Sameiningin - 01.11.1901, Side 4
132
kð búast, að heimrinn nú—á þessari skynsemdar-öld—kannist
við það, að kristna trúin sé sannleikrinn. En sjái hann þessi
inerki, þá fer hann eðlilega að hugsa sig um, fer að bera
lotning fyrir kristnum mönnum og þar með þá einnig smá-
saman, jafnvel áðr en hann veit af, fyrir trúnni þeirra, guðs
orði, kristindóminum. Hinn heiðni heimr rómverska ríkisins
beygði sig fyrir kristninni forðum fremr öllu öðru fyrir þá sök,
að lífi kirkjulýðsins, lærisveina Jesú, stakk svo algjörlega í
stúf við líf alls annars fólks. Menntamennirnir á þeirri tíð
töldu það, sem þeir heyrðu af kristnum trúarlærdómum,
heimsku og óvit; en er þeir litu hið hreina og heilaga líf fólks-
ins, sem bar fyrir sig nafn frelsarans, þá undruðust þeir og
leiddust svo nærri því ósjálfrátt æ fleirri og fleiri til þeirrar
sannfœringar, að innihald kristinnar trúar hlyti að vera guð-
legs uppruna, djúpr og órannsakanlegr leyndardómr að vísu,
en þóhineinaalsannalífsspeki, hinnguðlegisannleikr sáluhjálp-
arinnar. það, sem fremr öllu öðru dregr úr árangri kristni-
boðsins í heiminum á vorri tíð, er það, að heiðingjarnir sjá
svo langt um of lítið af heilögu lífi hjá almenningi innan kirkj-
unnar. Og ein aðal-orsök þess, að svo margir Islendingar
hér berast fyrir trúlausir utan safnaða vorra, er vissulega einn-
ig sú, að þegar þeir líta inn í þá söfnuði, þá sjá þeir þar svo
fáa kristindómsávexti í lífinu. A þetta var hvað eftir annað
skýrt bent á samtalsfundunum út af helganinni. Fjallrœða
Jesú öll heyrir því máli beinlínis til, og var þá einnig á það
minnzt, að í þeim mikla og dýrðlega boðskap gjörir Jesús
grein fyrir því, hvað hann með tilliti til lífernisins heimtar af
öllum.sem eigi að geta orðið hans lærisveinar, aðhvaða lífern-
iskröfum allir verði að ganga til þess að þeir fái komizt inn í
guðs ríki. Trúarlærdómrinn kristilegi er þar ekki. Jesús op-
inberar hann smásaman eftir það. Og fyrir þá opinberan
urðu lærisveinar hans móttœkilegir eftir því sem þeir betr og
betr lifðu sig inn í siðalærdóms-boðskap fjallrœðunnar. þann-
ig var það þá. Og þannig er það enn. Trúin á leyndar-
dóma fagnaðarboðskaparins um Jesúm Krist vex í sálum læri-
sveina hans að sama skapi sem þeir betr leggja stund á vand-
að, óeigingjarnt, hreint, heilagt líf. En hún visnar upp, sú