Sameiningin - 01.08.1900, Síða 4
84
Sunnudagsskólamálinu sömuleiðis frestað samkvæmt ósk
nefndarinnar í því máli.
Bókasafn skólans.
það mál var nú tekið fyrir. Séra Friðrik J. Bergmann
bar fram tillögu, sem Sveinn Sölvason studdi, um það, að
kirkjuþingið veiti $25.00 til bókasafnsins, samkvæmt bend-
ing í ársskýrslu forseta. Samþykkt.
Ályktanir íit af kristnitöku íslendinga fyrir poo árum
var næsta og seinasta málið á dagskrá. Séra Friðrik J. Berg-
mann útskýrði það. Hann áleit rétt, að innibundin væri í
þeim ályktunum, sem gjörðar yrði, kveðjuorð til kirkjunnar á
íslandi.—Séra Jónas A. Sigurðsson lagði til, að þriggja manna
nefnd væri sett til þess að semja ályktanir þessar; stutt og
samþykkt. Forseti kvaddi í nefndina þá séra Friðrik J. Berg-
mann, séra Jónas A. Sigurðsson og séra Odd V. Gíslason.
Fundi frestað þar til kl. 4.30 e. m.
6. fundr, sama dag kl. 4.30 e. m.
Séra Jón J. Clemens lagði fram svo hljóðanda álit frá
nefndinni, er íhuga skyldi umsóknir safnaða um inngöngu í
kirkjufélagið:
Herra forseti!
I.
Vér, sem kvaddir vorum í nefnd til að íhuga heiðni Lúters-safnaðar
Guðbrands-safnaðar, St. Jðhannesar-safn. (N.-Dak.), Breiðuvíkr-safn.
og Alberta-safn. um inngöngu í kirkjufélagið, höfum lesið bréfin, sem
frá þessum söfnuðum og umbr’ðsmönnum þeirra hafa komið til vor um
þetta mál. Vér höfum einnig yfirfarið lög safnaðanna. Og með því
vér sjáum ekkert varhugavert eða ísjárvert við umsókn þeirra, og með
því þeir hafa fullnœgt kröfum XIII. greinar grundvallarlaganna við-
víkjandi inngöngu safnaða í kirkjufélagið, — þá mælam vér eindregið
með því, að þessir áðr nefndu söfnuðir sé teknir inn í kirkjufélag vort.
II.
Vér vildum einnig benda á það. að þrír af þeim söfnuðum, sem beið-
ast inngöngu í kirkjufélagið í ár, hafa með sérstökum skilyrðum gjört
ráðstöfun fyrir því í safnaðarlögum sínum, að veita atkvæðisrétt og
kjörgengi meðlimum, sem ekki eru fermdir. Vér getum skilið það, að
komið geti fyrir, að söfnuðrinn álíti nauðsynlegt að veita ófermdum
meðlimum þessi réttindi. En það er álit nefndarinnar, að söfnuðir
vorir ætti að styðja að því eftir fremsta megni, að allir meðlimir safn-
aðanna, sem veittr er atkvæðisréttr og kjörgengi í söfnuðunum, sé upp-