Fréttablaðið - 10.12.2010, Síða 48

Fréttablaðið - 10.12.2010, Síða 48
8 föstudagur 10. desember Stúlkurnar í hljómsveit- inni The Charlies eltu drauma sína alla leið til Los Angeles fyrr á árinu. Þær segja lífið í Hollywood vera ævintýri líkast enda sé borgin full af furðufuglum og snillingum. Blaðamaður: Sara McMahon Ljósmyndir: Anton Brink Fatnaður á forsíðu: 66 N Fatnaður við viðtal: Kiosk Hár: Silla á Hárbeitt H l jómsvei t in The Charlies er skipuð Ölmu Guðmunds- dóttur, Steinunni Camillu Sigurðar- dóttur og Klöru Elíasdóttur sem áður voru í stúlknasveitinni Nylon. Þær fluttu til Bandaríkjanna í vor og vinna nú hörðum höndum við að koma sér á framfæri í hörðum heimi tónlistarinnar. Stúlkurnar deila saman lítilli íbúð í miðbæ Los Angeles og þrátt fyrir þröng- an íbúðarkost segjast þær alsælar með lífið. Hver var aðdragandinn að flutn- ingunum til Los Angeles? Alma: „Eftir að Ólöf Valsdóttir sópransöngkona kom okkur í samband við okkar tengilið í Bandaríkjunum tók við mikil pappírsvinna og við þurftum líka að redda okkur dvalarleyfi. Þetta tók allt tíma en hafðist að lokum. Þegar við svo komum út tók við mikil vinna í hljóðveri. Við rétt náðum í raun að fara í IKEA, setja upp bókahillu og þrjú rúm og svo eyddum við næstu mánuðum bara í hljóðverinu.“ Stúlkunum bauðst upphaflega samningur við Hollywood Records sem hljóðaði upp á eina stuttskífu en því var breytt í heila breiðskífu stuttu eftir að upptökur hófust. Þetta telst góður árangur þar sem flestir tónlistarmenn þurfa að gefa út stuttskífu áður en fyrsta breið- skífan lítur dagsins ljós. Alma: „Það var frábært að fá að gera breiðskífu strax því flest- ir af þessum stóru nöfnum í dag, eins og Justin Bieber og Bruno Mars, byrja á að gefa út stutt- skífu. Það er oft ekki fyrr en þegar útgáfufyrirtækið sér að það ber ár- angur að það þorir að taka áhætt- una á að gefa út heila breiðskífu með tónlistarmanninum.“ FJARSAMBÖNDIN ERFIÐ Stúlkurnar voru allar í sambönd- um þegar þær fluttu út og því hljóta menn að spyrja hvernig þau sambönd plumi sig þegar fjar- lægðin er svo mikil? Alma: „Allir í kringum okkur vissu að þetta var það sem okkur dreymdi um að gera þannig það ríkti mikill skilningur á því. En svo þegar við komum út þá átt- aði maður sig á því að það er rosa- lega erfitt að halda fjarsambandi gangandi. Við gerðum það eins lengi og við gátum en svo fann maður bara að það gekk ekki til lengdar. En þetta var allt gert í miklum vinskap og það er allt í góðu á milli okkar.“ Klara: „Það er rosalega erfitt að vera ástfangin og sjá ekki mann- eskjuna sem þú elskar á hverjum degi. Ofan á það bætist þessi mikli tímamunur sem gerði öll sam- skipti mun erfiðari. Það er líka erf- itt fyrir þann sem heima situr að fylgjast með öllu sem maður er að gera úr svona mikilli fjarlægð og geta ekki tekið beinan þátt í því.“ Var þetta erfið ákvörðun? Alma: „Þetta var skelfilega erfið ákvörðun. Svona er auðvit- að aldrei auðvelt.“ Klara: „Við höfðum sem betur fer hver aðra til að gráta utan í meðan á þessu stóð.“ Camilla er enn í sambandi og segir ekkert annað ganga í slíkri stöðu en að taka einn dag í einu og lifa í núinu. HYLDÝPI FURÐULEGHEITA Stúlkurnar segja Hollywood vera svolítið súrrealískan stað til að búa á. Að sögn Camillu var erfitt að fá ekki stjörnur í augun þegar þær komu fyrst í hljóðverið og mættu hljómsveitum á borð við Black Eyed Peas og Maroon 5. Hvernig er lífið þarna úti, er það ólíkt því sem þið eruð vanar? Camilla: „Já. Þetta er brjálaður bransi og maður hittir rosalega mikið af skrítnu fólki þarna. Það hafa allir þarna skoðun á öllu og þetta er í raun svarthol af furðu- legheitum.“ Alma: „En á móti kemur að þarna má líka finna mestu snill- inga heims.“ Camilla: „Já. Þarna erum við í Mekka alls þess sem við viljum en maður þarf alltaf að vera svolítið var um sig og ég held það hjálpi okkur mikið að vera þrjár saman. Ég dáist að fólki sem gengur í gegnum þetta eitt.“ Alma: „Við stöndum þétt saman og það er í raun magnað að öll dramatíkin sem á sér stað er í kringum okkur en ekki innan hljómsveitarinnar. Við erum stelpuband sem rífst aldrei,“ segir hún og hlær. En hvað með þá miklu útlits- dýrkun sem sögð er ríkja í Holly- wood. Finnið þið fyrir miklum utanaðkomandi þrýstingi til að líta vel út? Camilla: „Já. Þetta er mjög yfir- borðskenndur heimur þarna úti.“ Alma: „Við fáum auðvitað að heyra ýmislegt um útlit okkar og ég er viss um að mörgum finnist við eiga að líta einhvernveginn öðruvísi út en við gerum, en það verður að taka öllu slíku tali með fyrirvara.“ Klara: „Þetta er líka spurning um ímynd. Við erum stelpusveit og það eru gerðar kröfur um að við séum stelpulegar en á sama tíma góð fyrirmynd.“ Hverjar eru þessar kröfur? Camilla: „Við þurfum til dæmis að passa upp á að vera með fínt hár, vera vel málaðar og að vera með smá tískuvitund. Ímyndin er svo rosalega stór hluti af popp- bransanum, eins og fólk veit, og þess vegna þurfum við að passa vel upp á útlitið.“ Nú hefur maður heyrt að margar FARNAR TIL AÐ V „Þetta er brjálaður bransi og maður hittir rosalega mikið af skrítnu fólki þarna.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.