Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1887, Blaðsíða 13

Sameiningin - 01.10.1887, Blaðsíða 13
—125 smekklegt, og hefir það kostaö $2000 að skera mynclir þessar í tré til undirbúnings undir prentan þeirra. Verðið á mynda- hefti þessu einstöku er þó að eins 25 cts. það fæst hjá iitgef- andanum Sylvanus Stall, presti í Lancaster, Pennsylvania. -mm------► •— —•-«----------m*- Suin íslenzku blöðin gjöra sér einkennilegan mat úr því, að séra Magnús Skaftasen reif sig upp úr hallærinu og hungr- dauðanum heima og tíutti hingað vestr upp á köllunina til prest- skapar, setn hann síðast liðinn vetr fékk frá söfnuðunum í Nýja íslandi. „ísafold" segir, að hann hafi strokið af landi burt, og „Fjallkonan" tekr í líkan streng. Hinir kirkjulegu yfirmenn séra Magnúsar eiga ekki að hafa haft neina hugmynd um burt- för hans fyr en hann var kominn á leiðina. Að hin kirkju- legu yfirvöld hafi vitað um að séra Magnús ætlaði vestr löngu áðr en hann fór, þarf nú ekki að sanna, því það var alkunn- ugt um endilangan Skagafjörð og Húnavatnssýslu og jafnvel í Reykjavík þegar í vetr. Blöðin gjöra háð að því, að hann missti nálega allar skepnur sínar í harðindunum og stóð þvi nær gjör- samlega allslaus uppi, þá er síðasti vetr var genginn úr garði. það er sama sem að gjöra háð að eignatjóni því og hörmunga- ástandi, sem harðindin og illviðrin hafa af sér getið svo víða heima á þessu síðasta ári. Sérstaklega hefði betr farið á því, að „ísafold“ hefði þagað um það, að einn íslenzkr embættismaðr hefði „flosnað upp til fulls og alls á þessu vori“, af því að það er svo átakanleg sönnun fyrir því, sem hún hefir verið að reyna til að bera á móti, að veruleg hallærisneyð sé nú á Islandi. Séra Magnús var vitanlega á kveðinn í því að fara hingað vestr áðr cn gripir hans féllu. Hefði það ekki komið fyrir hann, eins og svo marga aðra allt í kring um hann, þá hefði hann getað skil- að prestakallinu því fé, sem það átti inni hjá honum, og hefði eflaust gjört það. „Isafold“ segir, að prófastr liafi fengið skrif- lega afhending frá lionum í því hann var að fara á öllum eft- ir skildum eigum hans. Og hann virðist hafa skilið eftir hvert eyrisvirði, sem hann átti, því fargjaldið fyrir konu hans og börn hingað til lands kom frá söfnuðunum hér, sem höfðu kallað hann. það, sem blöðunum sárnar mest, skyldi það annars virki- lega vera skaðinn, sem prestakallið hefir beðið við gripafelli séra Magnúsar og almennings á þeim stöðvum, og ekki öllu heldr

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.