Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1893, Qupperneq 27

Sameiningin - 01.01.1893, Qupperneq 27
áSr 36 (enskra) mílna leið, en járnbrautarleiðin er naumast svo löng. Tekr fer'Sin á járnbrautinni frá hafinu til hinnar fornu helgu borgar aS eins hálfa fjörSu klukkustund, og ganga tvær lestir á brautinni daglega bæSi til og frá. o o n Einn dag milli jóla og nyárs (30. Des.) var rétt ár liðiS síð- an ritstjóri blaSs þessa lagðist í hinum þungbæra sjúkdómi sín- urn. í byrjun Nóvembermánaðar gjörði hann fyrstu tilraun til aS skreiðast úr rúminu, og seint í Desember var bati hans orSinn ’ svo mikill, að hann gat veriS í kirkjunni á aSfangadagskvöId jóla og talað þar opinberlega út af fagnaðarboðskap jókhátíSar- innar, og sömuleiðis á nýársnótt út af áramótunum. Hann talaði hið fyrra kvöldiS aðallega út af æfintýrinu fagra eftir Hans Christian Andersen, sem segir frá laufblaSinu himinfallna. Engill flaug hátt uppi í himni með blóm úr jurtagarSi drottins. Hann kyssti blómið, og viS það losnaði á því eitt ofrlítiS blað og féll niðr í eyðiskógi niSri á jörðinni. • þár festi þaS rœtr og náði undarlega fljótum vexti mitt á meða] trjánna og allskonar villijurta. En engin af þeim jurtum kann- aSist viS hina nýju plöntu. þistlarnir og brenninetlurnar gjörSu að henni háð og töldu eftir henni plázið, sem húntók upp. Vetr- inn kom, en í staðinn fyrir að visna og veslast upp, eins og aðr- ar jurtir, dafnaði jurtin nýja vel, og það IjómaSi svo undarlega og dýrðlega af lienni, þá er sólin skein á hana í skammdeginu og miSsvetrarkuldanum. Og meS vorinu varð hún á stuttum tíina blómlegasta plantari í skóginum. þá kom hálærðr grasa- frœðingr, prófessor frá háskólanum, á þennan staS í rannsóknar- ferS. Hann skoSaSi jurtina í krók og kring, en hann var jafn- nær eftir þá skoðun. Jurtin átti hvergi heima í grasafrœSinni hans; hún var augsýnilega einhver aSskotajurt. þistlarnir og netlurnar tóku þessurn dómi með lotning, og sýndu henni enn tneiri fyrirlitning. — En stúllca nokkur, hrein og saklaus, kom þarna í skógarrjóðriS, þar sein himinfallna jurtin hafði vaxið upp. Aleigan hennar var gömul biblía, er hún hafði fengið aS erfðum. Rödd frá þessari bók ómaði í sálu hennar, sem minnti hana á hinn œðsta kærleik, hans, sem íyrirgaf ogbaðfyrirþeim,

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.