Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1887, Page 16

Sameiningin - 01.08.1887, Page 16
80 Fundargjörð t'rá deginum áðr lesin af skrifara upp og sam- þykkt. Stefán Gunnarsson lagði það til: „Kirkjufundrinn votti sóra Friðrik J. Bergmann þakklæti sitt íyrir hinn ágæta fyr- irlestr lmns í gærkvöld l) með almennri atkvæðagreiðslu". það var gjört í einu hljóði. Nefnd sú, er kosin var til að raða niðr fundarmálum, kom fram með fyrir liggjandi fundarmál og hat'ði raðað þeim þannig: 1. Helgidagahald, 2. Fermingin, 3. Aukalög íyrir félagið, 4. „Sameiningin" og Barnablað, 5. Fjárhagsmál félagsins, ö. Sunnudagsskólinn, 7. Bindindi, 8. Avai’p til utanþjóðkirkju- manna á Islandi, 9. Kirkjugarðsmál. Málið um helgidagahald var þá tekið fyrir. Ef'tir að mál þetta hafði verið rœtt af prestunum og Fr. Friðrikssyni lagði séra Friðrik Bergmann það til, að því yrði vísað í 3 manna nefnd, og var það samþykkt. Forseti út nefndi þessa menn í nefndina: séra Fr. J. Berg- mann, Fr. Friðriksson og ólaf Ólafsson, og skyldi þeir leggja frarn álit sitt í þessu máli næsta dag eftir miðjan dag. þá var tekið fyrir fermingarmálið og íiutti séra Fr. J. Berg- mann það inn á fund. Fundi frestað til kl. 2 e. m. Fundr kom saman á til teknum tíma. Allir fundarmenn við staddir. Herra Friðrik Jóhannesson bað um leyti til að ganga af íundi litla stund vegna nauðsynlegra erinda, og veitti þingið það mótmælalaust. Umrœðunum uin fermingarmálið var þá haldið á fram nokkurn tíma af séra Jóni Bjarnasyni. E. H. Bergmann lagði það til að umrœðum væri hætt og málinu vísað til 5 manna nefndar, og var þaðsamþykkt. Jafn- framt benti liann á prestana sem sjáfsagða í nefndina. Forseti út nefndi þessa inenn í nefnd: Séra Fr. J. Berg- iriann, séra Jón Bjarnason, þorlák Jónsson, Friðbjörn Björnsson og Magnús Pálsson. 1) Efni hans var : ,,Hin undarlega bók“.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.