Sameiningin - 01.08.1900, Side 30
heima í; og brátt fengust eumig menn til fyrir hina lands-
fjóröungana til þess að helga sig og heitbinda líf sitt drottni
til þjónustu á sama hátt. .,Svo áminni eg yör, brœör, í guðs
náðar nafni, að þér framseljið líkami yðar eins og fórn, lif-
andi, helga, guði velþóknanlega, (sem er) skynsamleg guðs-
dýrkan yðar. “ þannig ritar Páll postuli í upphafi 12. kapí-
tulans í Rómverjabréfinu. Sannleikr þeirra postullegu orða
er auðheyrt alráðandi í sálum þessara göfugu forfeðra vorra á
hinum merkilega fundi. þeim skilst það, að með þessu móti
hljóti málefni kristinnar trúar að verða borgið á Islandi.
þeim skilst það, að þessir einstöku, er lögðu sjálfa sig fram
sem lifandi fórn drottni Jesú til handa, myndi á J>ann hátt
verða að heilögu súrdeigi með svo miklum krafti í sér, sem
dygði til þess að sýra allt deigið, umskapa heiðingjana, kristna
allt landið. Ef vér í hinni kirkjulegu starfsemi vorri fetum
samvizkusamlega í fótspor mannanna, sem fyrir níu hunðruð
árum útveguðu kristninni lagaleyfi til landsvistar á ættjörð
vorri, þá verðr líka málefni kristindómsins hjá oss áreiðanlega
borgið. Sjáum að eins um það, að kristindómrinn hjá oss
haldi sínu heilaga súrdeigseðli ; þá er öllu óhætt,—algjörlega
óþarft að kvíða fyrir því, að vér liggjum undir í viðreigninni
við hin andstœðu vantrúar-öfl og siðspillingar-öfl í mannfélagi
voru. Látum hina kirkjulegu prédikan vora vera drottinlegt
súrdeig. Látum barna-uppfrœðsluna kirkjulegu hjá oss vera
samskonar súrdeig. Látum hvern einasta söfnuð í kirkjufé-
lagi voru vera slíkt súrdeig. Látum prestana og leikmennina,
sem heyra til félagshópi vorum,keppa hver við annan í því að
gjöra líf sín að kristilegu súrdeigi. þá er sjálfum oss og hinu
góða málefni, sem vér höfum sameiginlega með höndum frá
frelsara vorum Jesú Kristi, sigrinn vís.—Ekki skal því að vísu
gleymt, að hinu illa og óguðlega er líka í heilagri ritning líkt
við súrdeig. ,,Varizt fyrst og fremst súrdeig farísea, það er :
hrœsnina“—segir Jesús (Lúk. 12, 1). Á öðrum stað segir
hann lærisveinum sínum, að þeir skuli vara sig á súrdeigi bæði
farísea og sadúsea (Matt. 16, 6). Og til Korinþumanna segir
Páll postuli: ,,Takið burt gamla súrdeigið, svo að þér fram-
vegis getið verið nýtt deig“ (1. Ivor. 5, 7), og gjörir svo