Fréttablaðið - 10.12.2010, Side 68
44 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR44
menning@frettabladid.is
Bækur ★★★★
Skáldsaga um Jón
Ófeigur Sigurðsson
Skáldsaga um Jón & hans rit-
uðu bréf til barnshafandi konu
sinnar þá hann dvaldi í helli yfir
vetur & undirbjó komu hennar &
nýrra tíma er fullt heiti skáld-
sögu Ófeigs Sigurðssonar um einn
vetur í lífi Jóns Steingrímssonar
sem sagan hefur gefið viðurnefn-
ið eldklerkur. Það er leitun að
jafn nákvæmri innihaldslýsingu
í heiti skáldsagna nú á tímum,
en var hins vegar alsiða á tímum
Jóns eldklerks að heiti rita væru
skilmerkileg og lýstu innihaldinu.
Og sagan segir sem sagt frá veru
Jóns í helli við Reynisfjöru, ásamt
bróður sínum og vinnumanni
þeirra, veturinn 1755 til 1756.
Sagan er skáldsaga en byggir á
raunverulegum atburðum og inn
í hana fléttast það sem hæst bar
á Íslandi þennan vetur. Kötlugos,
Eggert Ólafsson og Bjarni Páls-
son og náttúrurann-
sóknir þeirra, Skúli
fógeti og fleiri raun-
verulegar persón-
ur og atburðir leika
stór hlutverk í sög-
unni ásamt Jóni,
Þorsteini bróður
hans og í fjarlægð-
inni Þórunni konu
hans.
Sagan er í formi
bréfa sem Jón ritar
Þórunni, þar sem
hann fer um víðan
völl, fram og til
baka í tíma og
rúmi, lýsir nátt-
úruhamförunum,
heimsóknunum,
læknisaðgerðum
og þýðingavand-
ræðum og rifj-
ar upp kynni þeirra og sögu
sína allt aftur í frumbernsku. Allt
á þetta sér stoð í skráðum heim-
ildum, en Ófeigur nýtir sér bréfa-
formið til að koma að draumum,
hugrenningum, sjálfsásökun-
um, þunglyndi og reiði Jóns, sem
skráði sjálfur ekkert um þennan
vetur í hellinum.
Þessi blanda staðreynda og
skáldskapar gengur fullkomlega
upp og þótt lesandinn staldri við á
köflum og velti því fyrir sér hvað
sé nú satt og hvað logið í sögunni,
þá skiptir það ekki nokkru máli
þegar upp er staðið. Stíllinn er
meistaralegur og hrífur lesand-
ann með sér inn í þennan þrönga
heim sem þó spannar allan geim-
inn og skírskotar meira en lítið
til samtímans. Hér verða nátt-
úruhamfarir
sem rústa sam-
félögum hinn
11. september,
Skúli landfógeti
ber að sumu leyti
svipmót útrásar-
víkinga, Eggert
og Bjarni voru
kannski forverar
Íslenskrar erfða-
greiningar og
Kötlugosið fyrir-
mynd gossins í
Eyjafjallajökli.
Svona má enda-
laust tengja saman
þátíð sögunnar og
nútíðina en þunga-
miðja sögunnar
eru þó persónurnar
sem spretta ljóslif-
andi upp af síðunum,
einkum Jón sjálfur og það fer ekki
hjá því að hann veki bæði vænt-
umþykju og virðingu svo breysk-
ur og mannlegur sem hann er, en
þó um leið óbugandi.
Það markverðasta við þessa
skáldsögu er þó textinn sjálfur; að
hálfu forn, að hálfu nýr, fljótandi
eins og hraun og undir kraumar
eldur. Ótrúlega hnyttinn, stund-
um bráðfyndinn, á köflum ljóð-
rænn og alltaf tær, alltaf ferskur,
sannkölluð lestrarupplifun.
Friðrika Benónýsdóttir
Niðurstaða: Listilega saminn texti í
fantavel byggðri sögu sem speglar
veruleikann bæði þá og nú. Tvímæla-
laust ein besta skáldsaga ársins.
