Fréttablaðið - 10.12.2010, Síða 56
föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 10. DESEMBER 2010
1 Þegar fanga á stemningu er galdurinn að vera snöggur eða
með svokallaða nærlinsu sem dreg-
ur að þannig að þú getir staðið
lengra frá og tekið myndir án þess
að fólk viti af því. Það er líka gott
að tala við fólk á léttu nótunum á
meðan þú ert að mynda svo það
gleymi myndavélinni.
2 Það er ekki snið-ugt að taka
myndir af fólki
á meðan það
borðar, nema
þið séuð að
taka gaman-
myndir, þá getið
þið gengið lengra og beðið fólk
að frussa og tekið myndir um leið.
Myndirnar geta orðið óborganlegar
auk þess sem fólk slappar af.
3 Ef allir eiga að sjást á mynd er upplagt að stilla fólki upp. Pass-
ið þá að fólk standi ekki þétt upp við
vegg og að ekkert truflandi sé í bak-
grunninum. Oft er gott að taka að-
eins til, færa standlampa, flöskur
og annað smádót. Sitji fólk þarf
að passa að það sitji ekki eins og
“klessur” í sófanum.
4 Lýsing skiptir miklu máli og
gott er þá að stilla
myndavélina hærra
í ISO fjölda. Sumar
vélar þola að fara
upp í 400ISO án
þess að verða grófar. Þetta
geturðu fundið út með því
að prófa þig áfram. Flass
hefur þann galla að gefa
af sér leiðinlega skugga,
sérstaklega ef manneskjan
stendur nálægt vegg.
5 Maður þarf ekki
alltaf að hafa
„allt“ inni á myndinni, stundum er
gaman að nærmyndum líka. Það er
mjög algengt að sjá tækifærismynd-
ir þar sem stór hluti myndarinnar er
bara loftið fyrir ofan hausinn á fólki.
Munið svo að fá leyfi ef þið ætlið að
birta veislumyndir á netinu.
HELGARRÁÐIN
Gréta S. Guðjónsdóttir,
ljósmyndari.
STOFNAÐ 1971 RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • www.sm.is
GJAFIR
SEM ROKKA!
Forðist vonbrigði með hágæða JBL
hljómtækjum fyrir iPhone og iPod
Hjá SJÓNVARPSMIÐSTÖÐINNI fæst mikið úrval af hágæða
og glæsilega hönnuðum JBL hljómtækjum og hátölurum,
sem koma öllum í jólaskap. Hvort sem verið er að leita eftir
handhægum hátölurum sem auðvelt er að taka með sér, eða
stærri stofugræjum þá ertu á réttum stað! Forðumst daufar
jólagjafir í ár og kokkum fram pakka sem bragð er að! Ath
. i
Po
d
fy
lg
ir
ek
ki
iP
od
v
ög
gu
.