Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1893, Blaðsíða 18

Sameiningin - 01.06.1893, Blaðsíða 18
—50— er svo eínkennileg og einstakleg, birtan, sem skín út frá páska- hátíöinni og sem guð hefir klætt hana í eins og annað fat, að fyrir þá birtu getr jafnvel hin dimma nótt í náttúrunni og mannlífinu orðið sem dagr, Ijómandi sólskinsdagr. Og það er meira að segja fyrir Ijósið, er leiftrar út frá páskahátíðinni, einatt auðveldara frá myrkum mannlífsstöðvum, úr dimmu jarðnesku náttmyrkrinu, að sjá og skoða hina guðlegu dýrðinni í eilífðinni, heldr en um hádag eða þá er ekki ber neinn skugga yfir iarðlífstilveruna, þar sem maðr er staddr. það er andleg birta, guðs eigin kærleiksbirta, sem páskahátíðin æfinlega kemr með, og oss er aldrei eins auðgefið að taka eftir henni eins og eftir að degi er tekið að halla, nóttin tekin til að umkringja mann, og hið náttúrlega sólarljós þannig ekki að neinu leyti getr villt fyrii'. það er mannssálinni ósjálfrátt að fælast myrkr- ið í nátturunni. Litlu blessuð börnin fara að gráta, ef þau eru skilin ein oftir í myrkrinu. Og þó er oss öllum hitt enn meira kunnugt, að þá er nótt verðr í voru eigin lífi, þá er mótlæti og kross steðjar að, sál vor stödd mitt uppi í sinni píslarsögu, vill þessi sama vesalings sál fyllast ótta og angist. En samt stendr hitt eins guðlega og gleðilega fast fyrir því, að aldrei tökum vér eins vel eftir hinu bjarta fagnaðarefni, sem ár og síð og alla tíð streymir út frá páskahátíðinni, eins og einmitt á slíkutn dimm- um mótlætis-nóttum í vorri eigin æfisögu. Eða ef einhverjir í hópi minni núvei’andi tilheyrenda hafa ekki sjálfir enn upplifað neina þvílíka nótt, ekki enn sjálfirneitt verulega haft að segja af mótlæti, þjáningum eða sorg, þá, til þess að ganga úr skugga um það, sem eg sagði, líti þeir í kring um sig og athugi, hvort það inuni ekki fremr hafa verið á hinum dimmu en björtu tíð- um æfinnar, fremr í mótlætinu en í meðlætinu, að þeir menn, S3in nú hafa næmast auga fyrir hinni himnesku dýrð guðs, lærðu að meta og elska hið yfirnáttúriega ljós, sem páskahátíð- inni tilheyrir og er henni æfinlega samferða. Gangið til allra þe;rra manna, sem þér þekkið bezt kristna, mest með hugann á himnum, næst guði í gjörvöllu lífi sínu, og munuð þér sannfœr- ast um, að það var langhelzt á hinni dimmu raunatíð þrenging- anna, að birtan frá páskaevangelíi kristilegrar kirkju skcin inn í sálir þeirra með sínurn fullkomna guðlega Ijóma. — Fjarri sé því, að eg með allan ininn margreynda veikleik, að því er til

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.