19. júní


19. júní - 19.06.1994, Síða 14

19. júní - 19.06.1994, Síða 14
Reykingakona - hver ert þú? eftir Bryndísi Kristjánsdóttur Reykingakonum finnst áreiðan- lega ekki par skemmtilegt að lesa það sem hér verður sagt en þetta er þó aðeins brotabrot af öllu því neikvæða sem telja mætti upp varðandi konur og reykingar. Að undanförnu hafa reykingar kvenna minnkað hlutfallslega minna en karla og er það alvarlegt áhyggju- efni. Aróður gegn reyk- ingum hefur ekki verið nógu mikill að undan- förnu og finnst mörgum þeir taka eftir því að reykingar hafi aukist hjá unglingum, sér í lagi unglingsstúlkum. Þær hafa oft lélegri sjálfs- mynd en strákarnir og finnst þær þurfa á fleiri hjálparmeðulum að halda til að sýnast gjald- gengar. Þótt tóbaksa- uglýsingar séu ekki leyfðar í íslenskum fjöl- miðlum er aragrúi af þeim á íslenska mark- aðnum; þ.e.a.s. í erlend- um tímaritum og hverjir kaupa einkum erlend tískublöð? Unglings- stúikurnar! A síðu eftir síðu sjá þær glæsilegar ungar konur reykjandi langar, grannar sígarett- ur. Þær líta á þetta sem skýr skilaboð til sín: Þú ert flott ef þú reykir! Alltof margar grípa þá til sígaretturnar; með ofangreindum afleið- ingum í framtíðinni! Krabbameinsfélagið efndi til ráðstefnu haustið 1992 um konur og reykingar þar sem reykingar kvenna voru teknar fyrir frá ýmsum sjónarmiðum. Fyrirmyndin var ráðstefna á írlandi um þetta efni en á hana fóru nokkrar íslenskar konur og miðluðu síðan upplýsingum til kvenna sem ekki fóru. Eitt af markmiðum ráðstefnunnar var að koma á tengslum kvenna á milli svo konur gætu í sameiningu eflst í baráttunni um að hefta útbreiðslu tóbaks. Annað markmið var að það kæmi skýrt fram að verið væri að tala til kvenna um að þær hættu að reykja sjálfra sín vegna en ekki aðeins vegna annarra, eins og hefur verið tilhneiging hingað til. Og þar sem góð vísa er aldrei of oft kveðin þá ætlum við að segja frá því helsta sem fram kom hjá fyrir- lesurunum og bæta við nokkrum nýjum upplýsingum. Reykingakona! Ekki hætta að lesa - greinin er einkum ætluð þér! Ilætl við að tíðahvörl hcl jisl of sncinma Erindi Jens Guðmundssonar kvensjúk- dómalæknis varðaði áhrif reykinga á konur eftir tíðahvörf. Hann sagði að reykingar hefðu gagnger áhrif á framleiðslu hormóna hjá konum sem leiddu til þess að þær væru í mikilli hættu að fá beinþynningu. Þetta er sjúkdómur sem fer vaxandi, sérstaklega í hinum vestræna heimi, en beinmassi kvenna sem eru með þennan sjúkdóm verður smátt og smátt gisnari. Jafn- framt verða beinin stöklc- ari og konum verður því mun hættara við bein- brotum. Annað sem ger- ist er að beinin eru nú ekki nógu sterk og konan fer að síga saman og jafn- vel myndast kryppa á bakinu. Astæðan fýrir því að reykingakonur eru í meiri hættu er m.a. sú að þær eru oft grennri en konur sem ekki reykja og framleiða yfirleitt minna af östrógenum. Þær þurfa því stærri skammt af hormónum eftir tíða- hvörf til að hormónagjöf virki á sama hátt og hún gerir fyrir konur sem ekki reykja. Einnig nefndi Jens að innihald tóbaks- reyks hefði bein áhrif á beinvef án nokkurra tengsla við hormón. Konur sem reykja fara fyrr í tíðahvörf en það er annar af áhættuþáttunum varðandi beinþynningu. Að lokum kom fram að leghálskrabbamein er miklu algengara hjá reylc- ingakonum en hinum og að teldst hafi að mæla eit- urefni tóbaksreyks í slími frá leghálsi. Hjarlasjiikdóinar - rcykingar ólriilcga slcrknr álucltn|>állur Margar konur trúa því að þær séu elcki í neinni hættu að fá kransæðasjúkdóma - það séu sjúkdómar sem eingöngu hrjái karla. Þetta er elclci rétt. Guðmundur Þor- geirsson yfirlæknir fjallaði um reykingar sem áhættuþátt kransæðasjúkdóma meðal kvenna. Fram lcom að lconur hafa að vísu 14

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.