Fréttablaðið - 31.12.2010, Qupperneq 2
2 31. desember 2010 FÖSTUDAGUR
ATVINNUMÁL Nýtt afgreiðslukerfi
verður tekið í notkun hjá bifreiða-
stöðinni Hreyfli fljótlega á nýju ári.
Um er að ræða GPS-kerfi, sem bæði
eykur öryggi leigubílstjóra og hefur
ýmsa fleiri kosti í för með sér, að
sögn Sæmundar Sigurlaugssonar
framkvæmdastjóra á Hreyfli.
Í síðustu viku varð leigubílstjóri
fyrir því að fíkniefnaneytandi ógn-
aði honum með sprautunál og rændi
hann. Bílstjórinn sagði þá í viðtali
við Fréttablaðið að sitt fyrsta verk
yrði að fá sér öryggismyndavél í
bifreið sína, með tilheyrandi merk-
ingum á rúðum hennar.
„Það eru vélar í nokkrum bílum
á Hreyfli,“ segir Sæmundur og
bætir við að það sé einkamál hvers
og eins bílstjóra hvað hann geri í
þeim efnum.
„Við höfum ekkert á móti því að
bílstjórarnir fái sér myndavélar.
Það er hverjum og einum í sjálfs-
vald sett,“ bætir hann við. „Hins
vegar rekum við engan áróður
fyrir þessum vélum. Vissulega
næst mynd af þeim sem brýtur af
sér gegn bílstjóra en skaðinn er þá
skeður fyrir það.“
Spurður um varnir sem bílstjórar
á Hreyfli geti gripið til komi eitt-
hvað upp á segir Sæmundur að í bíl-
unum sé neyðarhnappur sem hægt
sé að ýta á.
„Þá opnast fyrir allt sem gerist
í bílnum inn á símaafgreiðslu hjá
okkur. Bílstjórinn þarf að greina
frá því hvar hann er.“
Í kringum 1. mars næstkomandi
verður nýja kerfið tekið í notkun.
Þá þarf bílstjórann einungis að ýta
á neyðarhnappinn og þar með sér
afgreiðslan nákvæmlega hvar hann
er staddur og að hann þurfi neyðar-
aðstoð. Sæmundur segir þessa
fjárfestingu kosta um 140 milljón-
ir króna.
„Það koma litaskjáir í alla bíla og
afgreiðslukerfið verður GPS-vætt,“
útskýrir hann. „Auk þessa teljum
við að þetta eigi að spara bílstjórum
eldsneyti, vinni þeir eftir kerfinu.
Viðskiptavinirnir fá bílana einnig
fyrr. Kerfið verður þannig forritað
að sé stæði leigubíla orðið autt þá
leitar kerfið að þeim bíl sem næstur
er í stað þess að senda frá svæðum
sem eru lengra í burtu. Þetta er til
mikilla bóta fyrir viðskiptavini og
bílstjórana okkar.“
Guðmundur Börkur Thorarensen,
framkvæmdastjóri BSR, segir enga
bílstjóra með myndavélar í bílum
stöðvarinnar og ekki standi til nein-
ar breytingar á því. Menn hafi tal-
stöð sem í sé öryggis hnappur.
jss@frettabladid.is
HREYFILL Afgreiðslukerfið verður GPS-vætt á nýju ári, sem eykur öryggi bílstjóra og
kemur viðskiptavinum til góða. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nýtt GPS-öryggis-
kerfi sett í leigubíla
Sett verður upp nýtt afgreiðslukerfi hjá Hreyfli á nýju ári sem hefur meðal ann-
ars í för með sér stóraukið öryggi fyrir bílstjórana. Stutt er síðan leigubílstjóra
var ógnað með sprautunál og hann rændur. Ekki standa til breytingar hjá BSR.
SPURNING DAGSINS
DÝRAHALD Ljós í hesthúsinu, mjúk tónlist og loftvift-
urnar á hæsta styrk eru þau heilræði sem Sigurbjörn
Bárðarson hestamaður gefur þeim sem eru með
hross á húsi á gamlárskvöld. Hann og fjölskylda hans
eru með hross í Breiðahvarfi í Kópavogi og hafa því
reynslu af því hvernig best sé að búa að hrossunum
meðan flugeldaskothríðin gengur yfir um áramótin.
