Fréttablaðið - 10.12.2010, Síða 10

Fréttablaðið - 10.12.2010, Síða 10
10 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR Skötuselur Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 1.990 kr.kg (áður 3.990,-)roðlaus og beinlaus Humarsoð Frá Hornafirði, alvöru humarsoð sem er eingöngu búið til úr humarskeljum, engin aukaefni né rotvarnarefni. Stór Humar Ath. extra stór, sérvalinn af uppáhalds sjómönnum mínum. Skelflettur Humar Lausfrystur og tilbúinn í hvað sem er. Opið laugardag 10.00–14.00. Skata er að sjálfsögðu mætt á staðinn. Humar lausfrystur 2.000 kr.kg 1 kg í poka, flottur í súpuna, ofan á pizzuna og í alla humarrétti. Gott að kaupa og eiga fyrir jólin/ áramótin, þetta er gjafaverð! Fiskikóngurinn elskar humar STJÓRNSÝSLA Tannlæknir á Suð- urnesjum hefur kært ákvörð- un Sjúkratrygginga Íslands þess efnis að stöðva þátttöku sjúkra- trygginga í kostnaði við tann- lækningar hans frá og með 1. okt- óber síðastliðnum. Þetta staðfestir Gestur Jónsson hrl., lögmaður tannlæknisins, við Fréttablaðið. Tannlæknirinn sem um ræðir hefur verið ákærður fyrir Hér- aðsdómi Reykjaness fyrir meint tryggingasvik upp á 129 þús- und krónur. Verjandi hans sagði í Fréttablaðinu fyrr í vikunni að málatilbúnaðurinn væri undarleg- ur. Hann hefur gert kröfu um að málinu verði vísað frá dómi. Rannsókn málsins hjá lögreglu hefur tekið á fimmta ár. Mikið var fjallað um málið í fjölmiðlum og var jafnvel talið, samkvæmt upp- lýsingum sem þeim voru veittar, að svikin næmu allt að 200 millj- ónum króna síðustu þrjátíu ár, uppreiknað til nóvember 2007. Samkvæmt ákærunni sem þing- fest hefur verið er tannlækninum gefið að sök á hafa á árunum 2003 til 2006 svikið út rúmar 129 þús- und krónur vegna 34 tannviðgerða í ellefu einstaklingum. Sjúkra- tryggingar Íslands gera einkarétt- arkröfu í málinu um að tannlækn- inum verði gert að endur greiða mest ríflega 23 milljónir króna en minnst 129.412 krónur. Fimm vikum áður en tannlækn- inum var birt ákæran fékk hann bréf frá Sjúkratryggingum þess efnis að ekki yrði um að ræða frekari endurgreiðslur frá stofn- uninni vegna tannlæknisverka hans. Verjandi tannlæknisins hefur kært ákvörðunina og segir hana ólögmæta. Sjúkratryggingar grundvalli hana meðal annars á nýjum reglum í reglugerð frá 15. september 2010. „Nýju reglunum frá því 15. september verður einungis beitt um atvik eða ástand sem upp hefur komið frá því að reglurn- ar tóku gildi,“ útskýrir Gestur og bendir á að hver maður eigi rétt á að teljast saklaus nema sekt hans sé sönnuð fyrir dómi. Reynir Jónsson, tryggingatann- læknir hjá Tryggingastofnun, hefur ekki viljað tjá sig um málið, að hluta né í heild, þegar eftir því hefur verið leitað. jss@frettabladid.is TANNLÆKNINGAR Verjandi tannlæknisins, Gestur Jónsson hrl., segir ákvörðun Sjúkra- trygginga Íslands ólögmæta. Myndin er úr safni. Tannlæknir hefur kært ákvörðun Sjúkratrygginga Tannlæknir á Reykjanesi sem ákærður hefur verið fyrir fjársvik hefur kært ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands til heilbrigðisráðuneytisins. Efni hennar er að stöðva þátttöku í kostnaði við tannlækningar hans. STJÓRNSÝSLA „Stöðvun Sjúkratrygg- inga (SÍ) á endurgreiðslum kostn- aðar vegna tannviðgerða umrædds tannlæknis á Reykjanesi byggir á því að eftir gildistöku reglugerðar frá 15. september 2010 er SÍ ein- ungis heimilt að endurgreiða tann- læknakostnað að rekstur tann- læknis uppfylli sett skilyrði.