Fréttablaðið - 10.12.2010, Síða 38

Fréttablaðið - 10.12.2010, Síða 38
 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR2 Leikföng frá liðinni öld eru til sýnis í litlu leikfangasafni í Friðbjarnarhúsi á Akureyri, einu af elstu húsum bæjarins. Safnið er opið alla laugardaga frá 14-16 en þar er að finna gamlar brúður, dúkkuvagna, þríhjól og bíla svo dæmi séu nefnd. Flest bíðum við jólanna óþreyju- full. Ekki þó hann Jónatan sem leiðist allt jólastúss þar til stríðinn álfur sendir hann í spennandi leið- angur. Svona hljóðar söguþráður nýrrar framhaldssögu eftir félag- ana Inga Hrafn Hilmarsson og Jóel Inga Sæmundsson, með mynd- um eftir listakonuna Maríu Möndu Ívarsdóttur. „Sagan er byggð á leikritinu Strákurinn sem týndi jólunum sem við í Leikhópnum Vinir sýndum í leikskólum víðs vegar um landið í fyrra,“ útskýrir Ingi Hrafn og getur þess að góðar viðtökur hafi orðið til þess að ráðist var í gerð bókarinnar. „Eftir svolitlar pæl- ingar ákváðum við svo að hluta hana niður í framhaldssögu, í anda Jóladagatals Sjónvarpsins, og sem handhægt er að gefa til dæmis í skóinn.“ Að sögn Inga Hrafns gekk vel að koma leikritinu yfir í bókaform og lögðu félagarnir mikið kapp á að halda öllum persónunum inni. „Þetta er sannarlega litríkt safn af persónum sem verða á vegi Jónat- ans og sumar ættu íslensk börn sjálfsagt að kannast vel við, eins og tröllið og jólasveinamömmuna Grýlu sem hann sleppur frá við illan leik.“ Að Grýlu undanskilinni sækja höfundarnir þó lítið í íslensk- an sagnaarf heldur spinna sög- una og persónur upp frá grunni. Boðskapurinn kemur hins vegar kunnuglega fyrir sjónir og er í anda jólanna. „Megininntak sög- unnar er að sönn jólagleði felist ekki í jólagjöfum heldur hjálp- semi og vináttu þar sem samver- an er svo dýrmæt, en Jónatan áttar sig smám saman á því í framrás sögunnar.“ Ingi Hrafn bætir við að í tilefni af útgáfu bókarinnar ætli Leik- hópurinn Vinir að sýna leikritið Strákurinn sem týndi jólunum í versluninni Iðu við Lækjargötu á morgun frá klukkan 14 til 16. Þar verður bókin fáanleg bæði í átta hlutum og saman í einum pakka og líka á N1-stöðum um land allt. roald@frettabladid.is Framhaldssaga í skóinn Leikararnir Ingi Hrafn Hilmarsson og Jóel Ingi Sæmundsson hafa sent frá sér spennandi jólasögu í átta hlutum. Sagan byggir á samnefndu leikriti um drenginn Jónatan sem lendir í hremmingum fyrir jólin. Krakkarnir á leikskólanum Fífusölum í Kópavogi tóku vel á móti Inga Hrafni og Jóel þegar þeir kynntu söguna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Krumma Þroskandi og falleg leikföng fyrir krakka. www.krumma.is Skoðið hjá okkur inni á www.krumma.is eða okkar að Allir krakkar sem koma í föndrað könnunni og piparkökur handa mömmu og pabba.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.