Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.10.1887, Qupperneq 2

Sameiningin - 01.10.1887, Qupperneq 2
114— af því það hefir meira eða minna ljóst vakað fyrir fólki voru, að án kirkjulegs félagsskapar lægi opinn andlegr dauði fyrir hinurn sundraða þjóðflokki vorum hér, eins víst eins og hin egypzka ánauð hefði gjört út af við Israelsmenn, ef þeir hefði ekivi með drottin fyrir leiðtoga flúið burtu úr þrældómshús- inu. Yér erum komnir á stað með hinn kirkjulega félagsskap vorn tir fyrstu sporunum ; vér viðrkennum guðs orð sem sameig- inlegan vegvísi; vér horfum allir á skýstólpann fyrir framan oss og segjum eins og með einum munni: „Honum skul- um vér fylgja, því þá liöfum vér frelsarann hjá oss“. En nú minnir textinn oss á einn ómissanda sannleik, sem þeim, er sleg- ið liafa bihlíuorðinu upp sem merki sínu, má aldrei gleymast. Skýið, sem drottinn bjó í og sem Israelsmenn höfðu fyrir vernd og leiðtoga, var myrkt annars vegar, en bjart hinu megin, þá er það nam staðar við strönd Rauða hafsins á milli herskara Israelsmanna og herliðs Egypta. það var koldimmt þeim megin, er sneri að Egyptum, bjart eins og ljós þeim megin, er að ís- raelsmönnum vissi. Hið sama ský, þar sem sjálfr drottinn dýrðarinnar býr, kemr með biksvart myrkr, svartara en nokk- urt náttúrlegt náttmyrkr, til Egypta, en til ísraelsmanna með svo mikla birtu, að það upp lýsir fyrir þeim nóttina. Öðru megin dimm nótt, hinu megin svo gott sem bjartr dagr. Hvað þýðir þetta fyrir oss ? það þýðir óendanlega mikið. það þýðir það, að þegar vantrúin eða hin dauða trú, trúin, sem vantar kærleikann til guðs, horfir á guðs opinberaða orð, þá sér hún ekkert nema tómt myrk r í þessu orði; en þegar trúin, lifandi trú, sem í sannleika elskar drottin, horfir á það, þá ljómarjþað- an himnesk birta, svo nóttin verðr eins og dagr. Yér gætum spurt: Hvernig víkr því við, að guðs opinberaða orð er út breitt að heita má um allan heim og kærleiksopinberan guðs í Jesú Kristi þar af leiðanda blasir við fólki svo að segja um öll lönd jarðarinnar, og þó sitr ara-grúi af inannssálum, er hefir þetta fyrir augunum, vitanlega í andlegu t’lliti í dimmum dal og dauðans skugga, og það er eins og þessir mörgu hafi í raun og veru ekkert ljós á veguin sínum ? Hví er svo óendanlega mikið af hræðilegu syndamyrkri ráðanda og ríkjanda innan sjálfrar kirkjunnar einnig þar, sem ómenguðu kristindómsorði er á lofti haldið og hinum kristna almenningi kemr saman um að játa hreinan lærdóm guðs opinberuðu orða ? Fólkið í

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.