Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.08.1900, Side 21

Sameiningin - 01.08.1900, Side 21
kristnitökunni fór óðum að birta og hlýna. Dagrinn fœddist þá áreiöanlega í þjóðlífi Islands. pað er sýnileg dagsbirta yfir íslandi á elleftu öldinni. En það var nótt yfir Islandi á tí- unduöldinni. Villudóms-einkennin hjá forfeðrum vorum fóru minnkandi og fækkandi þegar undir eins eftir að kristindóm- inum hafði verið leyfð landsvist hið ógleymanlega ár—árið iooo. Fornsögu-öldin endar að vísu ekki fyrr en sem svarar einum lökum mannsaldri eftir það. því svo lengi er söguefn- ið gamla, vígaferlin, hinar blóðugu mannhefndir, til í þjóð- lífinu. En mjög fjarri fer því þó, að heiðindómsandinn gamli haldi sér á þeim mannsaldri með sama kraftinum eins og áðr. Sögur vorar bera þess marg-endrtekinn vott, það af þeim, sem nær inn á það tímabil, að þá er óðum að verða ljós í landinu, sannkristilegt trúarljós, og að ljómandi geislar af því ljósi eru þegar komnir og farnir að hafa vakl yfir samvizku þjóðarinnar. Arið ioii koma fyrir tvö voðaleg hryðjuverk á Islandi, annað um vorið, hitt um haustið, svo skelfileg, að ekkert er meira í þá átt á heiðindómsöldinni áðr í sögu landsins. Ann- að er víg Höskuldar Hvítanesgoða. Hitt er Njálsbrenna. í hvorutveggja þeirra hryðjuverka kemr hinn forni heiðindóms- andi fram í sínum algleymingi. En hins vegar bregðr þar á báðum stöðunum fyrir svo mikið af birtu kristinnar trúar, að engum getr dulizt, að ný öld, óendanlega miklu betri og sælli en hin gamla, er runnin upp yfir þjóðina. þegar Höskuldr féll, sagði hann : ,,Guð hjálpi mér, en fyrirgefi yðr. “ Hann dó eins og hinn fyrsti kristni píslarvottr.—En eigi síðr er stór- kostlegt að hugsa um Flosa þórðarson, þegar hann á ferð sinni til alþingis hittir Hildigunni bróðurdóttur sína, og hún kastar yfir hann skikkjunni, er Höskuldr, maðr hennar, var veginn í, svo að blóðlifrarnar dundu um hann allan, og særði hann f œðisgengnum grimmdarhug við allt heilagt og guðlegt, að koma blóðhefnd fram á banamönnum hins látna, eða heita hvers manns níðingr ella. það óskaplega sálarstríð, sem þeim manni nauðugum og alveg óvænt var þákastað út í! ,,Flosa brá svo við“—segir söguritarinn—, ,,að hann var í andliti stundum sem blóð, en stundum fölr sem nárr, en stundum

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.