Fréttablaðið - 10.12.2010, Page 94
70 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Ég myndi halda að það væri
lagið You Got the Love með
Candi Staton.“
Sigríður Thorlacius, söngkona
„Þegar menn eru búnir að reisa
fossa í New York og byggja sól er
þetta kannski rökrétt framhald,“
segir Börkur Arnarson hjá list-
galleríinu i8, einn nánasti sam-
starfsmaður Ólafs Elíassonar hér
á landi.
Íslenski listamaðurinn verð-
ur ein af stjörnum Listahátíð-
ar í London árið 2012 sem haldin
verður í tengslum við Ólympíu-
leikana þar. Í kynningu á listahá-
tíðinni segir að fremstu listamenn
heims hafi verið valdir til að taka
þátt í þessum einstaka viðburði.
Meðal þeirra eru leikkonan Cate
Blanchett, rithöfundurinn Toni
Morrison, leikstjórinn Mike Leigh
og stórstjörnurnar Damon Albarn
og Jude Law. Ólafur verður aðal-
númerið í listhlutanum en Börkur
sagðist ekki vita hvert hans hlut-
verk væri. „Ég held alveg örugg-
lega að þetta eigi að koma fólki á
óvart og menn vilji ekki ræða um
það í smáatriðum.“ Fram kemur í
fréttatilkynningu að Ólafur sé að
vinna sérstakt verk fyrir hátíðina
ásamt listakonunni Rachel White-
read og að það verði til sýnis.
Börkur segir það ekki koma sér
á óvart að Bretarnir skuli hafa fal-
ast eftir kröftum Ólafs. Listamað-
urinn sé í fremstu röð í nútímalist
en veðursýning hans í Tate Mod-
ern var valin einn af menningar-
viðburðum fyrsta áratugar þess-
arar aldar í breska blaðinu The
Tele graph. Boris Johnson, borgar-
stjóri London, fór enda fögrum
orðum um hópinn sem Ólafur til-
heyrir í fréttatilkynningunni.
„Listamennirnir eru af þeirri
stærðargráðu að öllum ætti að vera
það ljóst að árið 2012 verður eitt af
eftirminnilegri árum í sögu Lond-
on.“ Undir það tók Sebastian Coe,
formaður Ólympíunefndarinnar
BÖRKUR ARNARSON: RÖKRÉTT FRAMHALD FYRIR ÓLAF ELÍASSON
Ólafur ein af stjörnum
Ólympíulistahátíðar í London
„Ég er mjög mikill aðdáandi
Sigur Rósar og Jóns og nafnið
er augljóslega vísun í lag hljóm-
sveitarinnar,“ segir Petter Fos-
haug, stofnandi norska húfu-
framleiðandans Hoppipolla
Headwear.
Fyrirtækið var stofnað á árinu
og er nefnt eftir lagi Sigur Rósar
Hoppípolla af plötunni Takk....
sem kom út árið 2005. Lagið er
eitt allra útbreiddasta lag hljóm-
sveitarinnar og hefur verið notað
í fjölmörgum auglýsingum, sjón-
varpsþáttum og kvikmynda-
stiklum. Lagið var til að mynda í
stiklu Óskarsverðlaunamyndar-
innar Slumdog Millionaire og í
auglýsingum þátta David Atten-
borough, Planet Earth. Loks
heyrðist lagið í umfjöllun breska
ríkisútvarpsins BBC um björgun
námuverkamannanna í Síle.
Petter Foshaug er mikill
Íslandsvinur og hefur sjö sinn-
um heimsótt landið. Bretta-
kappinn Halldór Helgason kom
Hoppipolla-húfunum rækilega
á framfæri þegar hann var með
eina á hausnum þegar hann vann
til gullverðlauna í háloftaflokki
bandaríska X-Games mótsins í
janúar, sem er eitt stærsta mót
sinnar tegundar í heiminum.
„Vinsældir Halldórs hafa hjálp-
að mikið og við höfum verið á
meðal mest seldu húfanna í flest-
um búðanna sem við dreifum í,“
segir Foshaug, en húfunum er
dreift víða um Evrópu og alla
leið til Kóreu.
En nú eru strákarnir í Sigur
Rós þekktir fyrir ást sína á lopa-
húfum, hafa þeir fengið sendar
Hoppipolla-húfur?
„Við erum komnir með dreif-
ingaraðila á Íslandi og þeir ætl-
uðu að kanna hvort það væri
hægt að fá meðlimi Sigur Rósar
til að nota húfurnar,“ segir Pett-
er Foshaug.
Norskar húfur nefndar eftir Sigur Rós
STYÐUR NORSKAN VIN Halldór Helgason
var með Hoppipolla-húfu þegar hann
vann til gullverðlauna á X-Games-mót-
inu í janúar.
„Staðurinn þurfti mikilla breytinga við og nafna-
breyting var stór hluti af því, til að gefa staðn-
um nýjan blæ,“ segir Veigar Freyr Jökulsson, sem
hefur tekið við rekstri Hótels Brúar í Borgarfirðin-
um, sem hét áður Mótel Venus.
