Sameiningin - 01.08.1900, Page 32
sem í voru valdi stendr,til þess aö hin kristilega flóöalda, sem
eg áöan var um aö tala, magnist, magnist svo stórkostlega og
gleðilega, að hún sópi öllu illu burt úr þjóðlífi voru, því öllu,
sem engan hœfilegleik hefir í sér til þess að geta ummyndazt
á guði velþóknanlegan hátt.—Maðr spurði Moody, hinn mikla
kristna prédikara, sem andaðist rétt fyrir jólin síðustu, hvern-
ig hann ætti að fara með sjálfan sig, því hjarta sitt væri svo
spillt. ,,Láttu“—svaraði Moody—,,nógu mikið þar inn af
heilögum anda guðs. “ Með því móti myndi vonzkan í hjart-
anu dvína, og á endanum alls ekki koma til greina. Alveg
eins og ef nógu lengi væri hellt tæru uppsprettuvatni í ílát
með óhreinu og skemmdu vatni, þá myndi skemmda vatnið
smásaman hverfa og eyðast loks þar í ílátinu algjörlega.
Hellum þá líka nógu miklu hreinu andlegu vatni inn í hina
gruggugu tjörn nútíðarþjóðlífsins íslenzka. Látum þangað
stöðugt renna strauma lifanda vatns út frá oss í hinni kristnu
kirkju vorri. þá hreinsast vatnið í tjörninni áreiðanlega—
alveg eins og það forðum svo undr fljótt og gleðilega hreins-
aðist eftir að hin ógleymanlega alþjóðarsamþykkt var gjörð
kristindóminum viðvíkjandi á alþingi Islendinga þennan dag
fyrir níu hundruð árum.
Munið allir, kristnir menn, eftir dœmisögu frelsarans um
súrdeigið.
,,EIMREIDIN“, eitt fjölbreyttasta og skemmtilegasta tímaritið á ís-
lenzku. Ritgjörðir, myndir, sögur, kvæði. Verð 40 cts. bvert hefti
Eæst hjá H. S. Bardal, S. Bergmann o. fl.
,,ÍSAFOLD“, ’.ang-mesta blaðiö á íslandi, kemr út tvisvar í viku allt áriö; kostar
í Ameríku $1.50. Halldór S. Bardal, 557 Elgin Ave,, Winnipeg, er útsölumaðr.
„VERDI LJÓS !“— hið kirkjulega mánaðarrit Jieirra séra Jóns Helgasonar
og Haralds Níelssonar i Reykjavík — til sölu í bókaverzlan Halldórs S. Bardals
í Winnipeg og kostar 6o cts.
„KENNARINN“, mánaöarrit til notkunar við kri.tindómsfrceðslu barna í sunnu-
dagsskólum og heimahúsum; kemr út í Minneota, Minn. Argangrinn, 12 nr.,
kostar að eins 50 cts. Ritstj >ri séra Björn B Jónsson. Útg. S. Th. Westdal.
,,SAMEININGIN“ kemr út mánaðarlega,12 nr. á ári. Verð í Vestrheimi: $1.00
árg,; greiðist fyrirfram. —Skrifstofa blaðsins: 704 Ross Ave., Winnipeg, Manitoba,
Canada.—otgáfunefnd: Jón Bjarnasonfritstj.), Friðrik J. Bergmann, Jón A.Blöndal,
Rúnólfr Marteinsson og Jónas A. Sigurðsson.
PRENTSMIDJA LÖGBERGS — WINNIPEG.