Fréttablaðið - 28.12.2010, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 28.12.2010, Blaðsíða 12
12 28. desember 2010 ÞRIÐJUDAGUR Þegar litið er um öxl við lok árs 2010 er ýmislegt sem kemur upp í hugann. Árið hefur í efnahags- legum skilningi verið gríðarlega erfitt, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Atvinnuleysi er mikið, á íslenskan mælikvarða, og óvið- unandi. Sum landsvæði koma verr út en önnur, og má nefna Suðurnes sem dæmi þar um. Þar er atvinnu- leysi nú um 13%, það langmesta hér á landi. Fjöldi fólks hefur flúið land í leit að nýjum tækifærum og fyrirtæki hafa lagt upp laupana. Án þess að boða einhverja svart- sýni má velta fyrir sér hvort árið 2010 sé upphaf að eins konar ragna- rökum í íslensku athafnalífi, eða hvort þar verði, þegar til framtíð- ar er litið, horft til upphafs að löng- um afturbata í íslensku atvinnulífi. Ástæða þess að ég nefni lang- an afturbata er sú að mikil hætta er á því að hann verði langur þar sem skortur er á framtíðarsýn og stefnumörkun fyrir land og þjóð. Stjórnvöld eru einfaldlega of upp- tekin við björgunarstörf, og eng- inn vill fara af brunastað fyrr en eldur er slökktur. Það er von mín að nú fari að gefast meiri tími til líta til framtíðar, þar sem börn- in okkar verða við stýrið. Það er skylda okkar að láta þeim í té flot- helda þjóðarskútu. Einn atburður stendur að mínu mati upp úr á árinu 2010 og kalla mætti vendipunkt í íslensku atvinnulífi og í íslensku samfélagi. Sá vendipunktur varð þann 5.jan- úar 2010, þegar forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, neitaði að skrifa undir IceSave- lögin og færði valdið til þjóðar- innar, sem felldi svo samninginn í mars sama ár. Segja má að sá samningur sem nú liggur fyrir sé mun hagstæðari en sá fyrri, en gallinn á honum hins vegar sá að kröfulýsingin er í íslenskum krónum en eignirnar, sem eiga að standa undir greiðslum, erlendar. Endurheimtur gamla Landsbank- ans hafa verið að aukast en gengi íslensku krónunnar hefur einnig verið að styrkjast. Því má segja að gengisáhættan í þessum samn- ingi sé mikil. Þetta er án efa vendi- punktur fyrir íslenskt samfélag og komandi kynslóðir. Þótt synjun forsetans hafi verið vendipunktur í íslensku samfélagi, má nefna til viðbótar nokkur atriði sem vakið hafa mikla athygli og ættu að vekja fólk til umhugsunar um hvert stefnir hér á landi. Þjóðhagsspáin og horfur Hagvaxtarspár Seðlabankans og Hagstofunnar gera ráð fyrir að einkaneysla muni standa undir þeim 2% hagvexti sem spáð hefur verið á árinu 2011. Það bendir hins vegar allt til þess að framlag einkaneyslunnar til hagvaxtar hér á landi verði mun minna en gert er ráð fyrir. Erfitt er að sjá hvernig einka- neyslan á að ýta undir hagvöxt hjá jafn skuldsettu þjóðfélagi og því íslenska. Skuldsetning takmark- ar einfaldlega ríkisumsvif, allar fjárfestingar sem og einkaneyslu til hagvaxtar. Það gefur auga leið að skuldsetning heimila gerir það að verkum að þau hafa minna aflögu og þurfa að auka sparnað á kostnað neyslu. Margir hafa nefnt að rýmkun heimilda varðandi séreignarsparnað geti ýtt undir einkaneysluna en hætta er á því að margir hafi nú þegar nýtt sér þær heimildir til þess að standa undir skuldabyrðinni. Því getum við varla búist við því að einkaneysl- an standi undir miklum hluta hag- vaxtar. Sé litið til fyrirtækjanna þá sést að staða margra þeirra kemur í veg fyrir nokkra fjárfestingu af þeirra hálfu. Ríkissjóður þarf einnig að draga saman seglin og því ekki hægt að búast við miklu þar. Hins vegar þurfa stjórnvöld að fara í sértækar aðgerðir hvað snertir atvinnulíf á Íslandi, og fyrirhugaðar stórframkvæmdir í vegamálum