19. júní


19. júní - 19.06.1994, Page 6

19. júní - 19.06.1994, Page 6
Þrem árum síðar, 31. des. 1919, skrifar Brí- et brýningu til ungra kvenna í Kvenna- blaðið: „Þær mcga ckki halda, að nú sc öllu óhætt, að allt sé nú fengið, scm konur hafi óskað eftir, og ávextirnir komi af sjálfu scr. Þær skulu vita það, að til þcss að þcssi rcttindi vcrði að tilætluðum notum, vcrða þær að standa á vcrði fyrir þeim, hafa ábyrgð á því, hvcrn- ig konur nota þau, og að þær skilji almennt, að þeirra hlutverk sc að gcra sig alls staðar ómissandi, og fylla mcð sæmd allar þær stöður, sem þær taka að sér, hvort sem það cr á heimilunum eða utan heimilis.“ Konur höfðu nú einnig öðlast réttindi til æðra náms og til embætta til jafns við karla og flest hróplegustu misréttismálin því af- numin. Eftir var að læra að nýta sér fengið frelsi eins og Bríet brýnir konur svo vel á í ofangreindum tilvitnunum, sem eiga er- indi við okkur enn í dag. IVIcö kjörgcngi og kosningarélt aö vopni Framsæknar konur tóku nú til óspilltra málanna við endurbætur í ýmsum þeim málum sem nú á dögum eru stundum kölluð „mjúku málin“ og hafa, a.m.k. fram undir þetta vor, þótt svolítið hallærisleg og til hliðar við það sem „skiptir raunverulegu máli“. Af nógu var að taka því fáir höfðu sinnt þeim fyrir. Konurnar beittu sér í heilbrigðismálum, réttindamálum barna, hækkun meðlagsgjalda, skólamálum og fræðslustarfi fyrir konur, nt.a. lestrarfélagi í Reykjavík. Barist var fyrir byggingu Land- spítala, nýrri sifjalöggjöf, heilsueftirliti skólabarna, matgjöfum til barna, sund- kennslu stúlkna, auknunt hreinlætiskröf- um og betra skipulagi með dreifingu mjólkur, svo eitthvað sé nefnt. Samt gekk afskaplega hægt að koma konum á Alþingi og í sveitarstjórnir og er það varla fyrr en á síðustu tveim áratugum að eitthvað kveður að konum í forystu- sveitum stjórmála. Eftirstríösárin Á eftirstríðsárunum áttu kvenréttinda- mál nokkuð erfitt uppdráttar. Um Vestur- lönd voru menn uppteknir við að ná fjöl- skyldum saman og endurvekja stöðugleika eftir stríðshrellingar. Koma þurfti konun- um aftur inn á heimilin svo karlarnir sem sneru heim úr hernaði gætu tekið við fyrri störfum. Kvenlegar dyggðir að hefðbundn- um hætti voru lofsungnar. Athyglisvert er að skoða stöðluðu manngerðirnar úr amer- ískum kvikmyndum þessa tíma. Karlarnir eru rosalegir harðjaxlar sem vita allt og gefa skipanir á báða bóga. Konurnar eru barna- legar, tala hálfgerða tæpitungu og virðast ekki hafa fullan andlegan þroska. Þá var í tísku að konur væru ósjálfbjarga og krafta- lausar. Vei þeirri stelpu sem varð uppvís að því að geta skipt um peru eða skrúfað lok af dós. Sú gat átt það víst að pipra, sem þýddi hálfgert að fara í hundana þegar kona átti í hlut. Samt voru sumar konur eitthvað að nudda í jafnréttismálum, eins skelfilega hallærislegt og það þótti. Seint á sjöunda áratugnum voru loksins lögleidd sörnu laun fyrir konur og karla á Islandi. Þá var liðin rúmlega hálf öld frá stofnun fýrsta verkalýðsfélags kvenna á landinu. Raiiðsokkurnar Með stúdentauppreisnum, blómabörn- um, vinstri bylgju og endurmad lífsgilda ’68 kynslóðarinnar risu konur upp á aftur- fæturna sem aldrei fyrr. Þær bitu í skjaldar- rendur og geistust fram með kröfur um fullt jafnrétti við karla, skilyrðislaust. Pillan gaf þeim frelsi til að skipuleggja líf sitt. Menntun gaf þeim möguleika á störfum á þeim áhugasviðunt sem þær kusu og veitti þeim víðsýni og sjálfstraust