Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.12.2010, Qupperneq 86

Fréttablaðið - 10.12.2010, Qupperneq 86
 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR62 sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Newcastle réð í gær Alan Pardew sem knattspyrnustjóra félagsins en hann tekur við starf- inu af Chris Hughton sem var rek- inn á mánudag. Mike Ashley, eig- andi Newcastle, hefur greinilega mikla trú á Pardew því hann gerði fimm og hálfs árs samning við stjórann. Ráðning Pardew er frekar umdeild og margir stuðnings- menn félagsins taka honum ekki beint opnum örmum. Pardew viður- kennir sjálfur að það verði erfitt að vinna leikmenn og stuðnings- menn félagsins á sitt band. „Það eru mikil forréttindi að sitja hér eftir þessa ráðningu og verkefnið sem bíður mín er spenn- andi og erfitt. Það er sérstaklega erfitt þar sem bæði leikmenn og stuðningsmenn báru mikla virð- ingu fyrir Chris og brotthvarf hans hefur fallið í frekar grýttan jarð- veg hjá mörgum,“ sagði Pardew á blaðamannafundi í gær en marg- ir leikmenn liðsins hafa lýst yfir vonbrigðum með þá ákvörðun að reka Hughton. „Vandamál númer eitt er leik- mennirnir. Ég þarf að koma mínum skilaboðum á framfæri hið fyrsta og á skýran hátt. Bardagarnir sem þarf að vinna eru á vellinum. Ég veit að verkefnið er erfitt en ég gat ekki hafnað því að fá að stýra þessu liði.“ Lengd samningsins hefur vakið mikla athygli og Pardew viður- kennir að hafa lamið það í gegn. „Ég var mjög harður á því að fá langan samning svo það væri hægt að fá tíma til þess að vinna og ná stöðugleika í félagið. Það hefur vantað stöðugleika víða og þar á meðal með stjóra félagsins sem margir hafa staldrað stutt við. Ég ætla mér að ná árangri til lengri tíma hérna. Ég tel mig hafa skil- að góðu verki áður í úrvalsdeild- inni en ætla samt ekki að bera mig saman við Chris, sem hefur skilað frábæru starfi,“ sagði Pardew. Hann var stjóri West Ham er Björgólfur Guðmundsson keypti félagið en Eggert Magnússon var fljótur að reka hann úr stjórastóln- um hjá Lundúnafélaginu. - hbg Alan Pardew ráðinn í stað Chris Hughton hjá Newcastle og gerði langan samning: Erfitt verður að vinna alla á mitt band ALAN PARDEW Hér á blaðamannafund- inum í gær. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Fallna hetjan Paul Gas- coigne mætti fyrir dómara í gær en hann hefur verið iðinn við að láta grípa sig ölvaðan undir stýri. Gazza játaði brot sitt í gær en hann var með fjórum sinnum meira áfengismagn í blóðinu en leyfilegt er þegar hann var tek- inn í fyrsta skiptið. Landsliðsmaðurinn fyrrver- andi fékk tveggja mánaða fang- elsisdóm en hann sleppur við tukthús ef hann heldur skilorð í eitt ár. Hann er samt ekki alveg sloppinn því enn á eftir að taka fyrir annað mál þegar hann var tekinn ölvaður undir stýri. Ökuskírteinið var að sjálfsögðu tekið af Gazza en hann má ekki keyra næstu þrjú árin og þarf þess utan að fara í áfengismeð- ferð. - hbg Paul Gascoigne: Slapp við fangelsisdóm FJÖLMIÐLAFÁR Fjölmargir ljósmyndarar mættu til að fylgjast með Gazza í gær. