Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1900, Blaðsíða 17

Sameiningin - 01.08.1900, Blaðsíða 17
91 sálminum nr. 420, og aö þvá uuna sagöi forseti þinginu slitiÖ og lýsti hinni postullegu blessan yfir þingmenn. Björn B. Jónsson, skrifari. Kirkjuvígsla o. fl. Sunnudag þann, er féll inn í kirkjuþingiö, 2. sunnudag eftir trínitatis (24. Júní), var kirkja safnaöarins í Selkirk vígð. þaö var í hádegisguðsþjónustunni. Vígsluna framkvæmdi forseti kirkjufélagsins, séra Jón Bjarnason, með aöstoð hinna prestanna, er viö staddir voru. Einnig setti forseti séra N. Steingrím þorláksson þá inn í prestsembætti þar í söfnuöinum. Séra Björn B. Jónsson prédikaði viö þetta tœkifœri og haföi fyrir texta 2. Kor. 6, 16: ,,Eg vil búa á meðal þeirra og dvelja hjá þeim, og eg vil vera þeirra guð, og þeir skulu vera mitt fólk“ (sbr. 2. Mós. 29, 45 ; Jer. 30, 22 ; Esek. 37, 27). Heimfœrði hann þessa drottinlegu yfirlýsing upp á hvora- tveggja hátíðarathöfnina, kirkjuvígsluna og prestsinnsetning- una. Auk kirkjuþingsmanna gengu all-margir safnaðarmenn í Selkirk þá til altaris, þar á meöal ungmenni þau, er fermd höföu veriö næsta sunnudag áðr þar í söfnuðinum. Seinna um daginn fór fram vígsla grafreits þess hins nýja, sem söfnuðrinn í Selkirk fyrir skömmu hafði fengið aö gjöf frá kvenfélagi því íslenzku þar í bœnum, er nefnir sig ,,Vonin“. Reitr sá liggr spölkorn suðr frá bœjarstœðinu á mjög prýðilegum stað. Forseti framkvæmdi einnig vígslu þessa og hélt um leið stutta rœðu. En aðalrœðuna við það tœkifœri hélt séra Jón J. Clemens. Séra Björn B. Jónsson flutti bœn. Við kvöldguðsþjónustuna sama dag las hr. Gestr Jó- hannsson, annar erindsrekinn frá Selkirk á kirkjuþinginu, upp sögu safnaðarins, skrásetta af honum sjálfum eftir beiðni safn- aðarins. það er talsvert mikið mál og vel til þess vandað. Er svo til ætlazt, að ritgjörð sú komi út í blaði þessu áðr en langt um líðr. það- er mjög merkilegr þáttr úr sögunni um hina kirkjulegu baráttu Vestr-íslendinga á síðasta áratugi. L

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.