Orðin eru lífsbjörg
ÓFEIGUR SIGURÐSSON Það markverð-
asta við þessa skáldsögu er textinn; að
hálfu forn, að hálfu nýr, segir í dómnum.
Systurnar Ingibjörg og
Lilja Birgisdætur opna sýn-
inguna á vídeóverkum sem
þær unnu fyrir hljómsveit-
ina múm í gallerí Kling &
Bang í kvöld. múm heldur
sína fyrstu hreinræktuðu
raftónleika hér á landi um
árabil í tilefni sýningarinn-
ar.
Sýning Lilju og Ingibjargar ber
heitið „The Last Shapes of Never“
og samanstendur af safni vídeó-
verka sem þær systur unnu fyrir
viðhafnartónleika múm í Kraká
í Póllandi í september síðastliðn-
um.
„Eftir tónleikana fórum við að
hugsa að það væri gaman að setja
þessi verk upp í galleríi,“ segir
Lilka. Á tónleikunum voru verkin
notuð til að styðja tónlistina en á
sýningunni í Kling & Bang verður
því öfugt farið, þar sem tónlistin
verður notuð til að styðja við vídeó-
verkin.
„Þetta verða ekki hefðbundn-
ir tónleikar að því leyti að múm
leikur tónlistina hálfpartinn af
fingrum fram. Hugmyndin er sú
að það verði eins konar sambræð-
ingur milli listgreina,“ segir Lilja
og lofar miklu stuði á tónleikunum
á opnuninni í kvöld.
Lilja og Ingibjörg eru báðar
myndlistarmenntaðar en hafa
unnið mikið með tónlistarmönn-
um, til dæmis hannað plötuumslög
fyrir tónlistarmenn á borð Amiinu,
Seaber sem og umslagið og mynd-
skreytingar á sólóplötu Jónsa bróð-
ur þeirra, Go. Lilja segir það hafa
verið ósjálfráð þróun að þær fóru
að vinna mikið með tónlistarmön-
um.
„Jónsi er bróðir okkar og Sindri
í Seabear er maðurinn henn-
ar Ingibjargar. Við eigum því
marga vini og kunningja í þessari
kreðsu. Þetta var nokkuð náttúru-
leg þróun.“
Hún segir það að mörgu leyti
heppilegri leið fyrir listamenn að
koma sér á framfæri í gegnum tón-
listartengda miðla og afurðir en
hefðbundin listasöfn og gallerí.
„Myndlist er orðin dálítið óað-
gengileg. Með því að hanna plötu-
umslög erum við að búa til lista-
verk sem fara beint í hendurnar
á fólki. Vandað umslag gerir plöt-
una eða diskinn að eigulegri grip,
sem fólk er frekar reiðubúið til að
kaupa í staðinn fyrir að sækja tón-
listina beint á netið.
Við höfum líka fengið góð við-
brögð við verkum okkar erlend-
is, sem helst kannski í hendur
við hvað íslensk tónlist er orðin
útbreidd.“
Sýningin Lilju og Ingibjargar
stendur aðeins yfir þessa helgi.
Hún verður opnuð klukkan 20 í
kvöld og er öllum opin.
bergsteinn@frettabladid.is
MYNDIR HANDA MÚM
Í MINNINGU KVARAN Listasafn Íslands efnir til tónleika í tengslum við yfirlitssýningu á verkum Karls Kvaran á sunnudag.
Á tónleikunum verður meðal annars flutt verkið Offerto eftir Hafliða Hallgrímsson sem tileinkað er Karli Kvaran en einnig verða
leikin verk eftir Erwin Schulhoff og Zoltán Kodály. Tónleikarnir hefjast klukkan 14.
INGIBJÖRG OG LILJA Systurnar hafa hannað umslög fyrir tónlistarmenn á borð við
Amiinu, Seabear og Jónsa í Sigur Rós. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM
ÚR VÍDEÓVERKINU Vídeóverkin voru sýnd á viðhafnartónleikum múm í Kraká í haust.
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX
„Critics choice“
Time Out, London
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
„Þessi leiksýning hefur allt sem þarf til að
skapa vel heppnað og eftirminnilegt leikverk.“
I.Þ., Mbl.