19. júní


19. júní - 19.06.1994, Qupperneq 34

19. júní - 19.06.1994, Qupperneq 34
til að vekja athygli á konum og því sem þær voru að gera í listum og menningu. Það voru haldnar menningarvökur með heilmikilli viðhöfn til þess að koma konum á framfæri, kynna þær og félagið í leiðinni“ segir Jónína. Hún segir að þetta hafi haft áhrif á sínum tíma en nú sé fjöldi kvenna í listsköpun orðinn svo mikill að svona að- ferðir eigi ekki lengur við. „Kvennafrídagurinn 1974 kveikti ærlega í mér á sínunt tíma, þá var svo augljóst hvað konur hér á landi voru skammt á veg komnar á mörgum sviðum borið saman við nágrannaþjóðir okkar, ekki síst í stjórn- málum. Þá sátu aðeins þrjár konur á þingi og höfðu gert lengi. Þessi mynd hefur stór- lega breyst, einkum í stærri sveitarstjórnum og í Reykjavík. En það sem æpti þó á mann enn meir á þessum árum var ójöfn aðstaða þeirra kvenna sem vildu fara út á vinnumarkað, bæði vegna Iágra launa og ófullnægjandi aðstöðu fyrir börn útivinn- andi kvenna. Og því miður er ekki hægt að segja að á þessu hafi orðið nein umtalsverð breyting þrátt fyrir tuttugu ára baráttu, sér- staklega hvað launin varðar. I'rá |)(‘ssu límabili cr niargs að minnast. Það var skemmtilegt að vinna að því sem gert var í lok kvennaártugarins. Mér var falið að ritstýra bók sem heitir Konur hvað mí? - þar var farið yfir áratuginn og metinn árangur á öllum sviðum, kvenna- smiðja var sett á laggirnar °g * lokin var kvennafrídagurinn endurtekinn. Allt tókst þetta vel og það var skemmtilegt og gef- andi að taka þátt í þessu. Dagurinn þegar haldið var upp á 75 ára afmæli kosninga- réttar er minnisstæður í mínum huga. Há- tíðahöldin og fundurinn um kvöldið tók- ust mjög vel og það var ánægjulegt að fá bandaríska fyrirlesarann og kvenréttinda- konuna Betty Friedan í heimsókn til að tengja okkur við umheiminn enn betur. Þessum atburðum tengdist ég sjálf og og því eru þeir mér kannski hugstæðari en ýmislegt annað. Margt hefur vissulega breyst í málefnum kvenna á þessum 15 árum. Eftirminnilegt er þegar Vigdís var kjörin forseti og Kvennalistinn kom fram og vissulega hefur staða kvenna í stjórnmálum breyst við það. Raust kvenna var farin að heyrast upp úr 1970 og ég var sammála þeim rómi þó ég stæði álengdar. Sjálf varð ég ekki virk fyrr en eftir Kvennafrídaginn, þá rann upp fyrir mér ljós. í raun áttar maður sig ekki fyrr en málin fara að snerta fjölskylduna Þess vegna er erfitt að fá ungar konur til að taka þátt í kvennabaráttunni, það er ekki fyrr en vandamálið brennur á þeirra eigin skinni að þær vakna til vitundar - sjá að allt er ekki eins og það á að vera. Þær hafa Iokið námi og fjölskyldan stækkað og þá eru þær oft króaðar af. Það vantar eitthvað — samfélagið stendur ekki með þeim. I dag skynja ég ýmislegt sem bendir til afturhvarfs. í fréttaflutningi t.d. er í dag mikið lagt upp úr útliti kvenna. Fegurðar- samkeppni og umræða um hana er áber- andi og blúndunærfötin eru auglýst enda- laust — ekki svo að skilja að ég sé á móti kvenleikanum heldur skynja ég hættu í því að það er eins og verið sé að koma því inn hjá ungum konum að þær eigi aðallega að vera til skrauts. Það virðist líka í gangi lymskulegur áróður gegn útivinnu mæðra og nægir þar að benda á hvað Penelope Leach, breski uppeldisfræðingurinn, fær mikla athygli fjölmiðla. Einnig blasir það við að þrátt fyrir aukna menntun kvenna skilar hún sér ekki í launum þegar út í at- vinnulífið er komið. Það er raunalegt að horfast í augu við það að launamunur skuli aukast þrátt fyrir aukna menntun kvenna. Jöfnuður milli karla og kvenna er mestur í lægst launuðu störfunum. Þetta vitum við og þetta segja launakannanir okkur. Með- an kona hefur lægri laun en eiginmaðurinn er ekki undarlegt að starfsframi hennar hafi ekki forgang innan fjölskyldunnar." Kosningabaráttan að þessu sinni hefur aukið Jónínu bjartsýni. Hún segir það ánægjulegt að sjá að málefni sem konur hafa alla tíð barist fyrir, hin svokölluðu mjúku mál, skuli hafa verið efst á forgangslistum beggja framboðanna í Reykjavík. Það hafi loks runnið upp fyrir þeim sem hafa farið með völdin að annað og betra skipulag í dagvistar- og skólamálum muni skila sér til fjölskyldunnar og þá sérstaklega lcvenna. Og það er sannfæring Jónínu að þegar til lengd- ar lætur á þetta eftir að skila sér í bættum hag á mörgum sviðum öðrum. „Þetta eru tímamót því Reykjavík er leiðandi í þessum málum og kosningabar- áttan að þessu sinni var gífurlegur sigur fyrir mörg þau mál sem við berjumst fyrir innan Kvenréttindafélagsins. Það er óhugs- andi að kosningabaráttan hefði snúist um mjúku málin fyrir 15 árum.“ Málstaður kvenna hefur fengið byr! 34

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.