Fréttablaðið - 10.12.2010, Page 12
12 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR
VELFERÐARMÁL Útgjöld til velferðar-
þjónustu og félagsverndar á Íslandi
námu 325,6 milljörðum króna eða
21,8 prósentum af landsframleiðslu
árið 2008. Þetta er hlutfallslega
minna en hjá nágrannalöndum
okkar. Í Danmörku er þetta hlutfall
28,9 prósent, í Svíþjóð 28,8 prósent,
í Noregi 24 prósent og í Færeyjum
og Finnlandi 25,6 prósent. Þetta
kemur fram á visir.is.
Um 40 prósent útgjaldanna á
Íslandi árið 2008 voru vegna heil-
brigðismála, en það samsvarar 8,8
prósentum af landsframleiðslu.
Þetta kemur fram í ritinu Social
tryghed i de nordiske lande 2008/09,
sem gefið er út af Norrænu hag-
skýrslunefndinni á sviði félags- og
tryggingarmála. Í ritinu er að finna
samanburð á velferðarþjónustu og
félagsverndar milli Norðurland-
anna. Þar er fjallað um aðgerðir
opinberra aðila og einkaaðila sem
miða að lífskjarajöfnun og að því að
létta byrðum af heimilum og ein-
staklingum vegna fjárhagslegrar
íþyngingar eða tekjumissis. Greint
er frá niðurstöðunum á vef Hag-
stofunnar.
Þar má sjá að hlutfallið er lægst
á Íslandi þegar kemur að útgjöldum
til aldraðra eða 4,9 prósent af lands-
framleiðslu samanborið við 11,1
prósent í Danmörku, 8,4 prósent
í Færeyjum, 8,9 í Finnlandi, 6,7 í
Noregi og 11,5 í Svíþjóð.
Rúmt 21 prósent landsframleiðslu fór í velferðarmál á Íslandi árið 2008:
Ísland á botninum í velferðarmálum
ELDRI BORGARAR Ísland situr á botnin-
um á lista Norðurlandanna yfir útgjöld
til velferðarmála. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÉLAGSMÁL „Taktu þátt í að gefa
gjöf“ heitir styrktarherferð
íslenska hreinlætispappírsfram-
leiðandans Papco nú fyrir jólin.
„Ein rúlla af hverri seldri pakkn-
ingu af hreinlætispappír í jóla-
umbúðum frá Papco rennur til
góðgerðamála,“ segir í tilkynn-
ingu fyrirtækisins, en það styrkir
Hjálparstofnun kirkjunnar, Mæðra-
styrksnefnd, Rauða krossinn og
Fjölskylduhjálpina.
Haft er eftir Þórði Kárasyni,
framkvæmdastjóra Papco, að
fyrir tækið geri ráð fyrir að gefa
20 þúsund salernisrúllur til góð-
gerðamála. „Og erum þegar búin
að afhenta um helminginn. Okkar
viðskiptavinir, bæði einstaklingar
og fyrirtæki, hafa tekið mjög vel í
þessa styrktarherferð og með því
að fara þessa leið geta allir lagt
sitt af mörkum og gjöfin verður
veglegri,“ segir hann. Þá er í til-
kynningu fyrirtækisins haft eftir
Ásgerði Jónu Flosadóttur, formanni
Fjölskylduhjálpar Íslands, að Papco
hafi veitt Fjölskylduhjálpinni
ómetan legan stuðning allt frá stofn-
un samtakanna fyrir átta árum.
Söfnun Papco stendur út desember,
en auk styrktarherferðarinnar er
fyrirtækið sagt hafa aukið stuðn-
inginn við Fjölskylduhjálpina enn
frekar með auknu vöruframlagi til
samtakanna. - óká
PAPPÍR GEFINN Þórður Kárason, fram-
kvæmdastjóri Papco, (í miðið) naut
aðstoðar jólasveinsins við að afhenta
starfsmanni Fjölskylduhjálparinnar pappír.
Papco stendur fyrir átakinu „Taktu þátt í að gefa gjöf“:
Gefa salernisrúllur
VESTFIRÐIR Vestfirðingar voru í
upphafi árs 7.362 talsins og þar
af voru um 709 íbúar með erlent
ríkisfang, eða sem nemur 9,6 pró-
sentum af heildaríbúafjölda í
fjórðungnum. Þetta kemur fram
á vef Bæjarins besta.
Hlutfallið hefur hækkað lítil-
lega síðastliðin þrjú ár en árið
2008 var það 8,2 prósent og 9,5
prósent á síðasta ári. Pólverjar
eru langflestir þeirra erlendu
ríkisborgara sem búa á Vest-
fjörðum, eða 436 talsins. Það
gerir um 60 prósent þeirra sem
eru með erlent ríkisfang.