eru sannarlega lóð á þá vogarskál. Einnig má velta fyrir sér þeirri hugsun sem býr að baki þeim for- sendum sem eiga að drífa hagvöxt- inn áfram, því gangi þessar spár eftir og hagvöxturinn muni aukast með einkaneyslu þá getur það haft neikvæðar afleiðingar í för með sér. Slíkt dregur úr sparnaði heim- ila og möguleika þeirra til að draga úr skuldsetningu og því gæti lengri tími liðið þar til hagkerfið færist nær einhvers konar jafnvægi. Auka þarf útflutning Verðmæti útflutnings á hátækni- vörum og þjónustu á árinu 2009 nam um 37 milljörðum íslenskra króna, en það jafngilti um 5,5% af heildarútflutningstekjum þjóðar- innar. Íslendingar þurfa að auka útflutning sinn til styrktar hag- kerfinu. Við getum litið til Dan- merkur í þessu samhengi en Danir hafa náð að byggja upp hagkerfi sem byggir nær eingöngu á útflutn- ingi. Það getum við Íslendingar tekið okkur til fyrirmyndar. Við þurfum að hætta að vera fyrst og fremst hráefnisframleiðendur og finna leiðir til að byggja hagkerfið upp á enn verðmætari útflutningi. Við höfum til að mynda ekki unnið nógu vel úr áli á Íslandi og ættum að skoða vel næsta þrep í þeim málum. Við höfum verið að byggja álver og fyrir liggur að byggja eigi fleiri slík á Íslandi, en við þurfum að frumvinna álið betur og mynda þannig auknar útflutningstekjur. Einnig þarf að styðja við íslenska hönnun enda margir mjög fram- bærilegir hönnuðir á ýmsum svið- um á Íslandi. Mikil gróska er um þessar mundir í hinum ýmsu grein- um, en það þarf að styðja vel við bakið á íslenskri hönnun og við frumkvöðla. Stjórnarþingmenn styðja ekki fjárlög Það er líklega einsdæmi að stjórn- arþingmenn styðji ekki fjárlög rík- isstjórnar sinnar, eins og þrír þing- menn gerðu nú fyrir skömmu. Slík óeining í stjórnarflokki er ekki til þess fallin að efla og sameina þjóðina. Ég geri ekki ráð fyrir að nokkur alþingismaður hafi sam- þykkt niðurskurðarfjárlög með bros á vör, en fleira þarf að gera en gott þykir. Ég get ekkert neitað því að margt hefði ég vilj- að sjá öðruvísi í fjárlög- um næsta árs, en lík- lega verður þessi hjáseta þingmannanna þriggja á sinn hátt einhvers konar vendipunktur í íslensk- um stjórnmálum þegar til lengri tíma er litið. Samþykkt fjárlaga í desember 2010 og skort- ur á framtíðarsýn Fjárlögin fyrir 2011 hafa verið samþykkt og í þeim er margt sem vekur mann til umhugsunar um hvert á að stefna í íslensku samfé- lagi. Margt sem sést í fjárlögunum er með ágætum en annað virðist vera illa ígrundað og gjörsamlega tilgangslaust þegar litið er fram á veginn. Eins og ég hef áður komið að skortir að mínu mati framtíðarsýn og skýra stefnumörkun fyrir land og þjóð. Við erum rík af auðlindum, mun ríkari en margar aðrar þjóð- ir, en okkur skortir stefnumörkun og framtíðarsýn um það á hverju við viljum byggja til framtíðar. Það vekur upp margar spurningar þegar litið er um öxl til þess kerf- ishruns sem varð hér á landi árið 2008. Hvað höfum við lært af þessu hruni og hvernig munum við þróast áfram og ná okkur upp úr þeirri lægð sem hér hefur síðan legið eins og mara á íslensku þjóðinni. Mótuð skýr stefna fyrir samfé- lagið þarf að koma til. Hvers konar þjóð erum við og á hverju viljum við byggja þegar til lengri tíma er litið? Við veltum því fyrir okkur í dag hvað komandi kynslóðir munu þurfa að greiða fyrir IceSave samn- ing þann sem nú verður gerður en það heyrist ekkert um það á hverju þær kynslóðir munu byggja. Hvar er skýr stefna í skipulags- málum á Íslandi? Hvers konar starfsemi viljum við hafa á Íslandi og hvar á sú starfsemi að vera staðsett. Ljóst er að það er enginn „Silicon Valley“ hér á landi ef svo má segja, en við þurfum