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Það þykir vera heitt undir Carlo Ancelotti, stjóra Chelsea, enda hefur gengi liðsins verið skelfilegt síðustu vikur. Stöðugur orðrómur er um að Pep Guardiola, þjálfari Barce- lona, muni taka við liðinu næsta sumar en sú umræða truflar Anc- elotti ekki. „Ég hef engar áhyggjur af minni stöðu hjá félaginu. Eina sem ég hef áhyggjur af er gengi liðsins. Við verðum að rífa okkur upp hið fyrsta,“ sagði Ancelotti en Chelsea tapaði fyrir Marseille í Meistaradeildinni í vikunni. „Ég valdi mitt besta lið í leik- inn gegn Marseille því það geng- ur illa og þarna var tækifæri til að komast á sigurbraut. Við nýtt- um ekki það tækifæri og spiluð- um illa.“ - hbg Carlo Ancelotti: Óttast ekki að verða rekinn Nýtt og betra kjötborð, frábær afmælistilboð og 25% afsláttur í hverri hillu! Kíktu í heimsókn, við tökum vel á móti þér. 25 ára! Þín verslun | Seljabraut 54 | sími 557 1780 Opnunartími: Mán.–fös. 9–21 / lau.–sun. 10–21 ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA Íþróttasamband fatlaðra hélt sína árlegu móttöku á Radisson Hótel Sögu í gær þar sem Íþróttamaður og Íþróttakona ársins fengu sín verðlaun. Þetta er alltaf jafn hátíðleg stund og er fyrir marga orðinn fastur liður í aðdrag- anda jólanna. Eyþór Þrastarson og Sonja Sigurðardóttir höfðu fengið þessi verðlaun undanfarin tvö ár en að þessu sinni fóru bikararnir í nýjar hendur. Setti 19 Íslandsmet á árinu Jón Margeir Sverrisson er aðeins 18 ára gamall sundmaður. Hann fór á kostum á árinu í flokki S14, sem er flokkur þroskahamlaðra. Jón Mar geir stóð sig meðal ann- ars frábærlega á Reykjavík Inter- national þar sem hann vann allar sex greinarnar sínar ásamt því að vera stigahæsti fatlaði keppand- inn. Hann sló líka í gegn á opna þýska meistaramótinu þar sem hann vann fullt af verðlaunum. Jón setti alls 19 Íslandsmet í 11 grein- um á árinu. „Ég er mjög ánægður með árið og þessi verðlaun,“ segir Jón Mar geir en segir síðan kokhraust- ur að þetta hafi ekki komið sér á óvart. „Ég vissi að þetta var búið að vera frábært ár hjá mér, ég var búinn að leggja mikið á mig á erfið- um æfingum,“ sagði Jón Margeir. Þrátt fyrir öll Íslandsmetin hefði hann viljað setja fleiri. „Ég ætlaði mér að setja met í 19 greinum en ekki bara ellefu greinum,“ segir Jón í léttum tón og það er ljóst að metnaðurinn er mikill hjá þessum efnilega sundmanni. Hann segist líka ekki vera hættur að setja met. „Ég ætla að bæta fullt af Íslands- metum á næsta ári. Ég ætla að æfa meira og bæta mig eins mikið og ég get. Ég þarf bæði að æfa þrek og bæta tæknina,“ segir Jón en hann vill alls ekki vera kallaður ungur. „Ég er ekki ungur, ég er svona sæmilega ungur. Það er einn Breti sem er tveimur árum eldri en ég og hann er rosalega öflugur. Það er draumurinn hjá mér að ná honum,“ segir Jón. „Að fá svona bikar hvetur mann áfram til þess að æfa meira og ég ætla að fara á opna breska mótið á næsta ári og svo á Evrópumeist- aramótið. Svo er ég líka farinn að horfa til Ólympíuleikanna 2012. Ég þarf að leggja allt sem ég á í æfingar og bæta það sem ég þarf að laga til þess að komast til Lond- on. Ég þarf líka að vera duglegur að hlusta á þjálfarana til þess að fá að vita hvað ég þarf að gera betur,“ segir Jón Margeir. Hann ætlar sér stóra hluti í framtíðinni og það verður gaman að sjá hvernig gengur hjá honum á næsta ári. Fyrst til að keppa í alpagreinum á vetrarólympíuleikum fatlaðra Erna