Fréttablaðið - 10.12.2010, Side 72
48 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR
Helgi Hrafn Jónsson er á
leiðinni í tónleikaferð um
Bretland og Bandaríkin
með dönsku söngkonunni
Tinu Dico. Þau spiluðu
saman á tuttugu tónleikum í
Danmörku fyrir skömmu.
Tónlistarmaðurinn Helgi Hrafn
Jónsson fer í mánaðarlanga tón-
leikaferð um Bretland og Bandarík-
in í febrúar með dönsku söngkon-
unni Tinu Dico. Helgi er nýkominn
heim úr tónleikaferð með henni
um Danmörku þar sem þau spiluðu
saman á tuttugu tónleikum.
„Hún er einn stærsti kvenlista-
maðurinn í Danmörku þannig að
þetta er frábær kynning fyrir
mig,“ segir Helgi Hrafn, sem bæði
hitar upp fyrir Dico og spilar undir
hjá henni á tónleikum og syngur.
„Þetta hefur verið alveg æðislegt
og það hefur verið uppselt á hverja
einustu tónleika.“
Helgi kynntist söngkonunni
þegar hann var á tónleikaferð í
Bandaríkjunum fyrir tveimur
og hálfu ári með færeyska tón-
listarmanninum Teiti. „Þau eru
góðir vinir og hún var með okkur
í nokkra daga í Ameríku og í Kan-
ada. Ég kynntist henni þar og um
sumarið bað hún mig um að syngja
með sér dúett á plötu, sem var
upphafið af okkar samstarfi. Það
varð ekki aftur snúið eftir það,“
segir hann. „Tina er alveg frá-
bær. Við syngjum mikið saman í
prógramminu og raddirnar okkar
blandast vel saman. Það er gaman
að vinna með henni og þetta er
mjög gefandi fyrir mig.“
Dico hefur enn ekki haldið tón-
leika hér á landi, þó svo að hún
hafi komið hingað nokkrum sinn-
um, og Helgi Hrafn hefur sjálfur
ekki spilað hér í langan tíma en
vonast til að breyting verði á því
á næsta ári.
Helgi, sem gaf út sína aðra sóló-
plötu í fyrra, hefur haft í nógu að
snúast á þessu ári eins og undan-
farin ár. Hann hefur spilað á um
eitt hundrað tónleikum á árinu en
er núna kominn heim í tveggja
mánaða hlé frá tónleikahaldi sem
er lengsti tíminn sem hann hefur
dvalið samfleytt á Íslandi í ellefu
ár. Hér heima hefur hann tekið upp
og útsett tónlist fyrir listamenn á
borð við Damien Rice, Tinu Dico,
þýsku hljómsveitina Funkstörung
og Þjóðverjann Philipp Poisel.
Fyrir tveimur árum spilaði hann
á básúnu með Sigur Rós á tónleika-
ferðalagi hennar um heiminn og
hitaði einnig upp fyrir sveitina.
Fram undan hjá Helga eru upp-
tökur á þriðju sólóplötunni, auk
þess sem hann spilar með Dico í
janúar á Eurosonic-bransahátíð-
inni. Þar koma einnig fram Dikta,
Ólöf Arnalds, Who Knew, Endless
Dark og Lára. Einnig eru sólótón-
leikar fyrirhugaðir í Danmörku,
Berlín og í Austurríki í janúar
áður hann heldur í enn eitt ævin-
týrið með Tinu Dico.
freyr@frettabladid.is
Í tónleikaferð með dönsku
söngkonunni Tinu Dico
Á STÖÐUGUM FERÐALÖGUM Helgi Hrafn er á leiðinni í tónleikaferð um Bretland og Bandaríkin með Tinu Dico. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Johnny Depp þakkar Marlon
Brando fyrir góð ráð og að hafa
raunar lagt grunninn að ferli hans,
í viðtali við breska blaðið The
Sun. Brando og Depp léku saman
í tveimur myndum, Don Juan og
The Brave, en það er fyrsta og eina
kvikmyndin í fullri lengd sem Depp
hefur leikstýrt. Þeir urðu miklir
vinir og Brando leiddi hann í allan
sannleika um hvernig væri best að
ná árangri í Hollywood.
„Hann spurði mig hvað ég léki
í mörgum myndum á ári. Og þá
var ég að gera þrjár á hverju ári.
Hann sagði að það væri of mikið,
við ættum ekki svo mörg andlit í
pokahorninu,“ segir Depp, sem
hefur um árabil verið einn fremsti
karlleikari kvikmyndaborgarinn-
ar og um leið sá sérvitrasti, eins og
Brando.
Depp segist einnig í viðtalinu
ekki líta á sig sem stórstjörnu, hann
geti ekki hugsað um sig sem slíka.
Hann viðurkennir hins vegar að
honum hafi gengið vel en um helg-
ina verður kvikmyndin The Tour-
ist frumsýnd þar sem Depp leikur
á móti Angelinu Jolie. Miklar vonir
eru bundnar við myndina enda ekki
á hverjum degi sem slíkar stór-
stjörnur leiða hesta sína saman.
„Angelina er frábær og það er
virkilega gaman að vinna með
henni, hún er klár og hefur ákaf-
lega skemmtilegan og skrítinn
húmor,“ segir Depp um mótleik-
konu sína.
Depp þakkar Brando fyrir ferilinn
ÞAKKLÁTUR Depp og Marlon Brando
urðu miklir vinir þegar þeir léku saman
í Don Juan og The Brave. Depp segir
Brando hafa gefið sér bestu ráðin í
kvikmyndabransanum.
TINA DICO
■ Heitir réttu nafni Tina Dickow.
■ Hóf feril sinn 1997, tvítug að aldri.
■ Hefur gefið út sjö hljóðversplötur.
■ Gerði útgáfusamning við Sony árið 2004.
■ Söng tvö lög á plötu breska dúósins Zero 7, When It
Falls.
■ Samdi tónlistina við dönsku myndina Oldboys.
■ Þrívegis kjörin söngkona ársins af tímaritinu Gaffa.
Leikkonan Liv Tyler segir í viðtali við tímaritið People að hún hafi
ekki gaman af því að fara á stefnumót. Leikkonan hefur verið á
lausu frá því hún skildi við eiginmann sinn árið 2008.
„Ég hef í raun aldrei farið á stefnumót áður. Ég er ekki vel að mér
í þeim efnum,“ sagði leikkonan, sem nýtur þess í stað að eyða tíma
með sex ára gömlum syni sínum.
Tyler segist engu minna spennt fyrir jólunum en sonur hennar.
„Ég er svolítið kjánaleg. Ég vakna ennþá klukkan sex að morgni
jóladags og hleyp að jólatrénu. Alveg eins og barn.“
Hlakkar til jólanna
12 vikum eyddu Páll Óskar og Memfismafían á toppi Lagalistans
með ofursmellinn Það geta ekki allir verið gordjöss. Lagalistinn
tekur mið af hlustun á allar helstu útvarpsstöðvar landsins.
Páll Óskar
í dag!
1.992,-
Í verslun Eymundsson
í Smáralind kl. 17.00
krakkar@frettabladid.is
Krakkasíðan er í helgarblaði
Fréttablaðsins
folk@frettabladid.is