Sameiningin - 01.01.1898, Page 14
-174-
og fleira þessháttar. Eii mörgum þykir eftirtektarvert, að í
greinum þessum er rœkilega sneitt hjá því að nefna trú og
kristindóm, ekki nefnt, að þörf sé á að innrœta börnum neitt
þessháttar, né heldr að hjónum sé þörf á slíkum hugsunum
viðvíkjandi sainbúð, efnahag, heimilisstjórn eða öðru. Góðum
konum þykir þetta galli á blaðinu og furðanlegra af því að
útgefandi þess er kona.
Að eg nefndi alþing í þessu sambandi kemr af því, að mér
skilst á rœðum og tillögum sumra þingmanna, að þeim inönnum
sé þar smásaman að fjölga, sem láta sig litlu skifta ástand
kirkju og kristindóms. Síöasta þing tók upp í fjárlögin skáldlaun
handa manni, sem öllum öðrum fremr hefir um næstliðin ár
beitt skáidskapargáfu sinni til þess að óvirða kristindóminn og
rýra áhrif hans. Einn þingmaðr andmælti fj&rveiting þessari
af þeirri ástœðu, að hlutaðeiganda skáld hefði farið illum orðum
um trúarbrögðin og sært með því tilfinning kristinna manna
o. s. frv. Ætla mætti, að þetta hefði verið prestr, en það var
ekki. þingmaðrinn var læknir. Aftr á móti var það prestr,
sem svaraði þessu á þá leið, að hann vildi ekki neita því, að
sumt í kveðlingum skáldsins hefði sært tilfíuningar sínar, en
skáldskapr hans væri sér þó svo ánœgjulegr, sérstaklega sökum
þess, hve mikil m'dfegrð kœ.ini þar fram, að hann gæti eigi
annað en verið rneð fjárveitingunni. þessi ummæli þingmanns-
ins geta naumast skilizt ööruvísi en svo, að særandi orð um trú
og kristindóm sé að minnsta kosti afsakanleg og veröskuldi
laun af almennings fé, ef þau að eins eru klædd í glæsilegan
búning.
Af íslenzku blöðunum hér heima, sem nú koma út, eru að
eins þrjú laus við vantrúarrugl. Auk þeirra er þó „Kirkju-
blaðið“, sem beinlínis er gefið út til að vera málgagn kirkj-
unnar. En þar þykir sumum kenna fleiri grasa og meiri mála-
miðlunar en œskilegt væri. þá er og nýbyrjað blaðið „Verði
ljós!“, sem eftir því, hvernig það hefir farið á stað, lítr út fyrir
að muni verða alvarlegt og ákveðið trúvarnarrit.
Minningarrit timmtíu ára afmælis prestaskólans á íslandi
var gefiö út í Reykjavík í haust. í því er 1. kennaratal með