Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.08.1900, Side 22

Sameiningin - 01.08.1900, Side 22
102 blár sem hel. “ Tvö andstœð öfl eru að brjótast um í sálu hans, og það lítr út fyrir, að hann rnuni ætla að verða algjör- lega slitinn sundr af ]?eim öflum—heiðindóminum og kristin- dóminum. Hann vildi lang-helzt, að sáttum yrði komið á, heiðarlegum sáttum, og í þá átt var hann knúðr af anda krist- innar trúar ; en heiðindómsandinn heimtaði hefnd. Og eftir að hann hafði svo átakanlega verið særðr af frændkonu sinni, syrgjandi ekkju hins vegna saklausa manns, var nálega auð- sætt, að hann myndi neyðast til að taka það ráð, er öllum gegndi verst. Sáttatilraunin á alþingi misheppnaðist.—Og svo urðu úrræðin þau, að brenna þá Njál og sonu hans inni. En þegar loks er gripið til þess voðalega óyndis-úrræðis, er hin kristna samvizka Flosa enn vakandi. Hann lýsir yfir því í heyranda hljóði, er hann á þennan hátt með mönnum sínum soekir að bœnum að Bergþórshvoli, að þetta sé stór ábyrgðar- hlutr fyrir guði, þar sem þeir sjálfir sé menn kristnir. Og er þar sýnt, hve síerkt afl kristindómrinn er þá þegar farinn að verða í þjóðlífinu á Islandi, þó að hann sé ekki enn orðinn nógu sterkt afl til þess að afstýra þessu voðaverki. En voða- verkin heiðinglegu fara svo stórum dvínandi. Og þegar kom- ið er fram á miðja þá öld, er kristindómrinn búinn að fá svo mikið vald yfir satnvizku þjóðarinnar, að landið má kalla vel kristið land. Undir lok aldarinnar er svo komið, að vopna- burðr meðal höfðingja hefir nálega með öllu lagzt niðr og þjóðin nýtr fullkomins friðar og velsældar í skjóli blómlegrar kristinnar kirkju. Og vitanlega er það kristindómrinn, sem framleiddi hinar merkilegu forn-íslenzku bókmenntir á tólftu og þrettándu öld- inni, bókmenntir, sem hafa svo sterkt lífsmagn, að þær halda áfram að vaxa og fullkomnast um langa tíð eftir að trúarlífið í kirkjunni er komið í hörmulega visnan og sýnist ekki framar eiga neina viðreisnarvon. A Sturlungaöldinni er heiðindómr- inn aftr fallinn yfir land og lýð, þó að þjóðin gangi þá enn und- ir kristnu nafni ; og sá nýi heiðindómr er að sumu leyti enn þá ömurlegri en hinn forni, þar sem menn á þeirri fráfallstíð með kristinni trúarjátning í orði kveðnu voru þá óðum að vaxa niðr á við. En þó að trúarlífsástandiö vari svo hryggilegt

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.