Sameiningin - 01.06.1893, Qupperneq 12
—44—
þar sem í því er ýmislegt, sem augsýnilega er tekiðúr Jóhann-
csar guöspjalli, þá er þar með frainkomin ein skýlaus sönnun
fyrir því, aö sú dýnnæta guðspjallsbók hlýtur að vera eins göm-
ul og kirkjan kennir og eptir engan annan höfund en Jóhannes
postula. Merkur guðfræðingur einn enskur, sein nýlega hefur
ritað um hið apturfundna apokryfiska Pjeturs guðspjall, segir
líka, að úr þessu dugi engurn að vefengja ritvissu Jóhannesar
guðspjalls, þar sem fyrir henni sjeu nú jafnvel enn sterkai i sann-
anir en fyrir ritvissu liinna guðspjallanna. Onnur ensk þýð-
ing þessa nýfundna rits eptir prófessor Bernard í Dublin á
írlandi birtist fyrir skömmu (24. des.) í blaðinu Sunday School
Times, sem út kemur í Philadelphia, og fylgir þar með ritgjiirð
eptir þýðandann, þar sem hann meðal annars sýnir, livað hinn
óþekkti höfundur hins apokryfiska guðspjalls hefur t.ekið til
láns úr hverju einstöku guðspjalli hins nýja testamentis.
' J. Bj.
Yið þetta bætist enn einn hinn merkilegasti fundur, sem
gjörður hefur verið síðan Tiscii.endorf fann hið merkilega hand-
rit af biblíunni í Sínaí-klaustrinu árið 1859. það er handrit af
hinni elztu sýrlenzku þýðingu nýja testamentisins, sem fundizt
hefur, og það af konu einni. Menn vita enn þá ekki, hvort
handrit þetta hefur inni að halda allt nýja testamentið eða ekki.
En það hefur að minnsta kosti öll guðspjöllin í heilu lagi. jiað
er mjög örðugt aflestrar, eins og búast má við, þar sem það er
eitt af hinum svo kölluðu palimpsest handritum. En svo eru
handrit þau nefnd, þar sem aðrar bækur hafa verið ritaðar
seinna á öldum ofan í eitthvert frumhandrit, eins og opt var
gjört, eptir að pergamentið fór að verða svo sjaldgæft.— Sú sýr-
lenzka þýðing, sein monnum var áður kunn, nefudist Peschitto;
hingað til hefur hún verið álitin lang-merkasta þýðingin, sem
til hefur verið af nýja testamentinu. En menn hafa vitað, að
til hefur verið önnur miklu eldri sýrlenzk þýðing, sem gjörð
hafi verið á 2. öld; af henni hafa verið til fáein brot og annað
ekki. það er nú þessi elzta sýrlenzka þýðing, setn fundizt hef-
ur, og er vonandi, að hún verði innan skamms gefin út.
þannig er sífellt verið að finna ný og ný handrit og er
ekki unnt að segja, livað mönnum kann að takast enn að finna.