Fréttablaðið - 10.12.2010, Page 83
FÖSTUDAGUR 10. desember 2010 59
Carey Mulligan fékk eitt sinn
þær ráðleggingar frá húðlækni
sínum að hún ætti að fá sér bótox
til að fjarlægja hrukkur í kring-
um augun. Mulligan hefur leik-
ið í kvikmyndum á borð við An
Education og Wall Street: Money
Never Sleeps.
„Ég spurði hann hvað ég gæti
gert við línur sem höfðu mynd-
ast í kringum augun og hann
ráðlagði mér að fá mér bótox.
Ég varð mjög hissa, sem leik-
kona skiptir mestu máli að geta
sýnt svipbrigði, það
getur maður ekki gert
eftir bótox. Aðeins í Los
Angeles mundi lækn-
ir mæla með slíkri
aðgerð við 25 ára
gamla manneskju,“
sagði leikkonan sem
viðurkennir jafn-
framt að henni finn-
ist hún sjaldan kyn-
þokkafull á rauða
dreglinum. „Ég er
frekar þessi skyn-
sama týpa. Mér þætti
skrítið að klæðast
flegnum fötum.“
Ekkert bótox
EKKERT BÓTOX Carey
Mulligan neitaði að fá sér
bótox við hrukkum í kringum
augun.
Bandaríska söngkonan Katy
Perry hyggst breyta nafni sínu
og taka upp eftirnafn eigin-
manns síns, grínistans Russells
Brand.
Perry og Brand hafa verið gift
í tvo mánuði og í viðtalsþætti
Ellen DeGeneres viðurkenndi
Perry að hún ætlaði sér að taka
upp eftirnafn eiginmannsins og
verða frú Brand.
„Ég er orðin vön nafninu því
ljósmyndarar kalla mig frú
Brand þegar ég sæki viðburði.
Þeir byrjuðu á þessu þegar
þeir vildu vekja athygli á sér
og það virkaði í hvert sinn,“
sagði Perry. Hún segir hjóna-
lífið vera ljúft og þakkar góðu
skopskyni eiginmannsins fyrir.
„Góður húmor er mjög mikil-
vægur á okkar heimili. Við hlæj-
um saman og slöppum þannig af
eftir erfiðan dag.“
Frú Brand
HERRA OG FRÚ Katy Perry hyggst taka
upp eftirnafn eiginmanns síns, gaman-
leikarans Russell Brand.
NORDICPHOTOS/GETTY
Breska poppsveitin Suede, sem
kom nýlega saman eftir nokkurra
ára hlé, spilaði á sínum stærstu
tónleikum innandyra til þessa á
þriðjudagskvöld. Tónleikarnir
voru haldnir í O2-höllinni í Lond-
on, sem tekur ríflega tuttugu þús-
und áhorfendur. Þar spiluðu strák-
arnir öll sín bestu lög, þar á meðal
Animal Nitrate, Trash og Beautiful
Ones. „Þakka ykkur fyrir. Þetta
hefur verið yndislegt kvöld og það
er alltaf gaman að spila í London.
Kannski sjáið þið okkur aftur ein-
hvern tímann,“ sagði söngvarinn
Brett Anderson eftir að lokalagið
Saturday Night var búið.
Suede fór í stutta tónleikaferð
um Evrópu áður en kom að tónleik-
unum í O2-höllinni sem heppnuð-
ust mjög vel.
Suede í stórri höll
SUEDE Bresku poppararnir spiluðu í O2-
höllinni í London fyrir skömmu.
Mick Jagger, söngvari The Rolling Stones, segir að
sjálfsævisaga gítarleikarans Keiths Richards, Life,
sé leiðinleg og að hann myndi aldrei skrifa sögu í
svipuðum dúr.
„Mér finnst þetta frekar leiðinleg upprifjun á
fortíðinni. Oftast gerir fólk þetta fyrir peninginn,“
sagði Jagger í viðtali við New York Times. Spurður
um möguleika á eigin ævisögðu sagði hann: „Ég vil
ekki enda upp eins og einhver gamall fótboltakappi
á barnum sem talar um sendinguna sem hann átti í
bikarúrslitaleiknum árið 1964.“
Richards gagnrýnir Jagger í bókinni og segir hann
afar stjórnsaman. Einnig segir hann getnaðarlim
söngvarans lítinn. Þrátt fyrir skotin sem hafa fokið
á milli þeirra segjast þeir báðir vinna vel saman og
vera góðir vinir. Búist er við því að Stones fari í nýja
tónleikaferð um heiminn á næsta eða þarnæsta ári.
Finnst ævisaga Keiths leiðinleg
FÉLAGAR Jagger og Richards eru félagar þrátt fyrir að þeir skjóti
hvor á annan. NORDICPHOTOS/AFP
Jólatilboð fraktflugs Flugfélags Íslands gerir þér
kleift að senda pakka frá 1–10 kg, hvert sem innihaldið
er og til allra áfangastaða, fyrir aðeins 990 kr.
Tilboðið gildir frá 10. til 18. desember.
SENDU JÓLAPAKKANA
HRATT OG ÖRUGGLEGA
flugfelag.is
Akureyri 460 7060
Egilsstaðir 471 1210
Grímsey 467 3148
Ísafjörður 456 3000
Reykjavík 570 3400
Vopnafjörður 473 1121
Þórshöfn 468 1420