„Við erum búnir að vera sveittir fram á nætur að
gera staðinn huggulegan,“ segir Veigar Freyr, sem
hélt opnunarhóf um síðustu helgi eftir að hafa sent
út boðskort til Borgarness og nágrennis. „Það voru
hérna vel yfir hundrað manns sem mættu og það
voru allir svaka hrifnir og ánægðir með að það sé
eitthvað að gerast á þessum stað. Húsið er rosaflott
en fólkið fékk einhvern kjánahroll virðist vera af
gamla nafninu og fannst það aldrei eiga neitt erindi
hingað.“
Gamli staðurinn var auglýstur sem leiðin að
rómantísku kvöldi og orðrómur var lengi vel uppi
um að fólk notaði hann til framhjáhalds. Veigar
segir þetta skemmtilega sögu en engan flugufót
vera fyrir henni. „Ég finn ekki annað út en að
nafnið eitt hafi skapað þessa sögu, þessi blanda af
þessum tveimur orðum.“
Veigar, sem rekur staðinn með hálfbróður sínum
Gústafi Hannibal, segir að Hótel Brú verði af öðrum
toga en forveri sinn. „Þetta verður alvöru veitinga-
staður. Við ætlum ekki að fara í þennan hamborgara-
slag við Borgarnes. Þetta er kjörið fyrir vinnuhópa,
árshátíðir og annað álíka á veturna,“ segir hann og
bætir við að umhverfið skemmi ekki fyrir: „Þetta
er rétt við þjóðveginn. Þú keyrir hundrað metra og
ert kominn í algjöra paradís hérna í Hafnarskógi.
Útsýnið er alveg óborganlegt hérna yfir Borgar-
fjörðinn.“
Áhugasamir geta skoðað síðuna hotelbru.is vanti
þá frekari upplýsingar. - fb
Nýir húsbændur á Mótel Venus
VEIGAR OG GÚSTAF Veigar Freyr Jökulsson (til hægri) og
Gústaf Hannibal Ólafsson hafa tekið við rekstri Hótels Brúar í
Borgarfirðinum.
Í MÖGNUÐUM HÓPI
Ólafur Elíasson er í mögn-
uðum hópi sem á að bera
uppi listahátíð London árið
2012. Þar má meðal annars
sjá Nóbelsverðlaunahaf-
ann Toni Morrison,
Óskarsverðlauna-
hafann Cate
Blanchett,
Bafta-verð-
launahafann
Mike Leigh,
stórstjörnuna
Jude Law og
Brit-verðlauna-
hafann Damon
Albarn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
í London. „Sumarið 2012 verður
töfrum líkast og þessi Listahátíð
á eftir að leika stórt hlutverk í að
gera Ólympíuleikana að stærstu
sýningu heims.“
freyrgigja@frettabladid.is
KYSSILEGUST!
„Þetta er bráðskemmtileg bók
og mæl
Harpa Mjöll Re
Fös 10.12. Kl. 20:00 Aukas.
Lau 15.1. Kl. 20:00
Sun 16.1. Kl. 20:00
Fim 20.1. Kl. 20:00
Lau 22.1. Kl. 20:00
Fim 27.1. Kl. 20:00
Sun 30.1. Kl. 20:00
Sun 12.12. Kl. 13:00
Sun 12.12. Kl. 15:00
Sun 19.12. Kl. 13:00
Sun 19.12. Kl. 15:00
Þri 28.12. Kl. 16:00
Mið 29.12. Kl. 16:00
Fim 30.12. Kl. 16:00
Sun 2.1. Kl. 13:00
Sun 2.1. Kl. 15:00
U
U
Fíasól (Kúlan)
Hænuungarnir (Kassinn)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
Leitin að jólunum
Ö
Ö
U
Ö
U
U
Fös 10.12. Kl. 19:00 Aukas.
Lau 11.12. Kl. 19:00 Aukas.
Sun 12.12. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 30.12. Kl. 19:00
Fös 7.1. Kl. 19:00
Lau 15.1. Kl. 19:00
Sun 16.1. Kl. 19:00
Lau 22.1. Kl. 19:00
Sun 23.1. Kl. 19:00
Lau 11.12. Kl. 11:00
Lau 11.12. Kl. 13:00
Lau 11.12. Kl. 14:30
Sun 12.12. Kl. 11:00
Sun 12.12. Kl. 13:00
Sun 12.12. Kl. 14:30
Lau 18.12. Kl. 11:00
Lau 18.12. Kl. 13:00
Lau 18.12. Kl. 14:30
Sun 19.12. Kl. 11:00
Sun 19.12. Kl. 13:00
Sun 19.12. Kl. 14:30
Þri 28.12. Kl. 14:00
Þri 28.12. Kl. 16:00
Mið 29.12. Kl. 14:00
Mið 29.12. Kl. 16:00
U
U
U
U U
U
U
U
U
U
Ö
Ö
U
U
Fim 30.12. Kl. 20:00 Frums.
Mið 5.1. Kl. 20:00
Fim 6.1. Kl. 20:00
Fös 7.1. Kl. 20:00
Lau 8.1. Kl. 20:00
Kandíland (Kassinn)
Ö
Ö
Ö Fim 6.1. Kl. 20:00
Mið 12.1. Kl. 20:00
Fim 20.1. Kl. 20:00
Sun 30.1. Kl. 20:00
Ö
Lér konungur (Stóra sviðið)
Sun 26.12. Kl. 20:00 Frums.
Þri 28.12. Kl. 20:00 2. sýn
Mið 29.12. Kl. 20:00 3. sýn
Lau 8.1. Kl. 20:00 4. sýn
Sun 9.1. Kl. 20:00 5. sýn
Fim 13.1. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 14.1. Kl. 20:00 7. sýn
Fös 21.1. Kl. 20:00 8. sýn
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
Ö
Ö
Ö
Ö
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
STÝRÐU UMRÆÐUNNI Í ÁTT TIL ÞÍN
Meiri Vísir.