Sameiningin - 01.09.1898, Page 1
* 4
Mánaðarrit til stu&nings kirkju og lcristindómi íslcndinga:
gcjið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheimi.
RITSTJÓRI JÓN B.JAliNASON.
13. árg.
WINNiPEG, SEPTEMBER 1898.
Nr. 7.
Líknarsky ldan.
Eftir stud. theol. Runólp Makteinssox.
(Flutt á kirkjuþingi síðasta.)
„Eg gef ySur nýtt boðorS, að þér elskið hver annan; eins
og eg elskaði yður, að þér einnig elskið hver annan. Af því
muna allir sjá, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér elskizt inn-
byrðis." þetta eru orð Jesú Krists til lærisveina hans skömmu
áðr en hann gekk út í pínuna. Ef einhver segir, að sá kær-
leikr, sem hér er talað um, sé ekki nógu víðtœkr, nái ekki nema
til kristinna manna innbyrðis, þá getum vér bent á orð Jesú,
þar sem hann segir: „Elska náunga þinn sem sjálfan þig.“
þetta telr hann líkt hinu œðsta boðorði, um elskuna til guðs,
og þessi tvö hafa í sér kjarna alls lögmálsins og spámannanna.
Hér er talað ekki að' eins um hinn kristna náunga vorn, lieldr
um manninn almennt. Kristr fer þó enn lengra, er hann segir:
„Eg býð, að þér elskið óvini yðar, blessið þá, sem yðr bölva,
gjörið gott þeim, sem hata yðr, og biðjið fyrir þeim, sem rógbera
yðr og ofsœkja“ (Matt. 5, 44).
Kærleikrinn á þess vegna að einkenna alla kristna menn ;
og víst er það, að enginn getr sannkristinn kallazt, sem ekki
hefir kærleikann í sér varanda; og þessi kærleikr á, samkvæmt
orðum Krists, að vera bæði heitr og víðtœkr.