Fréttablaðið - 10.12.2010, Síða 64

Fréttablaðið - 10.12.2010, Síða 64
timamot@frettabladid.is DV efnir til hátíðarhalda á morgun í tilefni þess að á þriðju- dag verður öld frá því að fyrsta eintakið í útgáfusögu DV, Dagblaðsins-Vísis, kom út. Einar Gunnarsson var stofnandi, eigandi og fyrsti ritstjóri Vísis en með útgáfu þess vildi hann sjá hvort grundvöllur væri fyrir útgáfu á óháðu fréttablaði á Íslandi. Hann reyndist vera fyrir hendi og segir núverandi ritstjóri, Reynir Traustason, að þótt árin séu nú orðin hundr- að sé blaðið í megindráttum trútt uppruna sínum. „Tilgangur blaðsins var og er að flytja fréttir og við sem að því stöndum trúum á það sem við erum að gera og teljum að blaðið sé á réttu spori; þetta er götublað sem heldur sig við staðreyndir og er ekki að niðurlægja fólk,“ bendir Reyn- ir á en bætir við að þó hafi nokkrum sinnum verið farið út af sporinu gegnum árin. „Auðvitað hafa mistök verið gerð. Í eina tíð hallaði ritstjórnin sér til dæmis of nálægt valdinu í landinu, þegar örstutt var frá Valhöll yfir á ritstjórnina, en við megum auðvitað aldrei vera málpípur tiltekinna stjórn- málaflokka. Hin tilraunin sem mistókst var þegar DV ætlaði að líkja eftir The Sun en hún leiddi í ljós að íslenskt samfélag þolir ekki þannig miðil. Menn voru allt of harðir, en það er í lagi að vera harður ef maður gætir líka kurteisi.“ Reynir hefur ritstýrt DV síðustu þrjú ár og verið viðloð- andi fyrirtækið frá því snemma á níunda áratugnum þegar hann var fréttaritari á Flateyri. Beðinn um að rifja upp eftir- minnileg atvik í sögu fyrirtækisins minnist hann sameining- ar Dagblaðsins og Vísis árið 1981. „Fram að því, um miðjan áttunda áratuginn, var blómaskeið í sögu fjölmiðla á Íslandi, vegna mikillar samkeppni milli blaðanna. Svo kom í ljós að ekki var pláss á markaði fyrir tvö blöð af sama toga og því var ákveðið að sameina þau. Blöðin voru þá á sömu hæð í Síðumúla og það var tilfinningaþrungið þegar brotið var á milli.“ Reynir segir að eitt af viðloðandi einkennum blaðsins hafi verið að taka á málum sem aðrir miðlar veigri sér við að fjalla um. „Ég get nefnt mál sem standa mér nær í tíma, mál Árna Johnsen og Ólafs Skúlasonar biskups og Ísafjarðar málið. Öll hafa þau valdið usla og sum orðið til þess að blaðið fékk almenning upp á móti sér. Það síðastnefnda leiddi til dæmis til þess að ritstjórarnir létu af störfum og Dagblaðið varð að vikublaði. Svo hefur komið á daginn að blaðið hafði á réttu að standa. Nú er almennt viðurkennt að konurnar í biskups málinu höfðu rétt fyrir sér og eins fengu fórnarlömbin í Ísafjarðar- málinu hæstu mögulegu bætur gegnum bótasjóð; sú frétt var rétt þótt framsetningin hafi verið ósmekkleg,“ útskýrir hann og segir útgáfu miðils eins og DV því vera stöðugan línudans. „Maður verður bara að passa sig að detta ekki,“ segir hann og getur þess að af sömu sökum sé gott að starfa á DV. „Það veitir meira svigrúm en tíðkast á fjölmiðlum hér.“ Blaðið er nú komið aftur í miðbæinn í húsnæði við Tryggva- götu en skammt frá, á Ingólfstorgi, hefst afmælisveislan á morgun klukkan 15. Fjöldi skemmtikrafta kemur, þar á meðal Bubbi Morthens sem Reynir er ánægður með. „Það markar ákveðin tímamót að hann komi fram í okkar nafni, því hann hefur átt í erfiðu sambandi við blaðið,“ segir hann. „Svona kannski eins og þjóðin, sem hefur átt í eins konar ástar- haturssambandi við okkur í gegnum árin.“ roald@frettabladid.is DV: FAGNAR 100 ÁRA ÚTGÁFUSÖGU Á réttu spori STÖÐUGUR LÍNUDANS Reynir ásamt syni sínum og samritstjóra Jóni Trausta og Heiðu Heiðarsdóttur, markaðs- og sölustjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ömmusystir okkar, Aðalheiður Sigurðardóttir Skólastíg 14a, Stykkishólmi, lést á St Franciskusspítalanum í Stykkishólmi 1. desember síðastliðinn. Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju 14. desember kl. 