19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1964, Qupperneq 20

19. júní - 19.06.1964, Qupperneq 20
bömunum, sem oftast var aðeins mjólkurvellingur. Bömin vom tvö ung, piltur og stúlka; þau komu aldrei í eldhúsið til okkar, en lágu oft á gluggan- um og horfðu inn, þegar þau voru að leika sér fyrir utan, því eldhúsið var í kjallaranum í höll- inni. Sonurinn varð seinna óðalseigandi. Við þurftum aldrei að sjá um morgunkaffi eða kvöldkaffi handa fyrirfólkinu; það gerðu aðrir í eldhúsi, sem var á hæðinni fyrir ofan. Þar var einnig þveginn upp borðbúnaðurinn og geymdur milli máltíða. Hofmeistarinn kom á hverjum morgni fyrir há- degi og skrifaði upp í bók matseðil dagsins, eftir fyrirsögn Þóm Pálsdóttur; fór síðan og sýndi hann Maríu prinsessu, ef hún skyldi vilja gera einhverj- ar breytingar, en það gerði hún aldrei, nema ef hún bætti einhverjum aukarétti inn í vegna gesta. Hún treysti matráðskonu sinni fullkomlega. Sem dæmi um það, að Þóra Pálsdóttir var þess trausts verðug, má geta þess, að prinsessan var katólsk og mátti því ekki borða kjöt á föstunni. Þóra Páls- dóttir lagði ríkt á við mig að setja ekkert, sem kjöt- bragð væri að, í mat hennar þennan tíma. „Ég má ekki bregðast henni með það, sagði Þóra Páls- dóttir, því hún treystir mér mjög vel.“ Við þurftum að sjá um tvær máltíðir á dag, kl. hálfeitt var aðeins óbreyttur matur, en kl. hálfsjö var aðalmaturinn, þá var fjórréttað: súpa, fiskur, kjöt og eftirmatur. Allur bakstur fór lika fram í eldhúsinu niðri. Ég varð að sjá um, að alltaf væri til smjördeig, en með kaffinu var aðeins bökuð ein tegund; það voru smákökur, kallaðar sírenu- kökur, og er uppskriftin þessi: Jafnt af sykri, smjöri og hveiti, deigt með eggi og hnoðað í lengjur, skor- ið í þykkar sneiðar og hálfri möndlu þrýst á hverja köku. Um fjögur-leytið dag hvern átti Þóra Pálsdóttir nokkra frístund, annars var hún óslitið að störfum í eldhúsinu. Þá drukkum við saman kaffið í henn- ar stofu, en hún hafði tvö herbergi fyrir sig inn af eldhúsinu. Það var ósvikið kaffi — og þar var ekki rótin í! Þarna sat ég líka, þegar tóm gafst, og skrifaði uppskriftir að öllum réttum, sem ég lærði að búa til, en þvi miður glataði ég bókinni, þegar hús okkar brann í Borgarnesi; það var margt, sem þá fór. Aðeins einu sinni fékk ég að koma upp á efri hæðina, en Þóra Pálsdóttir vildi, að ég fengi að sjá, hvernig lagt væri á borðið í matsal fyrirfólks- ins. Þegar ekki voru gestir, var aðeins lagt á borð fyrir fjóra: Hjónin, elzta son þeirra, Áka, og einn æskuvin Valdimars prins, er var þar heimilis- maður. Á borðinu var hvítur hördúkur, postulínið hvítt með rauðri rönd, og ekki annað borðskraut en bleikur borði, sem slöngvaðist eftir endilöngu borð- inu utan um blómakörfu og kertastjaka, en einu blómi stungið í hvert brot á borðanum. Ég get ekki sagt, ég sæi nokkurn tíma Valdemar prins. En það var föst regla, að á hverjum degi milli þrjú og fjögur gekk hann út með föður sín- um, Kristjáni IX., og þá sáum við þá svona upp að miðju, en lengra ekki, þegar þeir gengu fyrir kjallaragluggann. Ég vissi ekki, hvernig hann var í sjón. Uppáhaldsmatur Valdemars var baunir, einnig þótti honum ákaflega góður mergur. Voru keypt- ar handa honum merghnútur úr nautgripum. Þær voru soðnar, og góðgætið borið fyrir hann í hnút- unni og vafið um hana servíettu. Það segi ég satt, að ég öfundaði hann af margri hnútunni, sem hann fékk. María prinsessa, kona Valdemars, var af frönsk- um ættum. Hún var ákaflega greiðug kona og hjartagóð, mátti ekkert aumt sjá. Margir notuðu sér af því og betluðu í höllinni; einkum voru sum bömin í nágrenninu ágeng og komu oft. Þau voru jafnan send niður í eldhús til okkar að fá eitthvað í svanginn, og urðu stundum nokkuð mörg yfir daginn. Ef þau sáu Maríu úti á gangi, voru þau vön að ganga til hennar og segjast vera svöng. Var nafna mín stundum hálfleið yfir þessum átroðn- ingi, þvi hún sagði, að þetta væru alls ekki fátæku bömin, sem komu að sníkja, heldur þau freku. Faðir Maríu sendi henni jafnan eitthvert eyðslu- fé, og varði hún þvi mikið til gjafa. Fyrir hver jól sendi hann henni meðal annars sextíu gæsir og var henni uppálagt, að láta allt þjónustufólkið fá sína gæsina hvert, og voru þá ekki margar eftir. Þóra Pálsdóttir hafði þama þau fríðindi að mega taka ungar stúlkur og kenna þeim matreiðslu. Vildi hún gjarnan fá íslenzkar stúlkur, ef hún átti þess kost. kennslan kostaði 75 kr. á mánuði, og átti hún það sjálf. Hún mátti einnig ráðstafa matar- leifum, sem afgangs urðu á kvöldin. Þannig fæddi hún einn drykkfelldan frænda sinn, Nikulás að nafni. Einnig sendi hún á hverju hausti mat í sekkjatali til Magnúsar í Pálsbæ, er mun hafa verið bróðir hennar. Mér leyfði hún líka alltaf að 18 19. JÚNl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.