Sameiningin - 01.01.1893, Page 32
—192—
J.C.Heuch (borið fram: huk), biskup í Kristjánssandi í Noregi, áðr
prestr í Kristjaníu, er bæði sem guðfrœðingr og prédikari stór-frægr um
norðrlönd öll og viðar. Ilann heflr unnið kirkj unni og kristindóminum
hið mesta gagn með ýmsum ágætum trúvarnar-ritum. Pyrir einu ári liðnu
gáfum vér lesendum blaðs þessa kafla þýddan úr bók þeirri eftir hann, sem
heitir „Kirkjan og vantriíin11. Og nú í þessu nr.i höfum vér komið með
prédikan eina eftir hanu, þýdda úr safni af prédikunum hans fyrir alla
helgidaga á árinu, er fyrir skömmu héfir verið gefið út og nefnist „Vitnis-
burðr um Krist“. Menn sjá á þessari rœðu, hvernig sá maðr fer með það
trúaratriði í kenning Jesú Krists, sem ýmsir af löndum vorum á þessum
tíma eru að heimta að sé strykað út úr kristnum frœðum.—Yér leyfum oss
í sambandi við prédikan þessa að minna lesendr vora á það. sem af oss er
sagt um sama efni í hugleiðing út af „dómum drottins“ í Sam. ö. árg., nr. 3.
Lexíur fyrir sunnudagsskóUnn; fyrsti ársfjórSungr I893.
6. lexía, sunnud. 5. Febr.: Musterisvígslan (Esra 6, 14—22).
7. lexía, sunnud. 12. Febr.: Bœn Nehemíasar (Neh. 1, 1—11).
8. Iexía, sunnud. 19. Febr.: Endrreisn borgarmúranna (Neh. 4, 9—21).
9. lexía, sunnud. 26. Febr.: Lögmálslestrinn (Neh. 8, I—12).
10. lexía, sunnud. 5. MarZ: Sabbatshaldið (Neh. 13, 15—22).
11. lexía, sunnud, 12. Marz: Ester frammi fyrir konunginum (Est. 4, to—-5, 3).
12. lexía, sunnud. 19. Marz: Áminningar tiL œskumanna (Orðskv. 23, 15—23);
eða:
Skurðgoðadýrkan hégómi og heimska (Esaj. 44, 9-20).
13. lexía, sunnud. 26. Marz: Yfirlit.
KAUPENDUR „SAM.“ Á ÍSLANDT borgi blaffið' hr.
Sigurði Kristjámsyni í Reylcjavík.
Sælljörg, mánaðarblaS með myndum, 1. árg. Ritstjóri sira O. V.
Gíslason. Kostar 60 cts. Fæst hjá ritstjóra Isafoldar.
Sunnanfara hafa Chr. Ólafsson, 575 Main St., Winnipeg, Sigfús Berg-
mann, Garðar, N. D., og G. S. Sigurösson, Minneota, Minn. í hverju blaði
mynd af einhverjum merkum manni, flestum íslenzkum. Kostar einn dollar.
KIKKJUBLAÐID, mánaðarrit handa íslenzkri alþýðu, á stœrð við ,,Sam.
kemr út i Rvík, undir ritstjórn séra j>órhalls Bjarnat'sonar. Má panta hjá W.
H. Paulson í Winnipeg og Sigfúsi Bergmann á Garðar, Pembina Co. ,N.
Dak. Árg. frá nýári G0 cts.
Isafold, lang-stœi'sta blaðið á Islandi, kemr úr tvisvar í viku allt árið,
kostar í Ameriku $1,50. Hið ágæta sögusafn ..safoldar 1889 og t89o fylgir í
kaupbœti.—,,Lögberg“, 573 Main Str., Winnipeg, telcr við nýjum áskrifendum.
,,SAMEININGIN“ kenrr út mánaðarlega, 12 nr. á ári. Verð í Vestrheimi: $1.00
árg.; greiðist fyrir fram. —Skrifstofa blaðsins: 704 Fifth Ave. N., Winnipeg,
Manitoba, Canada.—Útgáfunefnd: Jón Bjarnason (ritstj.), Páll S. Bardal, FriðrikJ.
Bergtnann, Hafsteinn Pátrsson, N. Stgr. forláksson, M. Pálsson, Jén Blöndzl.
PRBNrSllipjA LÖGBKROS — 'WIXNIPTS6.