19. júní - 19.06.1994, Síða 2
RITSTJÓRASPJALL:
Til hatningju
Ingibjörg Sólrún
Hjörtu jafnréttissinna glöddust á kosninganótt þegar
úrslit sveitarstjórnarkosninganna gáfu til kynna að
næsti borgarstjóri í höfuðborginni yrði kona, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, sein bæði hefur setið í borg-
arstjórn og á alþingi íslendinga. Víða um land hafa
konur setið sem formenn sveitar- og bæjarstjórna en í Reykjavík
hefur aðeins ein kona áður gegnt embætti borgarstjóra en það er
Auður Auðuns, fyrrverandi dóms- og kirkjumálaráðherra, en hún
var borgarstjóri frá 1959 til loka árs 1960 eftir margra ára veru í
borgarstjórn.
Framboð Ingibjargar Sólrúnar til borgarstjóra bar brátt að og
kjósendur í Reykjavík brugðust við og ljáðu henni liðsinni með
ógleymanlegum hætti. Anægjulegt er einnig til þess að vita að nýr
forseti borgarstjórnar er kona, Guðrún Agústsdóttir. Tvær konur í
efstu stöðum borgarstjórnar marka þáttaskil í sögu kvenréttinda á
Islandi. Athyglisvert er að nú eru konur í fyrsta sinn í meirihluta í
borgarstjórn.
Margir áratugir hafa liðið frá að íslenskar konur fengu kosn-
ingarétt og áhrif þeirra í stjórnmálum hafa aukist jafnt og þétt,
þótt mörgum finnist sá róður oft þungur og bera seint árangur.
Einstakir sigrar jafnréttissinna gleðja að sjálfsögðu en engu að síð-
ur má spyrja hvort örlítil aukning kvenna í stjórnmálum, á fjög-
urra ára fresti, hvort heldur er um að ræða sveitarstjórnar- eða al-
þingiskosningar, sé viðunandi? (Niðurstöður sveitarstjórnarkosn-
inganna nú gefa til kynna að konur hafi aðeins aukið hlut sinn en
þegar þetta er skrifað eru ekki fyrirliggjandi endanlegar tölur þar
að lútandi). Svarið við spurningunni hlýtur að vera nei, ekki síst
þegar tekið er tillit til þess að stjórnmálaflokkarnir telja sér það til
góða að tala um jafnrétti kynjanna fyrir kosningar en svo þegar
upp er staðið eftir prófkjör og forval fyrir kosningar kemur oftast í
ljós að konur eiga enn sem fyrr á brattann að sækja. Þessu verður
að breyta — tækifæri til þess er í næstu alþingiskosningum!
I tilefni 50 ára lýðveldisafmælis íslands er grein í þessu tölublaði
19. júní þar sem fjallað er um sögu kvenréttindabaráttunnar og
spurt hvort kvennahreyfingin sé á breytingaskeiði. Ymsir halda því
fram að svo sé og tala jafnvel um skref afturábak. Leiðarahöf-
undur tekur undir það að kvenréttindabaráttan sé á breytinga-
skeiði, en efast um að það sé af neikvæðum toga. Eins og öll bar-
átta, tekur jafnréttisbaráttan breytingum, hún er það sem þjóðfé-
lagið, kynslóðirnar, er hverju sinni. Baráttan lagar sig að breyttum
áherslum og jafnréttissinnar verða að svara kalli tímans. Bættur
hlutur kvenna um aðeins 1-2%, sem líkur benda til nú, er jafn-
réttissinnum áminning um enn frekari baráttu og kröfur um
aukna viðurkenningu þjóðarinnar á því að við verðum að skila
landinu til komandi kynslóða með fullu jafnrétti innanborðs. Slík
er skylda okkar.
19. júní og útgefandi þess, Kvenréttindafélag íslands, ítreka
hamingjuóskir til Ingibjargar Sólrúnar og íslenskra kvenna með
nýjan borgarstjóra í Reykjavík.
EFNISYFIRLIT:
3
4
9
10
12
14
Ritstjóraspjall: Til hamingju Ingibjörg
Sólrún!
Kvennahreyfing á breytingaskeiði:
Fróðleg umfjöllun Lilju Ólafsdóttur
um jafnréttisbaráttuna á íslandi og er-
lendis.
Launamisrétti aldrei eins mikið, segir
kvenréttindakonan Bjarnfríður Leós-
dóttir.
Konur máttu ekki skara framúr, segir
Else Mia Einarsdóttir kvenréttinda-
kona.
Ungar fjölskyldur þurfa verulegan
stuðning, segir séra Þorvaldur K.
Helgason hjá Fjölskylduþjónustu
kirkjunnar í athyglisverðu viðtali við
Steinunni Jóhannesdóttur.
Reykingakona - hver ert þú? Aðkall-
andi spurning frá Bryndísi Kristjáns-
dóttur sem fjallar um reykingar og af-
leiðingar þeirra.
17
18
21
28
30
32
íslenskar konur íjölmenna til Finn-
lands á Nordiskt Forum 1994.
Bókmenntasýn: Að þessu sinni er
penni bókmenntasýnar Guðbergur
Bergsson rithöfundur.
Vog skrifstofu jafnréttismála
Með hendur í hári. . . Valgerður Katr-
ín Jónsdóttir veltir upp ýmsum hliðum
höfuðprýðinnar.
Fréttir úr starfí KRFÍ.
Málstaður lcvenna hefur fengið byr,
segir Jónína M. Guðnadóttir, íyrrver-
andi ritstjóri 19. júní, stjórnarmaður
og varaformaður KRFÍ, í viðtali við
Sigrúnu Sigurðardóttur.
19. júní
2. tbl. 44. árgangur 1994
Utgefandi:
Kvenréttindafélag íslands
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ellen Ingvadóttir
Ritstjórnarfulltrúi:
Valgerður K. Jónsdóttir
Aðrir í ritnefnd:
Bryndís Kristjánsdóttir, Kristín Leifsdóttir, Inga
D. Sigfúsdóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Steinunn
Jóhannesdóttir og Stefanía Traustadóttir.
Prófarkalesari:
Þórdís Kristleifsdóttir
Ljósmyndir:
Rut Hallgrímsdóttir o. fl.
Auglýsingar:
Sigrún Gissurardóttir
Utlit, setning, prentun og bókband:
Prentsmiðjan Oddi
Forsíða:
Forsíðumynd af Ragnheiði Harðardóttur
Ljósmyndari: Rut Hallgrímsdóttir
2