Hæst er hlutfallið í Tálkna-
fjarðarhreppi þar sem yfir
fimmtungur íbúanna er með
erlent ríkisfang, eða 64 af 299
íbúum sveitarfélagsins. - kh
Fjölbreytt flóra á Vestfjörðum:
Tíu prósent
íbúa eru með
erlent ríkisfang
WIKILEAKS Greiðslumiðlunarsíðan
Paypal lét í gær undan árásum frá
netþrjótum og losaði um fé sem
komið var inn á reikning Wiki-
leaks. Ekki verður þó hægt að
greiða meira inn á reikninginn.
Hópur netþrjóta sem nefn-
ir sig Anonymous hefur jafnt og
þétt hert árásir sínar á fyrirtæki,
stofnanir og einstaklinga sem hafa
gagnrýnt, unnið gegn eða lokað á
þjónustu Wikileaks.
Meðal annars hafa síður korta-
fyrirtækjanna Visa og Mastercard
legið niðri vegna árásanna og
vefur saksóknaraembættis í Sví-
þjóð, sem krefst framsal Julians
Assange frá Bretlandi, lá einnig
niðri um hríð.
Þá varð Sarah Palin, fyrrver-
andi ríkisstjóri Alaska og einn
helsti forsprakki teboðshreyfingar-
innar í Bandaríkjunum, fyrir árás
nafnlausu netþrjótanna, sem lok-
uðu vefsíðu hennar eftir að hún
hafði gagnrýnt Assange.
Sjálf brást hún ókvæða við:
„Þetta er það sem gerist þegar þú
notar fyrsta viðaukann og talar
gegn þessum sjúklegu, óamerísku
njósnatilburðum hans.“
Árásir voru einnig gerðar á
samskiptasíðuna Twitter eftir að
lokað var á Wikileaks, en sam-
skiptasíðan Facebook úthýsti hins
vegar netþrjótunum og lokaði síðu
þeirra. Netþrjótarnir segjast vera
fjölmargir og nefna aðgerðir sínar
Operation Payback, eins konar
endurgjald fyrir þá framkomu sem
Wikileaks hefur orðið fyrir.
Stuðningsfólk Wikileaks hefur
fullyrt að þrýstingur og jafnvel
hótanir frá Bandaríkjastjórn liggi
að baki aðgerðum fyrirtækjanna
gegn Wikileaks.
Á blaðamannafundi í höfuð-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna í
Genf í gær sagðist Navi Pillay,
mannréttindafulltrúi Sameinuðu
þjóðanna, hafa verulegar áhyggj-
ur af fregnum um að kortafyrir-
tæki hefðu látið undan þrýstingi
og hætt að taka við greiðslum til
Wikileaks.
Greiðslumiðlunarsíðan PayPal
viðurkenndi í gær að hafa hætt að
þjónusta Wikileaks vegna þrýst-
ings frá Bandaríkjastjórn. Ákvörð-
unin hafi verið tekin eftir að bréf
barst frá Bandaríkjastjórn, þar
sem fullyrt var að starfsemi Wiki-
leaks bryti í bága við bandarísk
lög. Talsmaður utanríkisráðu-
neytis Bandaríkjanna neitaði því
hins vegar að slíkt bréf hafi verið
skrifað. Þá dró talsmaður PayPal
í land og sagði starfsfólk PayPal
hafa tekið ákvörðunina með hlið-
sjón af almennri afstöðu Banda-
ríkjastjórnar.
gudsteinn@frettabladid.is
Stríð út af
Wikileaks í
netheimum
PayPal opnaði reikning Wikileaks í gær eftir árásir
frá netþrjótum, sem undanfarna daga hafa gert
harðar árásir á fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
Síður Visa og Mastercard lágu niðri um hríð.
ALLS STAÐAR Í FRÉTTUM Í Pakistan var í gær efnt til mótmæla þar sem fáni Banda-
ríkjanna var brenndur til stuðnings Wikileaks og Julian Assange. NORDICPHOTOS/AFP
SNJÓMOKSTUR VIÐ KREML Á Rauða
torginu í Moskvu þurfti að hreinsa
burt snjóinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
0,20% 0,25%
2,90%
S
24
E
R
Í
EI
G
U
B
Y
R
S
Samanburður debetreikninga*
DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á Sel-
fossi hefur ákært tvo menn fyrir
brot á lögum um lax- og silungs-
veiði.
Mönnunum er gefið að sök að
hafa síðdegis sunnudaginn 4.
júlí 2010 verið að veiða á stöng
í Tungufljóti í Árnessýslu fyrir
landi Bergstaða í Bláskógabyggð.
Þeir höfðu ekki leyfi til veiðanna,
þar sem Tungufljótsdeild Veiði-
félags Árnesinga ákvað á aðalfundi
sínum þann 12. apríl 2010 að leigja
veiðirétt í Tungufljóti til fimm ára.
Voru því lax- og silungsveiðar á
umræddum tíma og stað óheimilar
öðrum en leigutaka og þeim er
hann hafði ráðstafað veiði til. - jss
Tveir menn ákærðir:
Veiddu í óleyfi