Fréttablaðið - 10.12.2010, Qupperneq 4
4 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR
SAGNFRÆÐI Íslenski Kommúnistaflokkur-
inn sendi samtals 24 Íslendinga í
byltingar nám í Sovétríkjunum á átta ára
tímabili á fjórða áratug síðustu aldar,
nítján karlmenn og fimm konur. Þetta
kemur fram í bókinni Sovét-Ísland óska-
landið eftir sagnfræðinginn Þór White-
head sem út er komin.
Enginn þeirra sem sagt hafa sína sögu
af dvölinni í Sovétríkjunum hefur stað-
fest að hafa verið þjálfaður í hernaði og
neðanjarðarstarfsemi. Fram kemur í bók
Þórs að hvorutveggja hafi verið á náms-
skránni og fátt bendi til þess að íslensku
nemendurnir hafi verið undanþegnir
þeim æfingum.
Kommúnistaflokkurinn kom sér upp
bardagaliði vopnuðu bareflum úr tré og
járni við upphaf fjórða áratugarins. Bar-
dagaliðið var lengst af fjölmennara en
lögreglulið Reykjavíkurborgar, sem á
þessum tíma taldi 28 lögreglumenn.
Harður kjarni flokksmanna í Komm-
únistaflokknum bjóst skotvopnum. Harð-
asti kjarninn úr flokknum taldi sumarið
1932, stuttu fyrir þriðja og fjórða Gúttó-
slaginn, að hér gæti komið upp ástand
sem jaðraði við byltingarástand. Þeir
leituðu til Alþjóðasambands kommúnista
og óskuðu eftir fyrirmælum um hvernig
skyldi bregðast við slíku ástandi.
Kommúnistaflokkurinn vann skipu-
lega að því að ná því markmiði sínu að
beina stjórnmálaástandinu á Íslandi í
átt til byltingar. Alþjóðasambandið gaf
flokknum fyrirmæli um að beita lög-
reglumenn ofbeldi og virða hvorki lög né
reglur.
Þó að ofbeldisöldu sem Kommúnista-
flokkurinn stóð fyrir á árunum 1930
til 1934 hafi slotað með nýrri línu frá
Moskvu árið 1935 hélt Kommúnista-
flokkurinn áfram að vinna að byltingu
í landinu. Flokkurinn vildi byltingu í
áföngum frekar en í einni svipan. Arf-
taki flokksins, Sósíalistaflokkurinn, tók
þá stefnu upp og fylgdi meðal annars í
stjórnarsamstarfi árið 1944, að því er
segir í bók Þórs. brjann@frettabladid.is
Í herþjálfun í Sovétríkjunum
Alls fóru 24 félagar í íslenska Kommúnistaflokknum í byltingarnám til Sovétríkjanna á fjórða áratug síð-
ustu aldar og fengu flestir herþjálfun. Alls meiddust 60 í átökum við kommúnista á fimm ára tímabili.
Flokksmönnum í Kommúnistaflokknum tókst ásamt
öðrum að yfirbuga lögregluna í Reykjavík í fjórða
Gúttóslagnum, sem átti sér stað árið 1932. Allir 20
lögreglumennirnir sem börðust með kylfum sínum
gegn stórum hópi verkamanna, þar á meðal mörg-
um liðsmönnum kommúnista, þann dag slösuðust í
átökunum.
Tilefni bardagans var tillaga sem lá fyrir bæjar-
stjórn Reykjavíkur um að lækka laun í atvinnubóta-
vinnu borgarinnar. Ræða átti tillöguna á fundi í
Gúttó hinn 9. nóvember 1932.
Alls meiddust 60 lögregluþjónar og hjálparmenn
þeirra í átökum sem Kommúnistaflokkurinn efndi til
á árunum 1930 til 1934. Sumir náðu sér aldrei, þrír
lögreglumenn urðu að hætta störfum vegna örorku.
Dómarar kváðu upp 67 fangelsisdóma, skilorðs-
bundna jafnt sem óskilorðsbundna, yfir þeim sem
ofbeldið frömdu, en engum dómi var fullnægt.
Sextíu slasaðir eftir átök við kommúnista
GÚTTÓSLAGURINN Engin mynd af sjálfum Gúttóslagnum er til á Ljósmyndasafni Reykjavíkur, en hér má sjá hvernig
umhorfs var í Gúttó eftir að verkamenn, kommúnistar og aðrir hleyptu upp bæjarstjórnarfundi og börðust við lög-
reglumenn. MYND/MAGNÚS ÓLAFSSON
LEIÐRÉTTING
Í aðsendri grein frá Ómari Stefánssyni
í gær var sagt að hann væri fyrrver-
andi bæjarfulltrúi. Það er rangt því
Ómar er bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins í Kópavogi. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
3°
-4°
2°
1°
-1°
1°
1°
22°
5°
18°
4°
21°
-7°
2°
15°
-2°Á MORGUN
5-10 m/s en strekkingur
austast fram eftir degi.