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Orgelsjóð Stykkishólmskirkju í Heimahorninu, sími 438 1110. Jófríður Sveinbjörnsdóttir Aðalheiður Sveinbjörnsdóttir Stefán Þór Sveinbjörnsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Ástbjörg Sigríður Geirsdóttir andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í Reykjavík 26. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ágúst Geir Kornelíusson Gullý Bára Kristbjörnsdóttir Ólafur Hannes Kornelíusson Guðný Jóhanna Kjartansdóttir Ástbjörg Kornelíusdóttir Ómar Þórsson Sigurður Kornelíusson Geirlaug Ingólfsdóttir barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Sigurbjörg Sigríður Jónsdóttir Dvalarheimilinu Höfða, áður Háholti 33, Akranesi, lést miðvikudaginn 8. desember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 17. desember kl. 11.00. Guðný Guðjónsdóttir Rúnar Guðjónsson Ágústa Einarsdóttir Hugrún Guðjónsdóttir Pálmi Jónsson Kristín Guðjónsdóttir Guðmundur Smári Guðnason og fjölskyldur. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, Unnur Benediktsdóttir, lést á Hjúkrunarheimilinu Eir, laugardaginn 4. desember sl. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju í dag, föstudaginn 10. desember kl. 13.00. Birgir Guðjónsson Sigþrúður Guðmundsdóttir Sonja S. Guðjónsdóttir Birgir Guðlaugsson Arnar Birgisson Kirstine Nellemann Jensen Steinar Birgisson Snæfríður D. Björgvinsdóttir Grétar Birgisson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Rögnvaldsdóttir áður til heimilis að Skálarhlíð, sem lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar mánudaginn 29. nóvember, verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 11. desember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kvenfélagið Von. Guðbjörg Baldursdóttir Sveinbjörn Vigfússon Bryndís Baldursdóttir Gunnar Steinþórsson Guðrún Baldursdóttir Viktor Ægisson Ólafur Baldursson Margrét Jónasdóttir Brynhildur Baldursdóttir Jóhann Ottesen ömmubörn og langömmubörn MOSAIK Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Emilía Þórðardóttir frá Grund á Akranesi, Háabergi 35, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum Fossvogi þann 8. desember. Pálína Pálsdóttir Jóhannes Einarsson Ragnheiður Pálsdóttir Þorsteinn Auðunn Pétursson Ólafur Ragnar Pálsson Þorbjörg Þórisdóttir Þórður Pálsson Þorbjörg Guðbrandsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir okkar og mágur, Ólafur Ágústsson Skaftahlíð 13, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Mörkinni, Suðurlandsbraut 66, þriðjudaginn 7. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Erla Eyjólfsdóttir Loftur Andri Ágústsson Kristjana Petrína Jensdóttir Ingibjörg Ágústsdóttir Árni Sigurjónsson Svanhildur Ágústsdóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elskulegrar föðursystur okkar Hallberu Guðnadóttur Miklubraut 42 Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda, Hallbera Eiríksdóttir Guðni Eiríksson Tryggvi Karl Eiríksson Elskulegur faðir minn, sonur, bróðir og mágur, Einar Björgvinsson sem lést að kvöldi miðvikudagsins 29. nóvember, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju, föstudaginn 10. desember kl. 11. Þórey Rósa Einarsdóttir Rósa Gísladóttir Fjóla Margrét Björgvinsdóttir Ólafur Árnason Kristborg Björgvinsdóttir Sigurður Óskar Björgvinsson Sigríður Björk Þórðardóttir Einlægar þakkir til allra er sýndu samúð og vinarhug við andlát og útför Margrétar J. Hallsdóttur Lýsuhóli, Tjarnarbóli 14. Sérstakar þakkir fyrir þá alúð sem hún fékk á 13E á Landspítalanum við Hringbraut. Guðmundur Kristjánsson Ásdís Edda Ásgeirsdóttir Andrés Helgason Hafdís Halla Ásgeirsdóttir Þórkell Geir Högnason Jóhanna Bára Ásgeirsdóttir Agnar Gestsson og fjölskyldur þeirra
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.