Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.10.1887, Side 4

Sameiningin - 01.10.1887, Side 4
116— nólpnu og hinum glötuðu, þessuni banvænn eimrtil dauða, hinum lífgandi ilmr til lífs“. Eg heyri, hvað öldungrinn Símeon sagði af spámannlegri andagift, þá er hann hélt á frelsaranum nýfœddum í örmum sínum í musterinu í Jerúsalem : „þessi er settr til að verða mörgum í Israel til falls og mörgum til viðreisnar og til að verða það tákn, er á móti verðr mælt“ (Lúk. 2, 34). Og enn fremr heyri eg, hvað Jesús sjálfr segir í Matt. 21, 44 ; „Hver sem fellr á stein þennan (hann á við sjálfan sig), mun sig slasa, en á hvern sem steinninn fellr, þann mun hann merja“. Svo það eru engar öfgar, sem eg sagði, að drottinn kœmi ávallt með lífið í annarri hendinni og dauðann í hinni. Til hverra kemr hann þá með dauðann ? Til allra þeirra, sem standa í spor- um Egypta, þar sem þeir horfðu á skýstólpann milli sín og Israelsmanna. Og þá kemr þessi alvarlega spurning til hvers einasta mannsbarns í söfnuðum vorum og kirkjufélagi, en með allra mestri áherzlu til hvers einstaks af oss, sem höfum sér- staka köllun til að vinna fyrir kirkju vora: Snýr hin bjarta og blíða hlið kristindóms-opinberunarinnar að þér, ellegar stendr þú hinu megin og sér svo ekkeit annað en dimmt og hugg- unarlaust dauðamyrkr ? Mér er elcki nóg, þó að skýstólpinn sé fyr- ir íraman mig, ef sú hlið hans, er að mér snýr, er dimm. Guði er það ekki nóg, þó að menn trúi því, að hann sé í skýinu, ef menn ekki standa þeim megin við það, er frá því leggr hugg- andi og endrleysandi birtu út yfir eyðimörk lífsins og haf dauð- ans. Hvar sem kirkjan eða flokkr þeirra, er játa nafnið drott- ins er á ferð, þar má líka sjá herfiokk Faraós úti, til þess að veita hinum eftirför. Vantrúarinennirnir utan kirkjunnar sam- gilda hermönnum Faraós til forna. Óneitanlega getr hinni veik- liðuðu íslenzku kirkju vorri hér staðið hætta af þeim ; en eg er langt um hræddari um annað fyrir oss. Um hvað ? Um það, að vér, sem segjumst trúa hinni kristilegu opinberan, -vér, sem höfum slegið því föstu, að guðs opinberaða orð skuli vera andlegr leið- togi vor, vér kirkjunnar eigin menn, lítum einatt á kristin- dómsopinberanina með sömu augum og Egyptar litu á hið yfir- náttúrlega ský. Eg er svo hræddr um það, að vér tökum oss stöðu við hina dimmu hlið skýstólpans, og svo breiðum vér þá myrkr og dauða, i staðinn fyrir ljós og líf, út meðal fólksins, sem oss er samferða á vegi vorum. Eg er svo hræddr við hina dauðu trú, kraftlausan kærleiks-snauðan vanakristindóm, hjá

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.