SUNNUDAGUR
3-8 m/s.
7
7
6
6
9
10
6
5
4
5
6
13
15
12
11
10
10
9
12
7
10
15
0
13
4
5
5
5
2
7
6
HELGARHORFUR
Veðurhorfur helgar-
innar eru býsna
góðar, en það lægir
til muna á morgun
og léttir víðast til.
Á sunnudag lítur út
fyrir hæga suðlæga
átt en þykknar
hins vegar aðeins
upp vestan til. Það
kólnar lítillega um
helgina.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
KÍNA, AP Kínversk stjórnvöld
afhentu í gær sín eigin friðar-
verðlaun til höfuðs friðarverð-
launum Nóbels, sem afhent verða
í Ósló í dag.
Kínversku verðlaunin fékk
Lien Chan, fyrrverandi varafor-
seti Taívans, en hann mætti ekki
sjálfur til athafnarinnar og var
á síðustu stundu ákveðið að ung
stúlka myndi taka á móti verð-
laununum í staðinn.
Liu Xiaobo, kínverski andófs-
maðurinn sem fær friðarverð-
laun Nóbels, kemst ekki heldur til
Óslóar í dag vegna þess að hann
situr í fangelsi í Kína. - gb
Verðlaun afhent í Kína:
Verðlaunahaf-
inn mætti ekki
MEÐ VERÐLAUNASKJALIÐ Óljóst var
hvaða tengsl stúlkan hafði við verð-
launahafann. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ALÞINGI Lilja Mósesdóttir, þing-
maður VG, annars ríkisstjórnar-
flokkanna, greiddi ekki atkvæði
með tillögum ríkisstjórnarinnar
við lok annarrar umræðu um fjár-
lög næsta árs á Alþingi í gær.
Ásmundur Einar Daðason og
Atli Gíslason, þingmenn VG, gerðu
einnig fyrirvara við til lögur ríkis-
stjórnarinnar um skerðingu á fram-
lögum til heilbrigðisstofnana.
Nú er gert ráð fyrir að ríkis-
sjóður verði rekinn með 34
milljarða króna halla næsta ár.
Áformaður niðurskurður til heil-
brigðisstofnana hefur verið mild-
aður verulega frá því sem áður var
ráðgert. Lilja Mósesdóttir taldi þó
ekki nóg að gert og sagði nauðsyn-
legt að fara hægar í niðurskurð. Til
mótvægis mætti bæði flýta skatt-
lagningu séreignarsparnaðar og
skattleggja það útstreymi fjár sem
yrði þegar gjaldeyrishöftum yrði
aflétt.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði tekju-
hlið fjárlagafrumvarpsins sérstak-
lega gagnrýniverða. Þar væri að
finna skattahækkanir sem dragi
þrótt úr efnahagslífinu. Frumvarp-
ið fer nú á ný til fjárlaganefndar
fyrir þriðju og síðustu umræðu í
þinginu. - pg
Atkvæði greidd um fjárlagafrumvarp að lokinni annarri umræðu í gær:
Lilja Mósesdóttir sat hjá
FJÁRLÖG Alþingi vinnur að mótun fjár-
laga næsta árs á grundvelli frumvarpsins
sem Steingrímur J. Sigfússon lagði fram
hinn 1. október.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Réðist á lögreglumann
Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega
tvítugan karlmann fyrir að ráðast á
lögreglumann. Atvikið varð í október
í fyrra við skemmtistaðinn Glaumbar í
Reykjavík. Afleiðingarnar urðu þær að
lögreglumaðurinn hlaut mar á hálsi
og tognun á hálshrygg.
MENNTAMÁL Barnaheill hafa þung-
ar áhyggjur af niðurskurði í
skólakerfinu. Í tilkynningu skora
samtökin á hið opinbera að standa
vörð um réttindi barna á tímum
niðurskurðar.
„Nú eru uppi hugmyndir hjá
sveitarfélögum um frekari niður-
skurð sem felast í því að skerða
nám barna um allt að fimm tíma á
viku, eða sem nemur allt að fimm
vikum á ári. Barnaheill – Save the
Children á Íslandi telja þessar
hugmyndir óásættanlegar,“ segir
í tilkynningunni. - sh
Barnaheill áhyggjufull:
Andvíg niður-
skurði í skólum
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 09.12.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
205,322
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,74 115,28
180,96 181,84
151,54 152,38
20,324 20,442
19,027 19,139
16,595 16,693
1,3647 1,3727
176,04 177,08
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR