Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1893, Blaðsíða 10

Sameiningin - 01.01.1893, Blaðsíða 10
—170— mín vegna; þaS gjörir mér lítiS, þótt þér taliS illa um mig. En yöar vegna óska eg þess, svo að þér ekki fáið tilefni til sökum gallanna á kenning' minni aö vinda yör undan drottni, er hann í dag snertir samvizkur yðar. Eg ætla því að ieitast viö, aS halda mér svo fast, sem mér er unnt, viS orS og hugsan text- ans. Og meS því aS til eru þeir menn, sem spaklega hafa kom- izt að því, aS orðið „helvíti" standi eiginlega hvergi í frumtext- anum, þá ætla eg alveg aS sleppa því aS viðbafa þetta orð. Hinu getr enginn neitað, að skrifaS stendur, að ríki maðrinn hafi verið í „kvölum“, þá er hann opnaöi augu sín eftir dauðann; og svo hugsa eg honum standi alveg á sama, hvort kvalastaðr hans er kallaðr gehenna eða hades, helvíti eða ríki hinna dauðu. Af hinu há-alvarlega efni í þessari frásögu drottins er þetta. ef til vill, alvarlegra en allt annað, að ríka manninum er alls ekki lýst sem lastafullum manni. Væri honum lýst eins og ágjörnum, lauslátum, miskunnarlausum, grimmum manni, þá gæti allir hœglega látið vera að sjá mynd sinnar eigin æíisögu sýnda í sögu hans. því hver skyldi vilja gangast viö því svona rétt með sjálfum sjer, að hann liíi lastafullu lífi? En nú segir drottinn alls ekkert eiginlega illt um ríka manninn. þú getr verið ailra heiðarlegasti maðr, og þó verið eins og hann. Ef til vill, getr hvorki þú né aðrir fundið neina sérstaka ástœðu til, að þú þurfir að óttast glötunina. Og þó getr hlutskifti rika mannsins orðið þitt. Eða er ekki svo, að þá er vér ieitum eftir orsokinni til þess, að ríki maðrinn hlaut að opna augu sín í kvöl- unum, þá sýnist býsna ervitt að finna hana? það stendr ekkert um það, að iiann hafi afiað sér auðœfa sinna með rangindum eða á annan hátt gjört sig sekan í nokkrum glœp. Hafi hann, þá er hann „lifði hvern dag í dýrölegum fagnaði", gjört sig sekan í of- áti, drykkjuskap og frillulifnaði, þá getr þetta að minnsta kosti ekki hafa verið hin eiginlega orsök glötunar hans; því þess er alls eigi getið í frásögunni. Ekki hafði hannheldr veriö ágjarn og haröbrjósta maðr, því hann lét fátœklinginn Lazarus, kaunum hlaðinn, iiggja við húsdyr sínar; en oss skilzt vel, að hefði ríki maðrinn verið harðbrjósta, myndi haun ekki hafa leyft Lazar- usi að liggja á þeim stað, þar sem hin viðbjóöslegu kaun hans og sár ávallt urðu fyrir augum hans, er hanngekk inn í hið

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.