Sameiningin - 01.11.1901, Side 2
130
En hvaö mun valda? hver veit skil?
eg hættr er að finna til !
■5Í-
6. þannig hefir sorg og synd
svift viig drottins helgri mynd.
■— Góði faðir, grœddn mig !
Guð minn, endrfceddu viig !
Trúarsamtaís-fundir.
H e I ga n i n.
Um miöjan Októbermánuð voru haldnir fundir til aö
rœða urn kristileg trúmál í söfnuðunum öllum fjórum, sem til-
heyra prestakalli séra Björns B. Jónssonar, í Minnesota.
Einn fundr slfkr í hverjum söfnuði. Fyrsti fundrinn var hald-
inn í St. Páls kirkju í Minneota að kvöldi sunnudagsins 13.
Okt. (19. e. trín.); og hinir fundirnir svo hvern daginn eftir
annan í kirkjum Vestrheimssafnaðar, Lincoln-safnaðar og
safnaðarins í Marshall, — tveir hinir fyrrnefndu um miðjan
dag, hinn síðasti að kvöldi. — Umrœðuefnið var hið sama á
öllum fundunum: helganin.
þrír aðkomnir prestar voru hluttakendr í fundahöldum
þessum: séra Friðrik J. Bergmann, séra N. Steingrímr þor-
láksson og ritstjóri ,,Sarn. “ Og voru þeir samkvæmt beiðni
séra Björns til skiftis málshefjendr á fundunum. — A sunnu-
daginn prédikaði séra Steingrímr á tveim stöðum þar í presta-
kallinu: í Minneota að morgni og í Marshall síðdegis; og
sama dag urn hádegi séra Friðrik Bergmann í kirkju Lincoln-
safnaðar, og séra Jón Bjarnason í kirkju Vestrheimssafnaðar.
Að kvöldi mánudagsins fór og fram opinber guðsþjónusta í
St. Páls kirkju f Minneota, og prédikaði hinn síðastnefndi
prestr þá aftr.
Samtalsfundrinn í Minneota var vel fjölmennr, og var
hluttaka leikmanna í umrœðunum þar bæði mikil og góð.
Vestrheimssöfnuðr og Lincoln-söfnuðr eru sveitasöfnuðir. Og
dró að sumu leyti veðráttan, en að sumu leyti annríki bœnda
úr aðsókninni að fundum þeim, sem þar voru haldnir. Söfn-
uðrinn í Marshall er fámennr; fólk hefir þar í seinni tíð fækk-