Sólskin - 01.07.1933, Qupperneq 36
þeir á mjög lágu menningarstigi. Það sést á stein-
áhöldum, sem fundist hafa eftir þá. Þeir kunnu
ekki að skefta hamar eða öxi. Þeir lærðu aldrei
að búa til boga. Þeir áttu ekki hús og gengu
klæðlausir; en eldinn hafa þeir notað.
Daglegt líf fyrir 100 þúsund árum.
Steináhöldin, bein, aska og fleira, sem geymst
hefir í jarðlögunum, gefur dálitla hugmynd um
lifnaðarhætti Neanderdalsmanna. Hér á eftir fer
stutt lýsing á daglegu lífi þeirra, eins og giskað er
á að það hafi verið.
Á kvöldin bjó fjölskyldan til hreiður eða skýli
úr greinum og blöðum. öldungurinn hélt vörð.
Hann var sterkastur allra í flokknum og hafði
stærstar og hvassastar tennur. Þegar sólin kom
upp, fór flokkurinn á kreik að safna fæðu. Þessir
menn áttu hvorki kýr né kindur eða önnur húsdýr.
Ekltert ræktuðu þeir heldur. Á hverjum degi urðu
þeir að safna sér mat. Konur, börn og unglingar
önnuðust það. Þau söfnuðu eggjum, aldinum, skel-
dýrum, skordýrum og jurtarótum. Allt var etið,
sem tönn á festi og hægt var að ráða við.
öldungurinn var eini fullorðni karlmaðurinn í
flokknum. Hann fann mjög til máttar síns og lét
þegna sína eða heimilisfólk óspart kenna á valdi
sínu. Konurnar færðu honum ætið, sem þær höfðu
safnað. Hann tók allt það besta. Ef hann var ekki
ánægður með matinn, varð hann hamslaus af
reiði og barði fólk sitt vægðarlaust.
Þegar hann sá, að drengimir voru að ná full-
34