19. júní


19. júní - 19.06.1994, Side 15

19. júní - 19.06.1994, Side 15
náttúrulega vörn gegn sjúkdómnum, þ.e.a.s. östrógen hormóninn sem hefur hagstæð áhrif á blóðkerfið, en við tíðahvörf minnkar östrógen og þá geta konur komist í áhættuhópinn. Reykingar eru þó miklu hættulegri því þær virðast gera að engu hina náttúrulegu vöm kvennanna. Þær lækka svokallað gott kólestról í blóðinu sem vinnur gegn blóðfitu í æðaveggjunum. Reykingarnar virðast líka minnka virkni östrógens. Reykingar valda því að æðarnar þrengj- ast og kölkun verður. Þær stuðla öðru fremur að því að blóðflögur klumpast sam- an og valda stíflumyndun. Rannsókn sem unnin var á vegum Hjartaverndar sýndi að miklar reykingar eru ótrúlega sterkur áhættuþáttur kransæðastíflu hjá konum og að reykingar eru hlutfallslega sterkari áhættuþáttur hjá konum en körlum! Karlar sem reykja um einn pakka á dag eru í rúm- lega tvöfaldri hættu samanborið við konur sem eru í þrefaldri hættu. Því meiri reyk- ingar því meiri áhætta: karlar sem reykja meira en 25 sígarettur á dag eru í þrefaldri áhættu - en konur sem reykja jafnmikið í sjöfaldri hættu! Hætta á kransæðadauða stórreykingakonu undir 55 ára aldri er ell- efuföld miðað við karla. Sjúkdómurinn þekkist varla í þessum aldurshópi hjá kon- um sem aldrei hafa reykt. llúð rcykingakonu Guðný Guðmundsdóttir talaði um áhrif reykinga á húðina. Sagðist hún geta séð það á fólki hvort það reykti eða ekki; húð reykingafólks væri yfirleitt grófari og opn- ari því líkaminn losar sig við eiturefni tób- aksins í gegnum húðina í formi svita og úr- gangs. Reykingakonur ættu því ekki ein- göngu að hreinsa á sér húðina fyrir svefninn, heldur líka á morgnana, þar sem líkaminn hafi notað nóttina til að losa sig við eiturefni dagsins á undan. Reykingar minnka blóðflæði æðakerfis líkamans og er húðin þar engin undan- tekning. Þetta hefur margs konar óæskileg áhrif á húðina, m.a. þornar húðin mun fyrr og húð reykingakonu verður því fyrr hrukkótt en hinna. Eitt fyrsta einkennið sem flestir þekkja eru hrukkurnar í kringum munninn sem ein- kenna reykingakonur. Húð- litur reykingafólks er líka verri, oft er hann grár sem varla þykir ákjósanlegasti andlitsliturinn. Reykingar eyða líka fyrr en ella mörg- um bætiefnum úr líkaman- um, meðal þeirra eru svo- kölluð andoxunarefni sem hægja á öldrun — en áreiðan- lega vilja fæstar konur flýta fyrir Elli kerlingu! A reyklausa deginum í ár var að sjálfsögðu fjallað mik- ið um afleiðingar reykinga í fjölmiðlunum og m.a. kom fram að reykingafólki er fjórfalt hættara við að fá sór- íasis eða exem um allan kroppinn og einnig springa háræðarnar frekar í andliti reykingafólks en hinna — og það finnst fáum konum æskilegt. Ólauldu höniin og reykingar Margar reykingakonur hætta að reykja á meðan þær ganga með barn - barnsins vegna. En óæskileg áhrif reykinga á meðgöngu geta ekki síður verið hættuleg konunni en hinu ófædda barni! Þetta var megininntakið í fyrirlestri þeirra Sigurbjargar Ólafsdóttur og Gígju Sveinsdóttur, hjúkrunarfræðings og ljósmóður, sem við birtum útdrátt úr og bætum nokkru við. Allar konur hafa heyrt að börn reykinga- kvenna eru að meðaltali talsvert léttari en börn hinna - og þær mega ekki láta sögur um einstaka stórt barn reykingakonu aftra sér frá því að hætta að reykja á meðgöngu. ■ Þú ert konan sem mengar andrúmsloftið sem við hin eigum að draga að okkur - líka ófædda barnið í kviði konunnar við hlið pér. Þú ert konan sem er hættara við beinpynn- ingu en konunni sem ekki reykir. ■ Þú ert konan sem er að næra ófætt barn sitt á niktótíni. ■ Þú ert konan sem er að gera húð sína elli- legri og verri en hún væri efpú reyktir ekki. ■ Þú ert