Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1893, Blaðsíða 30

Sameiningin - 01.01.1893, Blaðsíða 30
í sunnudagsskóla safnaðar vors hér í Winnipeg kenndu alls 30 manns á síSast liðnu ári. Nú eru kennararnir 20. — Tala þeirra, er skólann hafa sótt á árinu, er 359. — Samskot á skól- anum, sem er í tveim deildum, á árinu $105.55 (nálega eins og í fyrra: $101.01). — í sióði átti skólinn um áramótin $103.87. Um það leyti, sem sunnudagsskóli Winnipeg-safnaðar varð til, sumarið 1884, var því heitið, að fyrir fjársamslcot þau, er gjörð yrði á þeim skóla, skyldi, þá er tími væri til, keyptar bœkr til nota fyrir lærisveina og kennendr skólans, eðameð öðrum orðum stofnað lán-bókasafn fyrir skólann. Og nú loksins í byrjan þessa árs hefir bókasafn þetta komizt á fót. I því eru þegar hátt á þriðja hundrað bindi (eða nákvæmlega 277). Er það flest enskar bœkr eftir fræga höfunda, nálega allt úrvalsrit. Nokkuð þeirra bóka, sem eru á ensku, er frumritað á þýzku og sérstaklega handa börnum. Af íslenzkum bókum er enn mjög lítið, en áformið er, að bœta við það, sem þegar er til, svo fljótt og mikið, sem efni leyfa. Bókavörðr er settr við safnið úr hópi sunnudagsskólakennaranna. Annast bókavörðr útlán bóka á hverjum sunnudegi samkvæmt þar til settum reglum. Ólæs börn fá ekki bœkr safnsins að láni, en í stað þess verðr þeim öðruhverju úthlutað myndablöðum ágætum. Á íundi, sem haldinn var í Árnesbyggð í Nýja Islandi í húsi hr. þoi'valds þorvaldssonar hinn 8. þ. m., af mönnum þeim í því plázi, er eigi hafa látið leiðast burt frá evangeliskri lút- erskri trúarjátning, var tekin sú ályktan, -að endrmynda Ár- nessöfnuð og ganga í kirkjufélag vort. Voru þessir þrírsafnað- arfulltrúar kosnir: þorvaldr þorvaldsson (íormaðr), Sigrbjörn Hallgrímssön (féhirðir) og Jóhannes Magnússon (ritari), og ’neíir hr. Jóhannes skjh't forseta kirkjufélagsins frá þessu. I söfnuð- inum eru 8 fjölskyldur (25 fermdir og 20 ófermdir). Um hið kirkjulega ástand í Seyðisfirði hefir oss (um nýárs- leytið) verið ritað þetta sem áframhald af því, er stendr í Des- ember-nr.i blaðs þessa: „Aldrei hefir meira en nú sungið á, að því er snertir ófriðinn hér í söfnuðinum. Séra Sigurðr Gunn-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.