„Best er að hafa útvarpið fremur hátt stillt með
mjúkri tónlist. Hún dregur athygli hrossanna frá
hávaðanum í flugeldunum,“ segir Sigurbjörn enn
fremur og bætir við að suðið í loftræstikerfinu geri
það einnig. Loka skuli öllum gluggum. Þá sé gott að
gefa hrossunum heldur meira en venjulega.
„Hljóðið skiptir höfuðmáli við þessar aðstæður,“
segir hann.
Sigurbjörn getur sem hundaeigandi einnig gefið
góð ráð varðandi hunda á gamlárskvöld.
„Við höfum okkar hunda í því rými sem þeir eru
vanir að vera í, drögum fyrir glugga, kveikjum ljós
og höfum einnig tónlist þar.
Við höfum nóg af vatni hjá þeim og gefum þeim
bein að naga.“
Hrafnhildur Ósk Halldórsdóttir, kattaræktandi
í Hlíðunum, segir að kettirnir eigi að fá að vera
frjálsir ferða sinna á heimilinu. Þeir velji sér sjálfir
stað, þar sem þeir upplifi sig öruggasta og kúri sig
þar. Alls ekki eigi að loka þá inni í búrum eða að
reyna að halda á þeim vilji þeir það ekki.
„Svo þarf að passa að hafa alla glugga vel lokaða
og dregið fyrir þá,“ bætir Hrafnhildur við mælir
með tónlist fyrir kettina. Hins vegar kveðst hún ekki
mæla með róandi lyfjum fyrir dýrin. - jss
DÝR Á GAMLÁRSKVÖLD Gera má ýmsar ráðstafanir á gamlárs-
kvöld til að dýrunum líði vel.
Hestar, hundar og kettir geta orðið skelkaðir í skoteldalátunum á gamlárskvöld:
Ljós og tónlist best fyrir dýrin
Snorri, er ekki útilokað að láta
hendur standa fram úr ermum
í þessum bol?
„Jú, en þá lætur maður bara hendur
standa fram úr hlýrum.“
Handknattleikskappinn Snorri Steinn
Guðjónsson og félagar hans í AG
Kaupmannahöfn spila í nýstárlegum
ermalausum keppnistreyjum sem hafa
hlotið blendin viðbrögð í boltanum.
DANMÖRK, AP Þrír mannanna fjög-
urra sem handteknir voru í Kaup-
mannahöfn á miðvikudag voru í
gær úrskurðaðir í fjögurra vikna
gæsluvarðhald. Þeir eru sakaðir
um að hafa ætlað sér að gera árás á
danska dagblaðið Jyllandsposten.
Þeir eru allir búsettir í Svíþjóð.
Einn er 44 ára og ættaður frá
Túnis, annar 29 ára og fæddur í
Líbanon en sá þriðji er þrítugur.
Ekki var gefið upp hvaðan hann
er. Fjórði maðurinn var látinn
laus, en hann er frá Írak og býr í
Danmörku. Við húsleit á heimili
hans fannst hvítt duft, sem þegar
til kom reyndist vera meinlaust,
líklega hveiti.
Lögreglan segir hann enn
grunaðan um aðild að málinu, en
bróðir hans segir hann saklausan:
„Hann er kallaður hryðjuverka-
maður vegna þess að hann er sann-
trúaður múslimi,“ segir bróðirinn.
Fimmti maðurinn er í haldi
lögreglunnar í Svíþjóð, einnig
grunaður um að hafa tekið þátt í
skipulagningu árásarinnar.
Jakob Scharf, yfirmaður leyni-
þjónustu dönsku lögreglunnar,
segir að mennirnir hafi ætlað sér
að gera árásina nú fyrir helgi. Hún
átti að sögn Scharfs að verða með
svipuðu móti og árásirnar í Múm-
baí á Indlandi árið 2008. - gb
Þrír hinna handteknu úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í Danmörku:
Einn mannanna látinn laus
GRUNSAMLEGT EFNI Lögreglan hafði
mikinn viðbúnað þegar hvítt efni fannst
í íbúð eins hinna handteknu.
NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Maður hefur í Héraðs-
dómi Suðurlands verið dæmdur í
tólf mánaða fangelsi fyrir að hafa
ráðist á lögregluvarðstjóra. Hann
sló varðstjórann, sem var við
skyldustörf, í andlitið.
