Fréttablaðið - 10.12.2010, Page 76
52 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR
Bíó ★★
Paranormal Activity 2
Leikstjóri: Tod Williams. Aðalhlutverk: Sprague Grayden, Brian Boland,
Katie Featherston, Micah Sloat, Molly Ephraim.
Álíka spennandi og soðin ýsa
Hrollvekjan Paranormal Activity sló í gegn árið 2007 en hún var gerð af
áhugafólki fyrir nánast engan pening og malaði gull. Myndin sjálf var nú ekki
merkileg, en náði þó að hræða líftóruna úr sumum og að sjálfsögðu varð að
gera framhaldsmynd.
Paranormal Activity 2 segir frá hjónunum Dan og Kristi sem hafa nýlega
eignast son. Dan á dóttur frá fyrra hjónabandi og virðist hafa komið vel
undir sig fótunum. Húsið er stórt, þau eru með heimilishjálp og risastóra
sundlaug í garðinum. Og já, svo byrjar draugagangur.
Það er algengur misskilningur meðal sumra kvikmyndagerðarmanna að til
þess að gera vel heppnaða hrollvekju sé nauðsynlegt að láta áhorfandanum
bregða nógu oft. Sjálfur var ég alveg á nálum en ekki vegna þess að myndin
vekti hjá mér raunverulegan ótta við draugaganginn, heldur meira eins og
þegar maður er nálægt smábarni að leika sér með uppblásna blöðru sem
er tímaspursmál hvenær springur. Það er ekki spennandi, heldur meira
pirrandi.
Líkt og forveri hennar er Paranormal Activity 2 frekar mikið svindl. Í
klukkutíma eru pönnur að detta af krókum sínum og leikfangabílar að fær-
ast úr stað. Seinasta hálftímann gerist síðan eitthvað voðalegt. Ég náði því
varla hvað það var en myndavélin hristist voða mikið þannig að það hlýtur
að hafa verið frekar ofsafengið.
Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Lítið í gangi hér. Hrollvekjuunnendur eiga betra skilið.
Ljósmynd sem Valgarður
Gíslason, ljósmyndari
Fréttablaðsins, tók af rit-
höfundunum og hjónunum
Braga Ólafssyni og Sigrúnu
Pálsdóttur svipar mjög til
þekktrar myndar af John
Lennon og Yoko Ono.
„Ætli ég sé ekki hinn kvenlegi
aðili í okkar sambandi, enda sér
Sigrún um peningamálin,“ segir
rithöfundurinn Bragi Ólafsson.
Ljósmynd sem Valgarður Gísla-
son tók af Braga og eiginkonu
hans Sigrúnu Pálsdóttur og birtist
síðasta laugardag í Fréttablaðinu
svipar mjög til þekktrar myndar
af John Lennon og Yoko Ono sem
var tekin árið 1980. Bæði pörin
ganga í átt að myndavélinni með
tré í bakgrunninum að vetri til.
Það sem vekur sérstaka athygli er
að Lennon er með hendur í vösum,
rétt eins og Sigrún, sem gerir það
að verkum að Bragi er í hlutverki
Ono, ef svo má að orði komast.
Spurður hvort hann og Sigrún
eigi eitthvað sameiginlegt með
John og Yoko segir Bragi: „Við
eigum það sameiginlegt með
þeim að hafa útsýni yfir falleg-
ustu garða þeirra borga sem við
búum í, eða bjuggu í þeirra til-
viki. Þau úr Dakota-byggingunni
yfir Central Park, þar sem ég geri
ráð fyrir að þau séu stödd á mynd-
inni, og við af Suðurgötunni yfir
Hólavallakirkjugarðinn, þar sem
myndin af okkur er tekin.“
Bragi segir það svolítið fyndið
að blaðamaður skuli hafa hringt
í hann út af myndunum tveim-
ur. „Eftir að við fengum tilnefn-
ingarnar um daginn [til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna], ég og
Sigrún, fékk ég póst frá vini sem
sagði: „Þið hljótið að gleðjast yfir
þessu“. Ég svaraði með orðunum
Double Happiness, sem er jap-
anskt slagorð fyrir eitthvað sem
ég man ekki hvað var. Síðan datt
mér líka í hug Double Fantasy [síð-
asta plata Lennons og Ono]. Ætli
þessi mynd sé ekki tekin á svip-
uðum tíma og þau voru að gera
hana.“
Bragi, sem er fyrrverandi
meðlimur Sykurmolanna, segist
aldrei hafa verið mikill aðdáandi
Lennons. „Mér finnst margt mjög
fínt sem hann hefur gert en ég
hef aldrei átt plötu með Bítlun-
um eða John Lennon. Ég var oft
spurður að þessu í viðtölum út af
tónlist. Þá var alltaf þessi klass-
íska spurning Stones eða Bítlarn-
ir, eða Lennon eða Paul McCartn-
ey. Ég þóttist alltaf vera Paul
McCartney-maður. Ég er reyndar
kominn á þá skoðun að ég er miklu
meiri Ringo-maður, á sama hátt
og Charlie Watts er sá sem býr til
Rolling Stones. Það er eiginlega
bítið í þessum hljómsveitum sem
knýr þær áfram,“ segir hann og
heldur áfram: „Þótt ég hafi aldrei
átt plötu með John Lennon var
það rosalegt sjokk þegar maður
heyrði um morðið á honum. Þetta
var í rauninni það sama og morðið
á Kennedy var fyrir aðeins eldra
fólkið.“ freyr@frettabladid.is
BRAGI ER YOKO EN SIGRÚN ER LENNON
SVIPAÐAR MYNDIR
Mynd Valgarðs af Braga og Sigrúnu svipar mjög til þekktrar ljósmyndar af John Lennon og Yoko Ono sem var tekin árið 1980.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
52
23
6
11
/1
0
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS
1.990kr.Verð frá
Boltar
JÓLAGJÖFIN