Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.05.1886, Qupperneq 16

Sameiningin - 01.05.1886, Qupperneq 16
—48— Stcinninn frá Kana. í Elatea á Grikklandi hefir frakkneskr fornfrœðingr nokk' ur fyrir skömmu grafið upp úr jörðu, ]>ar sem kristin kirkja hefir áðr staðið, hellustein einn aflangan og ferhyrndan úr marmara með grisku letri á jjessa efnis : ,,J>etta er steinninn frá Kana í Galílea, |>ar sem drottinn vor Jesús ICristr breytti vatninu í vín“. J>ess er til getið, að upp við þennan steinkodda hafi drottinn hallað sér, J>á er hann var að borðhaldi við brúðkaupið í Kana, og hafi letrið verið á hann sett, J>á er hann ásamt ýmsum öðrum helgum fornmenjum, snertandi hið fyrsta kraftaverk frelsarans, var fluttr j>aðan í burtu. Auk letrs J>ess, sem Jegar er nefnt, er og J>etta á hann ritað einnig á griskri tungu: „Minnstu, drottinn, fóður míns og móður minnar. Antoníos“. Undir lok 6. aldar var uppi maðr sá, er hét Antonin de Plaisance, sem fór pílagrímsferð úr Evrópu til Gyðingalands, og ritaði á latínu um þessa fór sína. J>að rit er enn til og stendr ]>ar J>etta i: ,,Vér komum til Kana, J>ar sem drottinn var við brúðkaupiö, og hölluðum vér oss upp að sama hœgindinu, og reit eg óverðugr ]>ar á nöfn foreldra minna“. J>ykir J>á sýnt, hver sá ,,Antoníos“ hafi verið, er á steininum stendr. Ætlan frœðimanna er, að steinn J>essi hafi fyrst verið fluttr frá Kana til Konstantínopel eins og svo margar helgar fornmenjar frá austrlöndum, og J>aðan aftr, J>á er sú borg féll í hendr Tyrkja, til J>ess staðar, J>ar sem hann hefir nú fundizt, og að J>ar hafi hin kristna kirkja veriö yfir hann reist, er rústirnar fundust af. Séra forvaklr Böðvarsson í Saurbœ á Hvalij. str. hefir fengið lausn frá prestsembætti. I hans stað séra Jón Benediktsson í Görðum gjörðr prestr í Saurbæ. Séra Brynjólfr Jónsson á Hofi í Álftafirðigjörðr prestr að Ólafsvöllum. Séra Páll Jónsson i Viðvík og séra Halldór Jónsson í Tröllatungu fengið lausn. Séra Finnbogi Rútr Magnússon gjörðr prestr í Húsavík, |>íng. Lögin um réttindi utanj>jóðkirkjumanna nú staðfest af konungi. Ný kirkja á að koma upp á Eyrarbakka. Stokkseyrarkirkju J>ó haldið eins fyrir ]>vi. I ofveðrinu 7. Jan., sem œddi yfir allt austrland og gjörði stór-tjón, fauk Kálfafellsstaðarkirkja. Hver einstakr söfnuðr kirkjufélags vors er hér með áminntr um að út- vega nákvæma og alveg áreiðanlega skýrslu um tölu skírðra og fermdra með. lima hans eins og hún er mí og senda hana með fulltrúa eða fulltrúum sínum á ársfund. Fulltrúar sumir geta misst sæti á árs'undi, ef þetta er vanrœkt. Winnipeg, 30 Apr. 1886. Jón Bjarnason, Jorrn. h. cv. lút. k. kjufél. Isl. í Vh. í kirkjufélagssjóð borgaö til mín eftir 8. Marz: frá Fríkirkjusöfnuöi $. 6. 75, frá Nyrðra Víðines-söfnuði $1. 60, frá Winnipeg-söfnuöi $ 15. 00. Winnipeg, 11. Maí 1886. Árni Friöriksson, kirkjufél.-féhirðir. “SAMEININGIN” kemr út mánaðarlega, 12 nr. á ári. Verð í Vestrheim; $1.00 árg. ; greiðist fyrirfram.—Skrifstofa blaðsins : 190 Jemima Str., Winnipeg, Manitoba, Canada.—Útgáfunefnd : Baldvin L. Baldvinsson, Jón Bjarnason (ritstj.J, Friðjón Friðriksson og Páll S. Bardal (féhirðir). Prentað hjáMcIntyre Bros., Winnipeg, af Bergvin Jónssyni.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.