“ Þetta segir Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. Hann segir SÍ telja að tannlæknirinn uppfylli ekki þessi skilyrði. „Niðurstaða SÍ um að skilyrði reglugerðarinnar séu ekki upp- fyllt byggir meðal annars á mats- gerð dómkvadds sérfræðings í tannlækningum þess efnis að kær- andi hafi krafið sjúklinga sína um greiðslur fyrir viðgerðir sem ekki hafi verið framkvæmdar. Mats- gerðin er frá 12. júlí 2010,“ segir Steingrímur Ari. Umræddur tann- læknir hafnar niðurstöðu mats- gerðarinnar og lögfræðingur hans hefur staðfest að engin breyting hafi orðið á starfsemi hans þegar SÍ tilkynnti honum fyrirhugaða stöðvun 16. september. Kæran er rökstudd og hefur SÍ verið gefinn kostur á athugasemd- um við hana. Kærandinn hefur einnig komið viðbótarupplýsing- um á framfæri við ráðuneytið. - jss STEINGRÍMUR ARI ARASON Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir rekstur tannlæknis- ins ekki uppfylla skilyrði reglugerðar sem sett var í júlí í ár. Forstjóri Sjúkratrygginga um stöðvun endurgreiðslna: Uppfyllir ekki skilyrði IÐNAÐUR Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) og íslenska hátæknifyrirtæk- ið Carbon Recycling International (CRI) hafa skrifað undir samning um byggingu fyrstu verksmiðju sinnar tegundar í heiminum sem framleiðir vistvænt eldsneyti fyrir almennan markað úr koltvísýrings- útblæstri. Fram kemur í tilkynningu fyrir- tækjanna að ÍAV reisi verksmiðj- una á lóð við jarðvarmaorkuver HS Orku við Svartsengi á Reykja- nesi. „Framkvæmdir við verk- smiðjubygginguna eru nú hafnar og er áætlað að verksmiðjan verði komin í gagnið vorið 2011. Verk- smiðjan notar raforku og koltvísýr- ing úr gufu frá jarðvarmaverinu til að framleiða vistvænt eldsneyti fyrir bíla. Þessi framleiðslutækni var þróuð af CRI og er vernduð með einkaleyfi,“ segir í tilkynn- ingunni. Framleiðslugeta verksmiðjunn- ar er sögð munu verða allt að fimm milljónir lítra af endurnýjanlegu metanóli á ári. „Eldsneytið fer fyrst á innlendan markað. Endurnýjan- legu metanóli er hægt að blanda í bensín eða lífrænan dísil til þess að framleiða vistvænt eldsneyti án þess að breyta þurfi bílvélum eða dreifingu og flutningsmáta elds- neytis,“ segir í tilkynningunni, en þar kemur jafnframt fram að við blöndun hækki oktantala bensíns og bruni véla verði hreinni. - óká TÖLVUGERÐ MYND Þrívíddarmynd af verksmiðju Carbon Recycling (til vinstri) sem fram- leiða mun vistvænt eldsneyti fyrir bíla úr koltvísýringsútblæstri og rafmagni frá orkuveri HS Orku í Svartsengi. MYND/ARKÍS, CRI Íslenskir aðalverktakar og Carbon Recycling hefja byggingu fyrstu verksmiðju sinnar tegundar við Svartsengi: Ný verksmiðja hefur starfsemi næsta vor ÞÝSKALAND Evrópsku bílaverðlaun- in „Gullstýrið 2010“ komu nýverið í hlut sportjeppans Porsche Cay- enne í flokki jepplinga. 250 þúsund lesendur kusu á milli tilnefndra bíla í vali útgáfu- félagsins Springer-Verlag. Nýjasta útgáfa þessa vinsæla sportjeppa er sögð hafa heillað lesendur með fagurri hönnun og miklu nota- gildi, að ótöldu hámarksafli og þeirri akstursánægju sem hafa má af bílum Porsche. Um 40 milljón lesendum Auto Bild, Bild am Sonntag og 26 ann- arra evrópskra bílablaða var boðið að taka þátt í valinu. - óká 250 þúsund greiddu atkvæði: Porsche hlýtur Gullstýrið í ár PORSCHE CAYENNE Sportjeppi Porsche fékk „Gullstýrið“ í ár, en það veita les- endur 26 evrópskra bílablaða. Kona sló lögreglumann Kona er fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, ákærð fyrir að hafa slegið lögreglu- mann í andlitið þar sem hann var við skyldustörf utandyra við Vegamótastíg í Reykjavík. Atvikið átti sér stað á síðasta ári. LÖGREGLUFRÉTTIR 1. Hvað heitir utanríkisráð- herra Ástralíu? 2. Hversu háir eru stýrivextir Seðlabankans eftir síðustu vaxtabreytingu? 3. Hvaða leikkona mun leika álfkonuna Galadriel í kvik- myndinni um Hobbitann? SVÖR 1. Kevin Rudd. 2. 4,0 prósent. 3. Cate Blanchett. VEISTU SVARIÐ?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.