stúlkurnar, sem koma á fundina,
mættu verða góðir, kristnir borgarar í þjóðfélagi
okkar, hvort sem þær verða húsmæður, kennarar,
hjúkrunarkonur eða þær velja sér einhverja aðra
stöðu.
Þegar rætt er um tómstundaverkefni barna og
unglinga, fer ekki hjá því, að þar er um tvö megin-
sjónarmið að ræða. í fyrsta lagi sjónarmið uppal-
andans og hinna fullorðnu, og í öðru lagi sjónar-
mið unglinganna sjálfra. Þetta tvennt fer ekki
ævinlega saman.
Tómstundastarf er eins og nafnið bendir til það
viðfangsefni, sem viðkomandi kýs að eyða fri-
stundum sínum við — þ. e. a. s. frístundum frá
19. JÚNf
35