konan sem nærir nýfætt barn sitt á nikótínmengaðri móðurmjólk. ■ Þú ert konan sem er ekkert flottari í útliti pótt pú sért með sígarettu. ■ Þú ert konan sem átt á hættu að fá sóríasis. ■ Þú ert konan sem börn og unglingar taka sér til fyrirmyndar. ■ Þú ert konan sem átt á hættu að deyja í blóma lífsins afvöldum lungnakrabbameins. ■ Þú ert stórreykingakonan sem er í sjöfalt meiri hættu en stórreykingakarl að fá krans- æðastíflu. ■ Þú ert konan sem er ekkert grennri pótt pú reykir. ■ Þú ert konan sem er miklu hættara við leg- hálskrabbameini en konunni sem ekki reykir. ■ Fyrst og fremst ert pú konan sem fer illa með pennan eina líkama sem pú átt og ert pví sjálfri pér verst! PUNKTA- FRÉTTIR Stuðla stjórnvöld á Ungfrú Alhcimur var Filippseyjum að vali,n með PomP °s prakt a dögunum a vændi? r i- rilippseyjum og var að vonum mikið um dýrðir eftir langan og strangan undirbúning. Indversk fegurðardís hreppti hnossið að þessu sinni. En eins og fyrri daginn voru ekki allir á eitt sáttir um ágæti þessarar samkeppni og ekki fór á milli mála hvers sinnis filippínski femínistahóp- urinn Gabricla er en hann lýsti svo áliti sínu fréttabréfi: „Ríkisstjórn Ramosar endasendist í stöðu hórmangara heimsins,“ segir þar. Dýrt að eiga af- Þeir sem áttu afmæli mæli á vitlausum t’ann 1 apríl í'ðast!ið , inn, sem var föstudag- ® " urinn langi, og vildu halda upp á það í einhverjum af útleigðum veislusölum borgarinnar, þurftu að greiða Iög- reglunni í Reykjavík 5.000 krónur í leyfisgjald vegna vínveitinga. Auk þess þurftu þeir að greiða 3.600 krónur til Tollstjóra, það er 2.700 krónur í skemmtanaskatt - og 900 krónur í prentkostnað! IJcssi gjaldtaka á afmælisbörn er óneitanlega hressileg en mun falla undir skil- greininguna „tækifærisvínveitingaleyfi“ og byggj- ast á lögum frá 1991 um sértekjur til ríkissjóðs. Ekki þarf að taka það fram að flest afmælis- börn spyrja hvorki kóng né prest heldur halda bara veisluna eins og þeim sýnist. En ef einhver er svo óheppinn að spyrjast fyrir um leyfi og gjöld er þetta útkoman. Þjóðhátíðarbúning- Þjóðbúningur (s- ur fyrir karla lenskra kvenna hefur löngum notið virðing- ar, síðustu áratugina svo mikillar að fáar konur liafa treyst sér til að bera hann. En á 50 ára lýð- vcldisafmæli þjóðarinnar hafa konur svo sannar- lega tekið við sér og hafa margar saumað sér búninga til að bera í tilefni hátíðarhaldanna 17. júní og væntanlega framvegis við hátíðleg tæki- færi. í tilefni afmælisins hefur verið bryddað upp á þeirri nýjung að leita eftir hugmyndum að þjóð- hátíðarbúningum fyrir karla. Hefur verið efnt til samkeppni um útlit og hönnun og bárust hátt í 60 tillögur. Gera aðstandendur sér jafnvel vonir um að þarna lcynist einhver uppástunga að var- anlegum þjóðbúningi íslenskra karla. Verður fáninn 1>cgar minnst cr notaður í ^immtlu ara a^mæhs . _ hins íslenska lýðveldis auglysingum? nýtur þjóðfáninn meiri vinsælda en kannski nokkru sinni fyrr. Flaggstengur og fánar í öllum stærðum hafa selst grimmt og virðast flestir vilja sýna hug sinn í verki mcð því að draga sem víðast að húni bláa fánann okkar með hvíta og rauða krossinum. í landinu gilda lög um meðferð og notkun ís- lenska fánans og þar er t.d. sérstaklega tekið fram að óheimilt sé að nota þjóðfanann á umbúðir eða í auglýsingar á vörum. Þessu telja sumir að tíma- bært sé að breyta, þetta ákvæði eigi ekki lengur við rök að styðjast og íslenskar gæðavörur sem séu ætl- aðar til útflutnings eigi að bera glögg einkenni ís- Iands. Mælir Allsherjarnefnd Alþingis með því að lög um þjóðfánann verði endurskoðuð og sérstak- lega hugað að þessu atriði. 15

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.