Fréttablaðið - 10.12.2010, Page 49
10. desember föstudagur 9
VERA
Camilla: „Ég heiti fullu nafni
Steinunn Þóra Camilla Sigurðar-
dóttir og ég hef ekki hitt Banda-
ríkjamann sem getur borið það
fram. Ég fór líklega hvað lengst í
nafnabreytingunum en Stones er
gamla gælunafnið mitt.“
Klara: Það þykir bara nokk-
uð eðlilegt að tónlistarmenn taki
upp sviðsnöfn. Okkur fannst snið-
ugast að breyta nöfnunum því það
gerir okkur mun auðveldara fyrir
að vera með nöfn sem fólk getur
borið fram og skrifað án þess
að við þurfum að stafa þau. Það
er helmingi auðveldara og mun
þægilegra.“
Urðu feður ykkar ekkert svekktir
að þið skulið ekki bera nöfn þeirra
lengur?
Alma: „Nei, pabba gat varla
fundist slæmt að vera „good
man“,“ segir hún og skellir upp úr.
„Nei, nei, honum fannst þetta bara
fyndið held ég.“
Klara: „Mitt eftirnafn er þarna
ennþá, ég er bara ekki lengur
dóttir.“
Haldið þið að það hafi verið
ykkur til framdráttar að vera frá Ís-
landi? Vekur það athygli manna?
Klara: „Já, ég held það. Ég held
það hjálpi líka að fólk virðist al-
mennt tengja Ísland við Skand-
inavíu og Skandinavíu við góða
popptónlist,“ segir hún bros-
andi.
FARNAR TIL AÐ VERA
Stúlkurnar munu dvelja á Íslandi
yfir hátíðarnar og munu meðal
annars koma fram í Kringlunni
klukkan 14.00 á morgun. En til
gamans má geta að þær hafa
komið fram í Kringlunni hver jól
undanfarin sjö ár.
Alma: „Ein jólin sungum við 27
sinnum þarna í Kringlunni. “
Camilla: „Ég var farin að dauð-
vorkenna fólkinu sem vann þarna
að heyra sömu lögin aftur og
aftur,” segir hún hlæjandi. „Núna
er þetta orðinn hluti af jólaund-
irbúningi okkar og fyrir þessi jól
erum við að sjálfsögðu með nýtt
efni í bland við gamalt.”
Að lokum, eruð þið farnar til að
vera eða eigum við von á ykkur
heim á næstunni?
Camilla: „Svo lengi sem Banda-
ríkin vilja leyfa okkur að vera, þá
viljum við vera.“
Alma: „Við ætlum að vera áfram
í Los Angeles. Maður á auðvitað
aldrei að segja aldrei, en eins og
er búum við þarna og erum bara
ofsalega þakklátar fyrir þetta tæki-
færi sem okkur hefur boðist.“
stórstjörnurnar fá aðstoð frá stílist-
um við að velja fatnað á sig. Hvern-
ig er það í ykkar tilfelli, fáið þið
sjálfar að ráða útliti sveitarinnar?
Alma: „Við höfum mjög sterka
skoðun á því hvernig við vilj-
um líta út en fáum líka aðstoð
frá góðum stílistum og öðru fag-
fólki sem við viljum vinna með
og þróum þetta í samráði við þau.
Núna erum við til dæmis að fara
í samstarf við almannatengsla-
skrifstofu sem samtvinnar mjög
margt og kemur meðal annars inn
á ímyndarsköpun.“
Hversu langt fer þessi ímyndar-
sköpun? Mynduð þið íhuga lýta-
aðgerðir ef til þess kæmi?
Camilla: „Mér finnst lýtaaðgerð-
ir allt í lagi ef þær eru gerðar á
réttum forsendum og í hófi.“
Klara: „Ég var með teina, er það
ekki lýtaaðgerð?“
Alma: „Ef fólki líður betur með
sjálft sig, af hverju ekki?“
Camilla: „Svo lengi sem þú ert
ekki að gera þetta fyrir aðra og
ferð ekki yfir strikið þá er þetta í
lagi. Ef þú ferð ekki út í öfgar eins
og Heidi Montag eða kattarkon-
an,“ segir hún hlæjandi.
NÝ NÖFN
Það vakti athygli þegar stúlkurnar
ákváðu að breyta nöfnum sínum
að erlendri fyrirmynd stuttu áður
en þær fluttu út. Alma varð því
Alma Goodman, Klara að Klara
Elias og Steinunn Camilla að
Camilla Stones. Inntar eftir því
hvort þeim þyki ekki skrítið að
heita skyndilega öðrum nöfnum
svara þær því neitandi.