Friðriksdóttir er 23 ára og félagi í Skíðadeild Hattar á Egils- stöðum. Erna varð í ár fyrsti Íslendingurinn til þessa að keppa á Vetrarólympíumóti fatlaðra í alpagreinum en hún vann einnig til verðlauna á undirbúningsmót- um fyrir leikana í Vancouver. „Ég er að sjálfsögðu mjög stoltur af henni,“ segir Friðrik Guðnason, faðir Ernu, sem tók við verðlaun- unum fyrir hönd dóttur sinnar sem er í miðjum æfingabúðum í Winter Park í Colorado í Bandaríkjunum. Erna hefur verið í æfingum með landsliði Bandaríkjanna frá árinu 2006 og hún tryggði sér þátttöku- rétt á Ólympíuleikunum í Vancou- ver sem voru haldnir á þessu ári. „Hún tók þessu með jafnaðar- gleði þegar við sögðum henni frá þessu í gærkvöldi. Hún var ánægð og hefði örugglega viljað vera hérna til þess að taka á móti þessu sjálf,“ segir Friðrik. Erna er í 17. sæti á heimslistanum í svigi og í 22. sæti í stórsvigi. „Ég sá hana ekki komast svona langt þegar hún fór af stað því við vissum ekkert hvað við vorum að gera í byrjun. Við erum búin að standa í þessu í tíu ár og það er búið að ganga á ýmsu á þessum tíma. Við kunnum nú hvorugt á skíði í byrjun en ég aðstoðaði Ernu fyrstu árin á meðan hún þurfti aðstoðarmann. Nú er það liðin tíð og maður er orðinn óþarfur,“ segir Friðrik í léttum tón. „Ég held að áhuginn á skíðum hafi komið frá bræðrum hennar. Hún á tvo bræður sem voru báðir á skíðum. Það var því draumur- inn hjá henni að komast á skíði,“ segir Friðrik, sem er ánægður með allar aðstæður hjá Ernu í Banda- ríkjunum. „Það hefur hjálpað henni mikið að komast að þarna í Winter Park og það er þess vegna sem hún er komin þetta langt. Hún verið þarna á stífum æfingum, því hún æfir þarna fimm daga í viku og í sex tíma á dag. Hún er bara á skíðum allan daginn frá níu á morgnana til fjögur á kvöldin,“ segir Friðrik. Hann segir að Erna sé alltaf jafn áhugasöm. „Hún bíður eftir því að komast út aftur. Ég hef komið tvisvar til hennar og svo fórum við líka, ég, konan og sonur okkar, eftir Ólympíuleikana í Vancouver. Við fórum frá Vancouver til Winter Park. Það var frábært fyrir hana að keppa á Ólympíuleikunum og hún er þegar farin að horfa til Sotsji. Ég viðurkenni það alveg að mig langar líka þangað líka,“ segir Friðrik að lokum. ooj@frettabladid.is Árið þeirra Ernu og Jóns Margeirs Sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson úr Ösp/Fjölni og skíðakonan Erna Friðriksdóttir úr Hetti voru í gær valin Íþróttamaður og Íþróttakona ársins hjá fötluðum en bæði voru að fá þessi verðlaun í fyrsta sinn. SÖGULEGT Í VANCOVER Erna Friðriks- dóttir varð fyrsti Íslendingurinn til þessa að keppa á Vetrarólympíumóti fatlaðra í alpagreinum. ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Jón Margeir Sverrisson sést hér ánægður með verðlaunin sem hann fékk í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HELENA SVERRISDÓTTIR átti stórleik með TCU í bandaríska háskólaboltanum í fyrrinótt en hún skoraði þá 30 stig á 25 mínútum í 81-39 sigri á UT Arlington. Hún hefur aldrei skorað svona mikið í einum leik í búningi TCU. Helena hitti úr 11 af 17 skotum sínum þar af 5 af 7 fyrir utan þriggja stiga línuna. Hún var einnig með 6 fráköst og 4 stoðsendingar í leiknum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.