Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1893, Page 25

Sameiningin - 01.01.1893, Page 25
185— norsku og íslenzku. Vi5 kvöldguösþjónustuna var sunginn sálrnurinn „Nú gjaldi guði þökk“ á öllum þessum tungumálum. —„Sam.“ óskar síra Runólfi og söfnuði hans allrar hamingju og blessunar í tilefni af báðum þessum vígslum. Drottinn gefi, að þessi nýi lút. prestur verði einlægur og ötull starfsmaður í vín- garðinum, og gefi honum náð til að verða mörgum sálum til frels- is. Hann leggi líka blessun sína yfir þetta nývígða kirkjuhús þarna í landi Mormónavillunnar og kalli þangað marga, ef unnt er, alla Islendinga, sem gjörzt hafa Mormónar, svo þeir finni þar aptur þann guð, sem þeim í æsku var kennt að þekkja, trúa og treysta. (Fr. J. B.) Prófessor Huxley, hinn alkunni agnostík og vísindamaðrá Englandi, hefir nýlega í ritgjörð einni í tímaritinu „Fortnightly Review“ farið þeim orðum um trúarlærdóm kristilegrar kirkju, er talsverða furðu hafa vakið hæði meðal kirkjunnar manna og vantrúaðra andstæðinga hennar. „Mér virðast trúarlærdóinarnir", segir hann, „um guðlega fyrirhugan, uppruna-syndina, meðfœdda spilling mannsins, hin illu örlög meira hluta mannkynsins, yfirráð djöfulsins hér í heimi (o. s. frv.) —, þótt að iærdómum þessum megifinna, miklu nær hinu sanna en „frelsis“-draumórarnir, sem mörgum gezt svo einstaklega vel að, að ’oörn öll sé fœdd góð (syndlaus) og að það sé að eins dœmi spillts mannfélags að kenna, að þau halda ekki áfram að vera það, að hverjum manni sé getið, að fullnœgja hinni siðferðislegu hugsjón, svo framarlega sem hann reynir til þess, að, allt það, sem er illt með tilliti til hins einstaka, sé gott, að því leyti sem það snertir liið gjörvalla, og annar slíkr heilaspuni, er lætr sem ekkert sé til nema gott.---------Eg hefi mjög sterka trú á því, að hegning komi fyrir athafnir, sem í eðli sínu eru sVo eða svo, eigi að eins í þeirri tíð, sem nú er, heldr og um all- an ókominn aldr, er fyrir manni kann að liggja, hvort sem sá aldr er langr eða skammr. A tilveru helvítis trúi eg þáauðvit- að; því eg hefi það fyrir satt, að allirmenn með ljósri meðvitund um rétt og rangt----------hafi „stigið niðr til helvítis" ogdvalið

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.