Maðurinn, sem játaði sök fyrir
dómi, hefur nokkrum sinnum
hlotið dóma, meðal annars vegna
fíkniefnabrota. Síðast var hann
dæmdur á skilorð í febrúar á
þessu ári. Það skilorð rauf hann
með broti sínu nú. Málin voru
því bæði tekin til meðferðar og
dæmd í einu lagi. - jss
Tólf mánaða fangelsi:
Réðst á lög-
regluvarðstjóra
REYKJAVÍK Borgarbúar geta farið
með jólatrén sín endurgjalds-
laust á endurvinnslustöð eða
keypt þjónustuna hjá sorphirðu-
fyrirtækjum og íþróttafélögum.
Sorphirða Reykjavíkur hirðir
ekki jólatré nú fremur en í
fyrra.
Nokkur íþróttafélög í Reykja-
vík munu á nýju ári bjóða
borgar búum upp á þá þjónustu
að hirða jólatré að hátíðunum
loknum. Skógræktarfélag
Reykjavíkur og Gámaþjónust-
an hafa til að mynda samstarf
um hirðingu jólatrjáa. Íslenska
gámafélagið sækir jólatré á
heimili og í fyrirtæki. Hægt er
að panta hirðingu trjáa á netinu
hjá fyrirtækjunum.
Sparnaður hjá borginni:
Jólatrén verða
ekki sótt heim
NEYTENDUR Fréttablaðskassar
Pósthússins á landsbyggðinni hafa
verið teknir niður tímabundið.
Þeir verða settir upp aftur eftir
þrettándann.
Ástæða þess að kassarnir voru
teknir niður er hætta á skemmdar-
verkum í kringum áramót. Á
heimasíðu Pósthússins má sjá
hvar hægt er að nálgast Frétta-
blaðið í millitíðinni. Þá hefur
Pósturinn læst póstkössum sem
staðsettir eru utanhúss á höfuð-
borgarsvæðinu yfir áramótin. - þeb
Koma aftur upp eftir áramót:
Fréttablaðskass-
ar teknir niður
PÓLLAND, AP Anders Högström,
35 ára sænskur nýnasisti, hefur
verið dæmdur í tveggja ára og
átta mánaða fangelsi í Póllandi
fyrir að hafa skipulagt þjófnað á
alræmdu skilti Auschwitz-útrým-
ingarbúðanna í lok síðasta árs.
Högström viðurkenndi aðild
sína að ráninu. Búist er við að
hann verði fluttur til Svíþjóðar á
næstu vikum til að afplána dóm-
inn þar. Sex menn tóku þátt í rán-
inu. Tveir Pólverjar hlutu örlítið
styttri fangelsisdóma en Hög-
ström, en þrír Pólverjar voru
dæmdir í mars. Pólski saksóknar-
inn segir megintilgang þeirra
hafa verið að hagnast á sölu skilt-
isins. - gb
Sænskur nýnasisti dæmdur:
Stóð að stuldi
alræmds skiltis
SKILTIÐ Í AUSCHWITZ Mennirnir rændu
því aðfaranótt 18. desember á síðasta
ári. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Andri Árnason, verj-
andi Geirs H. Haarde, fyrrver-
andi forsætisráðherra, kveðst
furða sig á að þingnefndin sem
yfirfór skýrslu
rannsóknar-
nefndar Alþing-
is um hrunið
og síðar þingið
sjálft skuli ekki
hafa haft aðgang
að lykilgögnum
þegar ákvörð-
un var tekin
um að ákæra
Geir fyrir landsdómi. Þetta
kom fram á í fréttum Stöðvar
2 í gær. Andri byggir ályktun
sína á því að Sigríður J. Friðjóns-
dóttir, saksóknari Alþingis,
hefur óskað eftir gögnum sem
tengjast Geir. Er þar um að
ræða tölvupósta, skýrslutökur
og minnisblöð sem voru í vörslu
rannsóknarnefndar Alþingis og
eru geymd hjá Þjóðskjalasafni
Íslands. - gar
Verjandi Geirs Haarde hissa:
Þingnefnd var
án lykilgagna
ANDRI ÁRNASON