til tala sínu máli og færa rök fyrir því. Margir sigrar unnust á skömmum tíma: llýmkuð fóstur- eyðingarlöggjöf, fæðingarorlof fýrir alla, jafnrétdslög, víðtæk samstaða kvenna í allsherjarvinnustöðvun 24. október 1975. Fyrsti kvenpresturinn vígð- ur. Vigdís Finn- bogadóttir kosin for- ><'/' setí. Svona /1 r má lengi telja. Á tíu ára afmæli kvenna- frídagsins héldu konur upp á daginn í Reykja- vík meðal annars nteð því að kynna störf sín. Kom þá í Ijós að fáar starfsgreinar á landinu voru kvenmannslausar. Jatnrétliö nálgasl Á undanförnum misserum heyrast mis- háværar raddir um að bakslag sé hlaupið í framrás kvenna. Launamisrétdð er enn við lýði og konur finna fýrir andstöðu á ýms- um sviðum. Nú er erfitt tímabil í atvinnu- málum og konur eru í meirihluta þeirra at- vinnulausu. En er þetta nokkurt bakslag í jafnrétdsmálum? Ég held þvert á móti að þetta séu síðustu dreggjar gamals viðhorfs. Með tilliti til alls þess sem upp var rifjað hér á undan er staða kvenna alltaf að lag- ast. Konur eru nú að verða áberandi í ís- lensku þjóðlífi, hvort sem litið er á stjórn- unarstöður eða pólitík þótt enn séu þær í miklum minnihluta. Ég held að nú hafi konur náð að verða sá „krítíski massi“ í at- hafnalífi og áhrifastöðum sem nauðsynleg- ur er til að ekki verði aftur snúið. I dag er því yfirleitt tekið sem eðlilegum hlut að kona sé í forsvari. Þær okkar sem þekkja fýrri tíma geta borið saman viðmót- ið sent konur í stjórnunarstöðu mættu í byrjun áttunda áratugarins við nútímann. Nú gefa kannanir til kynna að fleiri vilji hafa konur sem yfirmenn en karla. Um- ræða um stöðu kvenna mætti þá ódulinni andstöðu alls þorra karla og því miður einnig ntargra kvenna. Álit Jóns landritara á hæfileikum kvenna lifði enn. Þegar rökin þraut klykktu menn út með því að segja að svo væru þessar rauðsokkur svo ljótar. Nú er þetta allt að koma. Það er vara- samt að fýllast svartsýni því svartsýnin rífur niður í stað þess að byggja upp. Þetta mega lesendur alls ekki skilja svo að við eigum að hægja á sókninni. Nú er þvert á mód svo góð undirstaða fengin að engin kona hefur afsökun fýrir því að láta bjóða sér misrétti. Karlmenn eru nú loks að taka við sér líka. Þeir eru farnir að átta sig á því mis- rétti sem felst í því að fá ekki að taka fullan þátt í uppeldi barna sinna og vera virkir til jafns við eig- - inkon- una í heim- ilislíf- inu. Nýj- ustu athugan- ir sýna að ungir karlar á Vesturlönd- um eru ekki lengur dlbúnir til að taka framabraut í viðskiptalíf- inu fram yfir börn og heimili. Þeir eru sem sagt að ná sér á strik og eru nú flestir orðn- liðtækir við brauðgerð og matseld og farnir að skiptast á eldhúsráðum um kryddtegundir og kássumall. Bclri gcöhcilsa barna litivinnaiHli mæöra I grein í Morgunblaðinu 15. maí sl. kemur fram að kannanir sýna að geðheilsa barna útivinnandi kvenna er betri en barna þeirra heimavinnandi. Guðfinna Eydal, sérfræðingur í klínískri sálarfræði, komst að þessari niðurstöðu í könnun 1981-1982. Þáverandi heilbrigðisráð lagðist gegn því að fjallað yrði um svo viðkvæmt mál sem stöðu barna heimavinnandi mæðra og hafði hljótt um niðurstöðurnar. Árin 1990-1992 gerði Einar Ingi Magn- ússon, sálfræðingur, könnun á áhrifum leikskóladvalar og atvinnuþátttöku mæðra á þroska leikskólabarna. Niðurstöðurnar voru að börn útivinnandi mæðra mælast að jafnaði þroskaðri en börn heimavinn- andi mæðra. 6

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.