Sameiningin - 01.10.1887, Blaðsíða 12
—124—
I innganginutn til útskýringar sinnar á sunnudagsskóla-
lexíunni úr 2. Mós 14, 19-31 um för Israelsmanna yfir RauSa
haíiS segir Philadelphia Sunday School Times: „Um leiö og
þeir (ísraelsmenn) fóru á staö, báðu þeir Egypta um—báðu
u m , en ekki: 1 á n u ð u af þeim, eins og stendr í hinni gömlu
ensku biblíuútlegging vorri—hinar vanalegu gjafir eða „balcsjís",
sem öll hjú í austrlöndum eða gestir við burtför sína hafa rétt
til að fá. ,Og drottinn veitti fólkinu þá náð fyrir augum Egypta,
að þeir létu þá fá það, sem þeir báðu um', svo ríkulega, að Hebre-
ar höfðu með sér svo miklar gjafir, þá er þeir fóru burt, eins
og það væri herfang, er þeir hefði unnið af fjandmönnum sín-
um í bardaga."
I hinni íslenzku biblíuútlegging verðr eigi annað séð, fremr
en í gömlu biblíuútleggingunni ensku, en að ísraelsmenn hafi
tekið þá dýrgripi, er Egyptar létu þá fá áðr en þeir fóru burt úr
landi þeirra, að láni (2. Mós. 3, 21-22; 11, 2-3 ; 12, 35-36). Og
líkt mun standa í mörgum eldri biblíuútleggingum á öðrum
tungumálum. A þessu hefir Kristofer Janson ekki varað sig,
þegar hann í andmælum sínum í „Heimskringlu" nr. 19 gegn því,
er í ,,Sam.“ nr. 2 var sagt um hinar íslenzkuðu rœður hans, seg-
ir, að guð samkvæmt frásögunni í gamla testamentinu hafi „boð-
ið Gyðingum að ljúga og síðan að stela af Egyptalandsmönn-
um“. þetta sýnir meðal annars, hve lítið Janson hefir rann-
sakað textann í biblíunni áðr en hann reis til andmæla gegn
því, er þar er kennt.
---------o*o*o--------
í „Sam.“ I, 10 minntust vér á Stall’s Lutheran Year-Book
svo sem það tímarit, er mestan fróðleik hefir að fœra viðvíkj-
andi ástœðum, vexti og framkvæmdum lútersku kirkjunnar.
það kemr nú út fjórum sinnum á ári, kostar 50 cts., og er frá-
gangrinn á því allt af að verða vandaðri. Tveimr seinustu heft-
unum fyrir þetta ár hetír þó verið slegið satnan. þetta tvöfalda
hefti á nærri því hundrað blaðsíðuin hefir inni að halda 133
myndir af lúterskum skólum, kirkjum, munaðarlevsingjahúsum
og öðrum merkilegum stofnunnm, sem kirkja vor í þessu landi
hefir komið upp, svo og af einstökum merkum kennimönnum
og kristniboðum þeirrar kirkju. Lesmál er ekkert í þessu hefti;
það er tómt myndasafn, eins konar lúterskt „album“, snotrt og