Sameiningin - 01.08.1887, Page 9
—73—
Frá ÁrnessöfnuSi og Mikleyjarsöfnuði vantaði skýrslu.
Nefnd sú, er kosin var á kirkjuþinginu næstl. sumar til þess
aS yfirskoða grundvallarlögin o. s. frv., lagði fram ávarp til
forseta þannig orðað:
„Herra forseti!
Vér, sem kosnir vorum í nefnd á síðasta kirkjuþingi til
þess að yfirskoða og endrbœta grundvallarlög kirkjufélagsins
og til að semja nýtt frumvarp til safnaðarlaga, er síðan gæti
orðið viðtekið af söfnuöunum með þeim breytingum, er hver
einstakr söfnuðr kynni að álíta nauðsynlegar, og til að íhuga
tvö mál, er ekki var tími til að rreða á kirlcjuþinginu, málið
um kirltjuaga og málið um heígidagahald,—höfum haldið tvo
fundi til að vinna þetta ætlunar verk vort, annan á næst liönum
vetri, en hinn frá 18.-21. Júní, háða í Winnipeg, og leyfum oss nú
virðingarfyllst að leggja fram fyrir yðr, herra forseti, árangr
starfs vors eins og nú skal greina :
I. Frumvarp til breytinga á grundvallarlögum kirkjufé-
lagsins;
II. Frumvarp til safnaðarlaga ;
III. Fundarreglur eða þingsköp fyrir kirkjuþingið.
Hvað málunum um lcirkjuaga og helgidagahald viðvíkr,
]);í hefir ekki tíminn leyft nefndinni að taka þau til nákvæmrar
í hugunar, en hún ræðr þinginu að taka þau til meöferðar. Kirkju-
agamálið álítr nefndin þó að naumast muni geta fengið önn-
ur úrslit en þau, sem frumvarpið til safnaðarlaganna bendir til.“
Ólafr Ólafsson. M. Pálsson. Friðrik J. Bergmann.
Jón Bjarnason. Fr. Friðriksson.
Magnús Pálson las upp frumvarp til fundarreglna eð þing-
sköp fyrir kirkjuþingið, og stakk uppá, að fundrinn sam-
þykkti frumvarpið sem bráðabyrgðarreglur fyrir þennan fund,
en frestaði umrœðum um það þangaö til seinna á fundinum.
Séra Fr. Bergmann kom með þá breytingartillögu : „Fundr-
inn rreðir og lcitar atkvæða um þingsköpin kafia eftir kafla og
að því húnu annaðhvort her þau upp til endilegra samþykkta
eða samþykkir þau einungis til bráðabyrgða“.
Breytingartiliaga þessi var horin undir atkvæði og sam
þyk kt.