Fréttablaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 81
FÖSTUDAGUR 10. desember 2010 57
Í TJARNARBÍÓI Jónas Sigurðsson ásamt söngkonunni Esther Jökulsdóttur á tónleikun-
um í Tjarnarbíói. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðs-
son hélt vel heppnaða tónleika í
Tjarnarbíói í vikunni ásamt hljóm-
sveit sinni Ritvélum framtíðarinnar.
Tilefnið var önnur plata hans, Allt
er eitthvað, sem kom út í október.
Þar er meðal annars að finna sumar-
smellinn Hamingjan er hér.
„Við tókum útgáfutónleika í
Tjarnarbíói og þeir gengu mjög vel
þannig að okkur langaði að halda
aðra svoleiðis tónleika fyrir jólin,“
segir Jónas, sem var ánægður með
útkomuna. „Það sem þetta konsept
gengur út á er að vera með þrum-
andi tónleika því músíkin er svo
stór. Það verður að krydda þetta
með þvílíkum látum.“
Fyrsta upplagið af nýju plötunni,
sem telur 1.500 eintök, er uppselt
og annað er á leiðinni. Síðasta plata
Jónasar, Þar sem malbikið svífur
mun ég dansa, hefur selst í um
1.000 eintökum síðan hún kom út
en hún fékk mun minni kynningu.
„Sölutölurnar í þessum jólaslag eru
eitt. Svo er annað sem er kjarninn í
þessu sem er músíkin. Hún nær út
og fólk er að tengja við hana. Mér
finnst það mjög sterkt, því töfrarn-
ir gerast þar,“ segir Jónas.
Ritvélar fram tíðar innar munu
spila á Norðurpólnum 21. desember
ásamt Moses Hightower, Big Bandi
Samúels J. Samúelssonar og Ómari
Guðjónssyni. - fb
Fyrsta upplag uppselt
Fjórða plata Benna Hemm
Hemm er komin út. Útgáf-
unni seinkaði, meðal annars
vegna mikilla snjóþyngsla í
Bretlandi.
Fjórða plata Benna Hemm Hemm,
Skot, er loksins komin út, rúmum
mánuði á eftir áætlun. Ein af
ástæðunum er hinn mikli snjó-
þungi sem hefur verið í Bretlandi
upp á síðkastið en þar var gripur-
inn framleiddur.
„Ég er löngu hættur að hafa
áhyggjur af þessu en það að hún
sé komin út gleður mig mikið,“
segir Benni, sem hefur verið
búsettur í Skotlandi undanfarin
ár. Hljómsveitin Retro Stefson
sér um undir leik fyrir Benna á
plötunni og var hann ánægður
með framlag hennar. „Þau eru
svo æðislegir krakkar. Þau tóku
vel í mínar vinnuaðferðir en ég er
dálítið harður hljómsveitar stjóri.
Þau eru svo hæfleikarík að þau
rúlluðu þessu upp.“
Fyrsta plata Benna, sem hét ein-
faldlega Benni Hemm Hemm, kom
út árið 2006. Síðan hafa þær Kajak
(2007) og Murta St. Calunga (2008)
fylgt í kjölfarið en fyrir utan þær
stóru hafa komið út nokkrar smá-
skífur.
Benni segir nýju plötuna tölu-
vert frábrugðna fyrri verkum
sínum. Í þetta sinn skipti hann sér
ekki eins mikið af tæknilegu vinn-
unni. „Ég ákvað að leyfa Bigga,
upptökumanni í Sundlauginni, að
sjá um þetta. Það var dálítið stórt
skref fyrir mig að sleppa aðeins
hendinni af þeim hluta. Það er
líka allt annað fólk sem ég var
að vinna með og lögin finnst mér
dálítið mikið öðruvísi.“
Út g á f utó n le i k a r ve g n a
plötunnar verða haldnir á Bakk-
usi á laugardagskvöld en fyrr um
daginn spilar Benni í Havaríi, kl.
16. Retro Stefson sér um undirleik
fyrir Benna og Prinspóló og Báru-
járn hita upp. Dj Öfull sér svo um
tónlistina á Bakkusi fram undir
morgun. Miðar fást í Havarí og
kosta 1.000 kr. í forsölu. Miðaverð
við hurð er 1.500 kr.
freyr@frettabladid.is
Snjóþyngsli töfðu útgáfu
BENNI HEMM HEMM Fjórða plata Benna er komin út, töluvert á eftir áætlun.
Stefnir – Samval er blandaður fjárfestingarsjóður með virka stýringu í skuldabréfum og hluta-
bréfum, auk sérhæfðra fjárfestinga. Við framkvæmd fjárfestingarstefnu er tekið mið af mati allra
fjárfestingarteyma og fjárfest í þeim eignaflokkum sem taldir eru ákjósanlegastir hverju sinni.
Með því að fjárfesta í Stefni – Samvali færðu aðgang að faglegri eignastýringu í einum sjóði.
Þú vilt nýta tækifærin sem
gefast og að vel sé hugsað
um fjárfestinguna þína.
Hafðu samband
Helstu kostir Stefnis - Samvals eru:
í langtímasparnaði
Stefnir - Samval
Hafðu samband við ráðgjafa okkar og kynntu þér það sem við höfum að bjóða.
Eignayfirlit 30. 11. 2010 s2
Innlend