að móta stefnu í skipulagsmálum um leið og atvinnumál og menntamál eru tekin enn fastari tökum en gert hefur verið. Hvernig starfsfólk mun Ísland þurfa eftir 10 ár, eða 20 ár? Verð- ur skortur á hæfileikaríku og vel menntuðu fólki á Íslandi? Það virð- ist engin fyrirliggjandi stefna vera til um það hvaða atvinnugreinar við viljum byggja upp á Íslandi og þar af leiðandi vantar stóran hluta inn í stefnu stjórnvalda í mennta- málum. Það eru greinar hér á landi, eins og hátækniiðnaðurinn, þar sem skortur er á tölvunarfræð- ingum og verkfræðingum. Sé litið til flugmála á Íslandi þá væri auð- veldlega hægt að auka starfsemi á sviði flugsins, og þar skortir m.a. flugvirkja. Ef Íslendingar byggju yfir skýrri sýn þess efnis hvert ætti að stefna í framtíðinni væri hægt að vinna markvisst að því að fjölga fólki með ákveðna þekkingu og reynslu á viðkomandi sviðum. Það er ekki nóg að það vanti atvinnutækifæri á Íslandi og nóg sé að byggja álver eða gagnaver svo dæmi séu nefnd, það verður að liggja fyrir hverjum kostum starfsmenn framtíðarinnar þurfa að vera búnir. Að lokum Þegar sagnfræðingar framtíð- arinnar koma til með að kryfja árið 2010 til mergjar munu þeir án efa staldra við margháttuð áhrif Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á málefni Íslendinga. Þess verður minnst hve örðugt það hafi verið fyrir ríkistjórn að vinna sjálf- stætt að ýmsum fram- faramálum þjóðarinnar, þegar við hlið ráðherra situr ávallt „ökukenn- ari“ sem tilbúinn er að kippa í AGS-neyðarhem- ilinn og benda á umferð- armerkið „framúrakstur bannaður“. En sögurýn- endur munu samt greina ýmis jákvæð teikn á lofti í árslok 2010, og benda á heilladrjúgar vísitölur, s.s. þeirrar að ársverð- bólga hafi verið komin niður í 2,5% og hafi ekki verið minni í 6 ár, og heildarvísitala þorsks, sem er líklega okkar helsta vísitala, hafi verið 20% hærri í svokölluðu „haust ralli“ Hafrannsóknastofnunar en var á árinu 2009, og sú hæsta sem mælst hefur. Við skulum því þrátt fyrir allt leitast við að horfa björtum augum fram til nýs árs 2011, sem mun meðal annars verða minnst sem ársins þegar Íslendingar fengu á ný fullt forræði yfir fjármálum sínum og kvöddu AGS. En minn- umst þess samt að vandi fylgir vegsemd hverri. Megi stjórnvöld og Seðlabanki Íslands bera gæfu til að setja efnahagslífinu leikreglur í líkingu við þær sem bankastjórnin hefur nú skýrt frá að unnið sé að, og vill geta gripið til þegar „öku- kennarinn“-AGS, hverfur af landi brott. Hér skortir framtíðarsýn og stefnu Sagnfræðingar eiga eftir að staldra við áhrif Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi þegar að því kemur að kryfja til mergjar árið 2010. Þetta segir Ásta Dís Óladóttir í grein sinni um þá þætti sem hvað mest áhrif höfðu á þróun efnahagslífs og viðskipta á þessu ári. FYRIR TÆPU ÁRI Ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um að vísa lögum um Icesave-skuldbindingar til þjóðarinn- ar í byrjun ársins segir Ásta Dís Óladóttir að hafi verið sá vendipunktur sem upp úr stendur í íslensku atvinnulífi og samfélagi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA INNLENDIR VENDIPUNKTAR 2010 Innlendir vendipunktar 2010 Fréttablaðið gerir upp árið með greinum um innlenda vendi- punkta eftir valda höfunda. Vendi- punktarnir snúast um markverðar fréttir og atburði sem gerðust á árinu og gætu haft áhrif til fram- búðar á Íslandi. Ásta Dís Óla- dóttir er fram- kvæmdastjóri og formaður Atvinnuupp- byggingar- nefndar á Suðurnesjum. það verður að liggja fyrir hverj- um kostum starfsmenn framtíðarinnar þurfa að vera búnir. ÁSTA DÍS ÓLADÓTTIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.