Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.08.1900, Side 13

Sameiningin - 01.08.1900, Side 13
son, Jón A. Blöndal, séra Friðrik J. Bergmann og séra Rún- ólfr Marteinsson. Bjarni Jones lagði til, að útgáfunefnd ,,Sam. “ væri falið að gjöra tilraun til að sameina öll tímarit kirkjufélagsins (,,Sam. “, ,,Kenn. “ og ,,Aldam. “). Tillagan studd. Við þessa tillögu gjörði Benedikt Frímannsson þá breyt- ingartillögu, að þriggja manna nefnd væri kosin til að gjöra sameiningartilraunina og að í þeirri nefnd væri hvorki ritstjór- ar né útgefendr tímaritanna. Eiríkr Jóhannsson studdi. En tillagan var felld. Séra Jón J. Clemens kom þá með þessa breytingartillögu : ,,Utgáfunefnd ,,Sam. “ sé falið á hendr að gjöra tilraun tilþess að sameina tímarit þau, er gefin eru út í sambandi við kirkju- félagið. Takist henni að koma þeirri sameining á, þá sé ,,Sam. “ stœkkuð svo, að hún verði tvær arkir á mánuði (32 bls.) í ,, Aldamóta“-formi, með auglýsingum á kápunni eins og nú hefir verið upp á síðkastið, og að blaðið hafi deildir, sem rœði sunnudagsskóla-málið, bandalags-mál og safnaða-mál, og að það sé selt fyrir 1 doll. Enn fremr, að séra Björn B. Jónsson sé beðinn að hafa á hendi ritstjórn sunnudagsskóla-deildar blaðsins. Nefndin vinni að þessu á komanda ári og gjöri grein fyrir starfi sínu á næsta kirkjuþ. “ Sveinn Sölvason studdi þessa breytingartillögu. En hún var felld. Séra Rúnólfr Marteinsson lagði til, að ,,Sam. “-nefnd- inni væri heimilað að gjöra endilegar framkvæmdir í málinu á þessu ári. Sú tillaga var studd og samþykkt. þingsályktan út af kristnitöku ísl. fyrir níu hundruð árum. Séra Friðrik J. Bergmann lagði fram fyrir hönd nefndar- innar í því máli (séra Friðriks, séra Jónasar A. Sigurðssonar og séra Odds V. Gíslasonar) svo látandi tillögu: Hið sextánda ársþing hins ev. lúterska kirkjufélags íslendinga í Vestrheimi rninnist þess með lofgjörð og þakk- lœti til drottins, að hin íslenzka þjóð hefir verið kristin í níu

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.